Fjallarós ‘Hellisgerði’ – R. pendulina ‘Hellisgerði’
Harðgerð, meðalhá runnarós. Blómin fremur smá, einföld, rauðbleik, ljósari nær miðju. Blómgast yfirleitt fyrst rósa hérlendis, gjarnan seinni part júní. Stundum aftur snemma hausts. Daufur ilmur. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk en þolir hálfskugga. Fjallarós ‘Hellisgerði’ hentar stakstæð, fleiri saman eða í bland með öðrum gróðri.
Vörunr.
bb85170477c1
Vöruflokkur: Rósir
Tengdar plöntur
Rós ‘Guðbjörg’ – Rosa ‘Guðbjörg’
Harðgerð, lágvaxin - meðahá runnarós (1,5 m). Laufið dökkgrænt, stakfjaðrað. Rauðir blaðstilkar. Rauð brum. Blómin tvöfölld, dökkrauðfjólublá með ljósari æðum. Ilma. Rauðar nýpur þroskast að hausti. Skriðullt rótarkerfi. Sólelsk. Hentar í runnaþykkni, brekkur (til að binda jarðveg), villigarða og sumarhúsalóðir. Yrkið er upprunið frá Jóhanni Pálssyni fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkur. 'Guðbjörg' er samkvæmt Jóhanni afkvæmi ígulrósarinnar 'Logafold' og R. x kamtschatica.
Rós ‘Lísa’ – Rosa rugosa ‘Lísa’
Harðgerð, í meðallagi hávaxin runnarós (1 - 1,5 m). Blómin stór, hálffyllt - fyllt, bleik og ilmandi. Þroskar rauðar nýpur á haustin. Gulir - rauðgulir haustlitir. Skríður út með rótarskotum. 'Lísa' er íslenskt yrki valið úr efniviði sem hingað barst úr Alaska-leiðangrinum árið 1985. 'Lísa' ber þess öll merki að vera ígulrós (R. rugosa) eða ígulrósablendingur. Þrífst og blómstrar mest á sólríkum stað í vel framræstum, ekki of frjóum jarðvegi sem gjarnan má vera blandaður sandi og möl. Vind- og saltþolin. Hentar í raðir og þyrpingar, til að binda jarðveg í brekkum, villigarða og sumarbústaða-lönd. Millibil 80 - 100 sm.
Rós ‘Louise Bugnet’ – Rosa ‘Louise Bugnet’
All harðgerð, fremur lágvaxin (1 m) runnarós af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin rauðbleik í knúpp en alveg snjóhvít útsprungin og ilmandi. Þroskar vart nýpur. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk. Nánast þyrnalaus. Skríður aðeins út með rótarskotum. Mjög falleg rós. 'Louise Bugnet' fer vel í blönduðum beðum með rósum, runnum og fjölærum jurtum.
Rós ‘Lykkefund’ – Rosa ‘Lykkefund’
Klifurrós. Hæð 2 - 3 m eða meir á góðum stað. Laufið stakfjaðrað, gljáandi. Nánast þyrnalaus. Blómin meðalstór, rjómahvít, hálffyllt, ilmandi í klösum. Þvermál blóma 3 - 5 sm. Blómin eru ljósbleik í knúpp. Gulir fræflar. Blómstrar hérlendis aðallega í ágúst og fram í september. Getur þó byrjað að blómstra í júlí í góðu árferði.
Þarf gott skjól og sólríkan stað helst upp við húsvegg til að þrífast. Gróðursetjið 'Lykkefund' við klifurgrind eða styðjið hana á annan hátt. 'Lykkefund' er seld ágrædd. Gróðursetjið djúpt þannig að ágræðslan fari 10 sm undir jarðvegsyfirborðið. Það er mjög mikilvægt til að tryggja að rósin lifi af veturinn. Gróðursetjið í frjóan, vel framræstan jarðveg blandaðan sandi og lífrænu efni (búfjáráburður/molta). Berið tilbúinn áburð í kringum rósina í lok maí og lok júní. Gott er að setja lag af moltu í rósabeðið annað hvert ár. Klippið í burt kalnar greinar á vorin eða snemma sumars. Greinar sem ekki standa undir sér eru festar á klifurgrind, bundnar upp á prik eða klipptar burt.
Danskt yrki frá Aksel Olsen frá árinu 1930. Sögð vaxin upp af fræi af helenurós (R. helenae) sem ættuð er frá Kína en frjóvguð af "bourbon" rósinni, R. 'Charles Bonnet'/'Zephirine Drouhin'. Rósaætt (Rosaceae).
Rós ‘Örträsk’ – Rosa ‘Örträsk’ / ‘Örtelius’
Harðgerð, meðalhá runnarós (1,5 - 2,0 m). Talin blendingur ígulrósar (R. rugosa) og kanelrósar (R. majalis). Dreifir sér nokkuð út með rótarskotum. Blómin stór, hálffyllt, bleik og ilmandi. Blómgast frá miðju sumri og fram í frost. Þroskar rauðar nýpur sem má nýta til manneldis.
Sólelsk en þolir vel hálfskugga. Millibil 1 m. Hentar stakstæð, í blönduð beð, raðir og þyrpingar. Ættuð frá Lapplandi. Rósaætt (Rosaceae).
Rós ‘Ristinummi’ (járnbrautarrósin) – Rosa ‘Ristinummi’
Harðgerður, þéttur, meðalstór runni. Laufið stakfjaðrað. Blómin stór, einföld, fölbleik, daufur ilmur. Krónublöðin eru gulleit neðst. Blómgast í júlí og ágúst. Rauðar nýpur. Rauðgulir haustlitir. Vaxtarlagið hvelft. Sólelsk. Blómgast mest í sæmilega frjóum vel framræstum, aðeins sendnum eða grýttum jarðvegi í fullri sól. Járnbrautarrósin sómir sér vel í blönduðum runnabeðum, röðum og þyrpingum með tæplega 1 m millibili. Hentar í villigarða og sumarhúsalóðir. Talin vind- og saltþolin. Skríður ekki mikið út með rótarskotum. 'Ristinummi' er að öllum líkindum blendingur ígulrósar (R. rugosa) og þyrnirósar (R. pimpinellifolia). Kennd við bæinn Ristinummi í Finnlandi þar sem Peter Joy fann hana við járnbrautarstöðina í bænum í kringum árið 1996.
Rós ‘Schneekoppe’ – Rosa rugosa ‘Schneekoppe’
Harðgerð lágvaxin - meðalhá runnarós (1 - 1,5 m). Blöðin fremur mött, stakfjöðruð, ljósgræn. Talsvert þyrnótt. Blómin stór, fyllt, föl-lillableik - hvít, ilmandi, ögn drjúpandi (rósirnar þungar). Þroskar lítið eða ekki nýpur. Gulir haustlitir. Sólelsk. 'Schneekoppe' hentar í blönduð runna- og rósabeð, raðir, þyrpingar, ker, villigarða og sumarhúsalóðir. All vind- og saltþolin. Millibil 80 - 100 sm. Úr smiðju Karl Baum, Þýskalandi.
Þyrnirós ‘Katrín Viðar’ – R. pimpinellifolia ‘Katrín Viðar’
Harðgerður, þéttur, frekar lágvaxinn runni (1,5 m). Laufið blágrænt fínlegt, stakfjaðrað. Blómin stór, einföld, hvít en ljósbleik í knúpp. Ilmar. Blómstrar í nokkrar vikur aðallega í júlí í venjulegu árferði. Blómsæl. Dökkbrúnar - svartar nýpur þroskast á haustin. Græn fram á haust. Rauðgulir haustlitir í október. Sólelsk. Skríður eitthvað út með rótarskotum.
Nægjusöm. Sæmilega vind- og saltþolin. Þrífst vel í sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi sem má gjarnan vera sand- og malarborinn. Blandið gömlu taði eða moltu saman við jarðveginn fyrir gróðursetningu. Þolir ágætlega klippingu. Blómstrar á eldri greinar og því hefur klipping að vetri eða á vorin áhrif á blómgun það árið. Fjarlægið eldri greinar alveg niður við jörð. Þannig auðveldið þið rósarunnanum að endurnýja sig. Aðallega notuð í þyrpingar, raðir eða í blönduð runnabeð. Millibil allt að 70 - 100 sm.
Íslenskt úrval úr Grasagarði Reykjavíkur frá árinu 1972. Kom upp af fræi frá grasagarðinum í Dresden, Þýskalandi. Fræmóðir var skráð R. spinossima var. altaica en fræðiheitið R. spinossima er einnig mikið notað á þyrnirós. Yrkið er tileinkað minningu hjónanna Jóns Sigurðssonar skólastjóra og Katrínar Viðar sem árið 1961 gáfu Reykjavíkurborg safn íslenskra jurta og varð sú gjöf upphafið af Grasagarðinum. Vinsæl hérlendis sérstaklega á opnum svæðum sveitarfélaganna.
Þyrnirós vex villt víða í Evrópu þar með talið á Íslandi. Einnig finnst hún í Atlasfjöllum í N-Afríku, Tyrklandi, Kákasus og V-Asíu. Afbrigðið var. altaica er ættað frá Síberíku. Rósaætt (Rosaceae).
