Skriðmispill – Cotoneaster apiculatus?

Harðgerður, jarðlægur runni. Blöðin smá, dökkgræn og gljáandi. Rauðir haustlitir. Smá bleik blóm fyrri part sumars. Rauðgul ber þroskast á haustin og endast þau gjarnan langt fram á vetur. Sólelskur. Hentar í grjóthleðslur, kanta, ker o.þ.h. Ágætis þekjuplanta þar sem hann nýtur góðrar birtu. Hugsanlega eru fleiri tegundir en ein sem í daglegu tali kallast „skriðmispill“. Mjög vinsæll og algengur í görðum landsmanna.

Vörunr. 413e5e7d09e1 Vöruflokkar: , ,