Sveipstjarna – Astrantia major
Harðgerð, fjölær jurt. Hæð: 60 – 80 sm. Lauf með 3 – 7 flipum. Blóm í sveip. Sveipurinn umvafinn fölbleikum – grænleitum stoðblöðum. Þolir vel hálfskugga. Hentar í blönduð beð með öðrum fjölæringum. Sveipstjarna er góð til afskurðar og þurrkunar. Heimkynni: M- og A-Evrópa.
Vöruflokkur: Fjölærar jurtir
Tengdar plöntur
Gullbjalla – Pulsatilla aurea
Fremur lágvaxin fjölær jurt (10 – 50 sm). Lauf tvífjaðurskipt. Blómin stór, gul. Blómgast miðsumars. Heimkynni: Kákasus. Þrífst best í
Randagras – Phalaris arundinacea var picta
Harðgert skrautgras. Hæð: 1,5 m eða meir. Blöð áberandi hvítröndótt. Ögn fjólublár punturinn vex upp fyrir grasið síðsumars. Mjög skriðullt. Vex best í frjóum og rökum jarðvegi. Fer vel í þyrpingum og röðum t.d. á opnum svæðum, við tjarnir o.þ.h. Einnig kjörið í stóra potta/ker. Vökvið reglulega. Þolir hálfskugga. Heimkynnir: Evrasía og víðar.
Venusvagn / Bláhjálmur – Aconitum napellus
Harðgerð, all hávaxin fjölær jurt. Hæð allt að 1 m. Blómin dökkfjólublá síðsumars. Mjög eitraður sé hans neitt. Þolir vel hálfskugga. Venusvagn er mjög vindþolinn og leggst ekki niður í roki og þarf því ekki uppbindingu. Þrífst vel í venjulegri garðmold. Þolir vel hálfskugga.
Dílatvítönn – Lamium maculatum
Jarðlæg, þekjandi jurt. Lauf gjarnan meira og minna silfurgrátt. Blómkollar fjólubláir, bleikir eða hvítir eftir yrkjum. Skuggþolin. Þrífst best í venjulegri garðmold sem ekki er of þurr.
Lundahæra ‘Marginata’ – Luzula sylvatica ‘Marginata’
All harðgerð, sígræn, fjölær jurt. Graskennd jurt með kremhvíta blaðjaðra. Gisin hár á blaðjöðrum. Blómin smá, brún blómhnoð í klasa sem standa upp úr blaðbreiðunni. All þekjandi og skuggþolin. Hentar sem undirgróður undir trjám og runnum í rökum - þurrum jarðvegi.
Garðamaríustakkur – Alchemilla mollis
Mjög harðgerð fjölær jurt. Hæð: 30 - 50 sm. Stór hærð lauf. Stórir drjúpandi blómklasar með fjölda smárra gulgrænna blóma miðsumars. Þekjandi. Þolir hálfskugga. Sáir sér talsvert mikið út.
Álfakollur – Stachys grandiflora
Harðgerður, meðalhá, fjölær jurt. Blómin fjólublá í uppréttum kollum síðsumars. Þolir hálfskugga. Þrífst vel í venjulegri garðmold.
Grænlandsmura – Sibbaldiopsis tridentata
Harðgerð, lágvaxin, sígræn jurt. Hæð 15 sm. Blöðin þrífingruð. Blómin hvít. Blómgast mest allt sumarið. Þrífst best í þurrum, malarbornum jarðvegi á sólríkum stöðum. Hentar í steinhæðir, hleðslur og þess háttar en einnig sem þekjuplanta þar sem jarðvegur er ekki of frjór. Laufið verður gjarnan rauðleitt á veturna. Millibil í breiðuplöntunum: 30 sm. Heimkynni: N-Ameríka þ.m.t. Grænland. Eldra fræðiheiti er Potentilla tridentata.