Surtartoppur ‘Árni’ – Lonicera nigra ‘Árni’
Harðgerður, meðalstór runni. Hæð um 1,5 – 2,0 m. Laufgast snemma í maí. Laufið áberandi rauðbrúnt við laufgun og fram eftir sumri. Hvít – ljósbleik blóm snemma sumars tvö og tvö saman. Svört, óæt ber þroskast í ágúst. Skuggþolinn. Þolir vel klippingu. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með 80 – 100 sm millibili. Góður í ker / potta einnig t.d. klipptur í kúlur. Úrvals-yrki sem valið var í Þöll úr hópi fræplantna. Blöðin eru rauðari en gengur og gerist hjá surtartoppi. Yrkið er kennt við Árna Þórólfsson starfsmann Skógræktarfélags Hfj. Aðeins fáanlegur í Þöll.
Vörunr.
d909ba137fb7
Vöruflokkar: Runnar, Tré og runnar í pottum
Tengdar plöntur
Blárifs ‘Perla’ – Ribes bracteosum ‘Perla’
Fremur harðgerður, sumargrænn, gisgreinóttur runni. Hæð: 1,5 - 2 m. Laufin fremur stór, handflipótt, 5 til 7 - flipótt með egglaga - egglensulaga, ydda og tennta flipa. Lauf gljáandi á löngum blaðstilk. Gulir haustlitir. Blómin græn-brúnleit í útstæðum klösum. Blómgast í júní. Berin bláhéluð, áberandi í löngum útstæðum klösum. Þroskast í lok ágúst og fram í september. Henta í sultur og þess háttar en sæmileg til átu beint af runnanum.
Blárifs 'Perla' þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Blandið gömlum húdýraáburði eða moltu saman við jarðveginn við gróðursetningu. Gott er að setja álíka lífrænt efni í kringum runnana á fárra ára fresti. Blárifs er all skuggþolið en þroskar mest af berjum í sól. Þrífst betur við ströndina en inn til landsins. Hentar í raðir, þyrpingar, í berjagarðinn og sem undirgróður undir trjám. Millibil um 1 m eða meir.
'Perla' er úrvalsyrki valið af Ólafi S. Njálssyni úr Alaskasafni því er barst til landsins með Óla Val og félögum árið 1985. Heimkynni: Vesturströnd N-Ameríku allt frá S-Alaska í norðri suður til N-Kaliforníu. Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
Blóðrifs ‘Svanur’ – Ribes sanguineum ‘Svanur’
All harðgerður, meðalstór runnir (1,5 - 2,5 m). Rauðir blómklasar snemmsumars (júní). Laufið handsepótt. Stundum þroskast blá, æt ber í kjölfarið. Gulir - rauðgulir haustlitir. Þolir hálfskugga. Þrífst vel í venjulegri garðmold í þokkalegu skjóli. Mjög áberandi í blóma.
Móðurplantan er í garði Svans Pálssonar og Línu, Háukinn, Hfj. Blóðrifs 'Svanur' fer vel í blönduðum beðum með öðrum runnum og fjölærum jurtum. Hentar einnig í raðir og þyrpingar með um 1 m millibili. Þarf nokkurt skjól til að þrífast. Ekki eins harðgert og blóðrifs 'Færeyjar'. Hugsanlegt er að blóðrifs 'Svanur' sé í raun yrkið 'King Edward VII' en móðurplantan í garði Svans og Línu var á sínum tíma fengin gróðrarstöð Skógræktarfélags Rvk, Fossvogi. Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
Bogsýrena – S. komarowii ssp. reflexa ‘Hólmfríður’
Harðgerður, stórvaxinn runni eða lítið tré (3 - 4 m). Blómin fyrst lillableik en síðan bleik í drjúpandi klösum, ilmandi. Blómgast miðsumars (júlí). Móðurtréið stendur í garðinum að Skúlaskeiði 32, Hafnarfirði þar sem Hólmfríður Finnbogadóttir og Reynir Jóhannsson bjuggu lengst af. Hólmfríður var formaður og síðan framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Þallar ehf.
Dúntoppur – Lonicera xylosteum
Harðgerður, þéttur, meðalhár - hávaxinn runni (1,5 - 3,0 m). Blómin smá, fölgul, tvö og tvö saman. Rauð, óæt, samvaxin ber þroskast á haustin. Laufið dúnhært. Gulir haustlitir. Skuggþolinn. Heilbrigður. Dúntoppur hentar sérlega vel sem undirgróður undir stærri trjám. Einnig tilvalinn í skuggsæl horn. Þolir vel klippingu og hentar því í limgerði. Millibil 50 - 100 sm. Sæmilega vind- og saltþolinn. Þrífst í allri venjulegri garðmold. Berin eru eitruð en ekki hættuleg. Heimkynni: Víða í Evrópu, N-Tyrkland og V-Síbería.
Fjalldrapi / Hrís – Betula nana
Harðgerður, íslenskur, lágvaxinn runni (20 - 50 sm). Blöðin smá, nánast kringlótt. Rauðir - rauðgilir haustlitir. Sólelskur. Vex í mólendi og deiglendi víða um land. Hentar í hleðslur, steinhæðir og í rakan jarðveg þar sem sólar nýtur. Blandast gjarnan íslensku ilmbjörkinni (Betula pubescens) og myndar blendinginn skógviðarbróður (Betula x intermedia) sem er algengur í náttúru Íslands sérstaklega á Vesturlandi. Fjalldrapi er ekki algengur í görðum landsmanna. Fjalldrapinn okkar er af íslensku fræi.
Garðakvistill ‘Diabolo’ – Physocarpus opulifolius ‘Diabolo’
Lágvaxinn - meðalstór runni. Laufið dökk-purpurarautt. Ljósir blómsveipir miðsumars. Skærrauðir haustlitir. Þrífst vel í grónum hverfum. Sólelskur. Verður gjarnan fyrir einhverju haustkali. Þolir vel klippingu. Garðakvistill 'Diabolo' fer sérlega vel í blönduðum beðum með ljósari plöntum eða framan við ljósa fleti.
Koparreynir – Sorbus frutescens
Harðgerður meðalhár - hávaxinn runni (2 - 3 m). Brum nær svört. Greinar útsveigðar með tímanum og dálítið drjúpandi. Blöðin dökkgræn, mött, fínleg, stakfjöðruð og allt að 18 sm löng. Smáblaðapör venjulega 11 - 12 talsins. Smáblöð 15 - 24 mm löng alla jafna, tennt, egglaga - lensulaga. Rauðir haustlitir í september. Smáir, hvítir blómsveipir snemmsumars. Hvít - fölbleik ber í stórum klösum þroskast á haustin. Mikið af berjum þroskast á hverju hausti einnig þó sumarið sé slakt!. Koparreynir er "apomictic" smátegund og er því einsleitur upp af fræi.
Koparreynir þrífst í allri venjulegri garðmold sem ekki er of blaut. Koparreynir er glæsilegur stakstæður. Einnig fallegur í röðum og þyrpingum með 1 - 1,5 m millibili. Koparreyni má einnig gróðursetja í limgerði sem eru ýmist klippt eða meira og minna óklippt. Hæfilegt millibil er 50 - 60 sm í limgerði. Koparreynir er fallegastar í fullri sól en þolir vel hálfskugga. Klippið á sumrin en ekki að hausti eða vetri til að forðast reyniátu (Cytospora rubescens). Koparreynir er vinsæll og algengur í íslenskum görðum. Heimkynni: Kína. Líklega frá NV-Gansu. Rósaætt (Rosaceae).
