Snækóróna ‘Þórunn Hyrna’ – Philadelphus coronarius ‘Þórunn Hyrna’

Harðgerður, þéttur, sumargrænn, stórvaxinn runni (3 m). Gulir haustlitir. blómin hvít, stjörnulaga, meðalstór og ilmandi. Blómgast í júlí og fram í ágúst. Þolir hálfskugga.

Harðgerðasta kórónan (Philadelphus sp.). Þrífst í allri frjósamri, framræstri garðmold. Snækóróna ‘Þórunn Hyrna’ sómir sér einstaklega vel stakstæð en hentar einnig í raðir, þyrpingar og aftarlega í beð með blönduðum gróðri. Nokkuð plássfrek. ‘Þórunn Hyrna’ er íslenskt úrvalsyrki úr Lystigarði Akureyrar. Yrkið er kennt við Þórunni Hyrnu landnámskonu í Eyjafirði.

Hindarblómaætt (Hydrangeaceae).

 

Vörunr. a55382cb7e35 Vöruflokkar: ,