Stikilsber ‘Hinnonmäki’ – Ribes uva-crispa ‘Hinnonmäki’
Harðgerður, lágvaxinn (70 – 100 sm, stundum hærri), þyrnóttur berjarunni. Berin stór með áberandi æðum. Erum með annars vegar ‘Hinnonmäki’ með rauðbrúnum berjum og svo samsvarandi yrki með gulgrænum fullþroska berjum. Uppskerumikil yrki í fullri sól, sæmilega frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Millibili 70 – 80 sm. Stikilsber þola hálfskugga en þá verður uppskeran minni. Berin má nýta í sultur, grauta og fleira. Finnsk yrki. Rifsþéla getur verið vandamál.
Vörunr.
1a259c197542
Vöruflokkur: Ávaxtatré og berjarunnar
Tengdar plöntur
Berjablátoppur ‘Honey Bee’ – Lonicera caerulea ‘Honey Bee’
Harðgerður lágvaxinn - meðalstór, sumargrænn runni. Blómin gulgræn í apríl/maí. Aldinið blátt, aflangt, sætt og bragðgott ber sem þroskast síðsumars (ágúst). Berjablátoppur 'Honey Bee' er ekki sjálffrjóvgandi og þarf því frjó frá öðru yrki af blátopp til að þroska ber. Þrífst vel í hálfskugga en þroskar meira af berjum í sól. Þrífst vel í allri venjulegri garðmold. Millibil 80 - 100 sm. Reynsla af ræktun berjablátopps er ennþá takmörkuð. Helsta vandamálið hérlendis er að blómin skemmast gjarnan í vorfrostum sem veldur lítilli berjauppskeru. Berjablátoppur 'Honey Bee' er sagður sérlega góður til að frjóvga önnur yrki af berjablátopp. Berin á 'Honey Bee' eru sögð haldast sérlega vel á runnunum en ekki falla af eins og stundum gerist með önnur yrki. Kanadískt yrki.
Blárifs ‘Perla’ – Ribes bracteosum ‘Perla’
Fremur harðgerður, sumargrænn, gisgreinóttur runni. Hæð: 1,5 - 2 m. Laufin fremur stór, handflipótt, 5 til 7 - flipótt með egglaga - egglensulaga, ydda og tennta flipa. Lauf gljáandi á löngum blaðstilk. Gulir haustlitir. Blómin græn-brúnleit í útstæðum klösum. Blómgast í júní. Berin bláhéluð, áberandi í löngum útstæðum klösum. Þroskast í lok ágúst og fram í september. Henta í sultur og þess háttar en sæmileg til átu beint af runnanum.
Blárifs 'Perla' þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Blandið gömlum húdýraáburði eða moltu saman við jarðveginn við gróðursetningu. Gott er að setja álíka lífrænt efni í kringum runnana á fárra ára fresti. Blárifs er all skuggþolið en þroskar mest af berjum í sól. Þrífst betur við ströndina en inn til landsins. Hentar í raðir, þyrpingar, í berjagarðinn og sem undirgróður undir trjám. Millibil um 1 m eða meir.
'Perla' er úrvalsyrki valið af Ólafi S. Njálssyni úr Alaskasafni því er barst til landsins með Óla Val og félögum árið 1985. Heimkynni: Vesturströnd N-Ameríku allt frá S-Alaska í norðri suður til N-Kaliforníu. Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
Hafþyrnir – Hippophae rhamnoides
Harðgerður, þyrnóttur, lauffellandi, lágvaxinn - hávaxinn runni (1 - 3 m). Laufið lensulaga og grásilfrað. Blómin smá og lítið árberandi. Sérbýll. Kvenplöntur þroska rauðgul, æt ber séu karlplöntur í nágrenninu. Ein karlplanta dugar til að fræva nokkrar kvenplöntur. Vindfrævun. Berin hanga á runnunum langt fram á vetur þar sem fuglar virðast lítið sækja í þau. Sólelskur. Vind- og saltþolinn. Lifir í sambýli við niturbindandi bakteríur (Frankia) sem gerir honum kleift að vaxa í rýrum jarðvegi. Hafþyrnir hefur mjög skriðullt og kröftugt rótarkerfi.
Berin eru nýtt í sultur og þess háttar og eru sögð mjög holl og eru t.d. mjög C-vítamínrík. Laufið má nýta í te. Hentar sérlega vel við sjávarsíðuna, til að binda sendinn og malarborinn jarðveg og þess háttar. Þrífst í alls konar jarðvegi en þó ekki blautum. Hafþyrnir hentar í runnaþyrpingar og raðir t.d. á vindasömum stöðum og í villigarða og sumarhúsalóðir. Millibil við gróðursetningu um 1 m. Rótarskot geta verið til ama t.d. nálægt gangstéttum og þess háttar. Fer jafnvel í gegnum malbik!
Við höfum verið að prófa okkur áfram með mismunandi yrki og stofna. Finnsku yrkin 'Tytti' (kvk), 'Terhi' (kvk), 'Rudolf' (kk) og 'Tarmo' (kk), fást gjarnan hjá okkur og hafa reynst vel. Einnig eigum við stundum til kvk og kk yrki úr Hallargarðinum, Rvk. Höfum einnig framleitt og boðið upp á íslenskar fræplöntur af hafþyrni.
Heimkynni: Kaldtempruð svæði Evrasíu. Í heimkynnum sínum vex hafþyrnir aðallega með ströndum fram og til fjalla. Silfurblaðsætt (Elaeagnaceae)
Hindber – Rubus idaeus
Skriðull, sumargrænn hálfrunni. Hæð 1 - 2 m. Greinar ná tveggja ára aldri. Fyrra árið vaxa beinir trékenndir stönglar upp frá jörðu í fulla hæð. Seinna árið blómgast þeir og þroska ber. Síðan eru þeir dauðar. En alltaf koma upp nýir stönglar jafnharðan á hverju ári. Stönglar eru með beina, veikbyggða þyrna sem tæplega er hægt að meiða sig á. Laufblöð stakfjöðruð. Smáblöð 5 - 7 talsins á fyrsta árs greinum. Greinar á öðru ári bera smærri lauf með 3 - 5 smáblöðum. Laufblöð eru tennt og ydd, græn að ofan en ljós- eða nánast silfurhærð að neðanverðu. Blómin hvít, nokkur saman í klösum í lok maí eða í júní. Þvermál blóma um 1 cm. Hindberið er í raun samsett aldin úr nokkrum steinaldinum. Losnar auðveldlega fullþroska frá miðkjarnanum/stilknum þannig að smá hola er sjáanleg á aldininu/berinu.
Klippið í burt dauðar greinar. Gróðursetjið í afmarkað rými til að forðast rótarskot um alla lóð. Tilvalið er að setja niður þil svona 40 sm niður í jarðveginn til að forðast dreifingu rótarskota. Einnig má rækta hindber í ílátum en þau þurfa frjóan og rakaheldinn jarðveg til að þroska ber. Setjið staðið hrossatað eða moltu saman við jarðveginn við gróðursetningu. Tilvalið er að setja lag af moltu í kringum ræktuð hindber á vorin.
Villihindber henta til gróðursetningar í lúpínubreiður og skógarrjóður. Berin á villihindberjum eru smá en bragðgóð. Þau skríða mjög mikið út og geta verið til vandræða. Úrvalsyrki eins og 'Borgund' hafa stærri ber og skríða ekki eins mikið út. Hindberjarunnar virðast vera sjálffrjóvgandi. Runnarnir þola vel hálfskugga en mest berjauppskera fæst í fullri sól. Yrki með stærri berjum henta betur til ræktunar í heimilisgörðum samanborið við villihindber. Hindber virðast eitthvað sá sér út hérlendis en fuglar sækja í berin.
Heimkynni: Evrópa og Asía. Slæðingur hérlendis. Ræktuð víða um heim. Rósaætt (Rosaceae).
Hlíðaramall / Hunangsviður – Amelanchier alnifolia
Harðgerður lágvaxinn - meðalstór, sumargrænn runni. Hæð 1,5 - 2,5 m. Laufið sporbaugótt - hringlaga, 2 - 5 cm á lengd og 1 - 4,5 cm á breidd, blágrænt. Blaðstilkur 0,5 - 2 cm á lengd. Blaðjaðrar tenntir ofan við miðju. Haustlitur gulur - rauðgulur. Blómin hvít í klösum snemmsumars (maí - júní). Fimm krónu- og bikarblöð. Blómin eru 2,5 - 5 cm í þvermál. Sagður sjálffrjóvga. Berin sem eru í raun berepli eru 5 - 15 mm í þvermál. Þau eru fyrst græn, svo fjólublá og loks svarblá fullþroska. Æt og bragðgóð hrá eða í sultur, bökur, þurrkuð og s.frv. Berin innihalda m.a. ýmis nauðsynleg steinefni. Fuglar sækja mjög í berin. Fremur hægvaxta.
Hlíðaramall þrífst í allri venjulegri garðmold. Blandið gömlu taði eða moltu í jarðveginn fyrir gróðursetningu. Gott er að setja lag af moltu annars lagið í kringum eldri runna. Þolir hálfskugga en mest berjauppskera fæst í fullri sól. Hentar í raðir, þyrpingar og blönduð beð með öðrum runnum og blómjurtum. Millibil um 1 m. Hentar einnig í villigarða og sumarhúsalóðir. Stundum ber á rótarskotum. Hlíðaramallinn okkar er allur ræktaður upp af íslensku fræi. Ein móðurplantan okkar er af fræi frá Skagway, Alaska.
Nefnd um íslensk háplöntuheiti mælti með nafninu "hlíðaramall" en fram að því hafði runni þessi almennt gengið undir heitinu "hunangsviður". Hlíðin sem vísað er til mun vera Fljótshlíðin þar sem fyrsti hlíðaramallinn mun hafa verið gróðursettur hérlendis. Heimkynni: N-Ameríka, vestanverð. Rósaætt (Rosaceae).
Rifs ‘Rautt Hollenskt’ – Ribes rubrum ‘Rautt Hollenskt’
Mjög harðgerður, meðalhár runni (1,5 m eða meir). Laufið handsepótt á löngum blaðstilk. Berin rauð, í klösum, súrsæt og æt. Berin Þroskast yfirleitt seinni part ágúst. Rifs 'Rautt Hollenskt' er aðallega ræktað vegna berjanna. Hæfilegt bil á milli rifsrunna er um 1 m. 'Rautt Hollenskt' er algengasta "rauð-rifsið" hérlendis og hefur verið lengi. Rifslús og rifsþéla eru gjarnan til ama. Rifs 'Rautt Hollenskt' er all vind- og saltþolið. Þrífst best í frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Þolir vel hálfskugga en mest berjauppskera fæst í fullri sól. Venjulega gróðursett í raðir t.d. utan um matjurtagarða og þess háttar. Berin eru notuð í sultur, saft, hlaup og fleira. Mjög gamalt yrki.
Sólber ‘Melalathi’ – Ribes nigrum ‘Melalathi’
Harðgerður berjarunni. Hæð: 1 - 1,5 m. Uppréttur vöxtur samanborið við flest önnur sólberjayrki. Bragðgóð og stór ber. Uppskerumikið en berjaklasar þroskast missnemma. Eitt allra vinsælasta sólberjayrkið. Mest uppskera fæst í fullri sól en runnarnir þola vel hálfskugga. Millibil um 1 m. Sólber 'Melalathi' hentar vel sem jaðar- og undirgróður í skjólbeltum. Finnskt yrki.
