Purpuratoppur – Lonicera maximowiczii var. sachalinensis.

Harðgerður, þéttur, meðalhár runni (2 m). Laufin gagnstæð. Bronslituð fyrst á vorin síðan græn. Blómin fremur smá, tvö og tvö saman, rauðbleik. Blómgast miðsumars. Aldinið rautt ber sem þroskast í ágúst – september. Gulir haustlitir. Þolir hálfskugga. Þrífst í allri sæmilega frjórri, framræstri garðmold. Hentar í runnaþyrpingar og þess háttar. Millibil 50 – 100 sm. Sjaldgæfur hérlendis en lofar góðu. Móðurplönturnar okkar eru af græðlingum sem við fengum frá Jóhanni Pálssyni fyrrverandi garðyrkjustjóra Rvk. Runninn hans í Kálfamóa, Keldum, Grafarvogi, Rvk er ættaður úr Lystigarði Akureyrar. Heimkynni: Mansjúría þar með talið Sakalíneyja og Kórea.

Vörunr. 530482ca06d3 Vöruflokkur: