Sveighyrnir ‘Roði’ – Cornus sericea ‘Roði’
Fremur harðgerður, meðalhár, sumargrænn runni (1,5 – 2,2 m). Blöð gagnstæð, egglaga, 5 – 12 cm á lengd og 2,5 – 6 cm á breidd. Heilrennd. Rauðir og gulir haustlitir. Litlir hvítir blómsveipir birtast snemmsumars. Hvít – ljósblá ber þroskast á haustin í kjölfarið. Sprotar og ungar greinar rauðar. Sólelskur en þolir hálfskugga.
Þrífst best í sæmilega frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Í sínum heimkynnum vex sveighyrnir gjarnan í deigu eða jafnvel blautu landi. Sé runninn óklipptur sveigjast greinarnar með tímanum niður og slá rótum. Til að örva myndun nýrra rauðra sprota er tilvalið að klippa í burt eldri greinar alveg niður við jörð seinni part vetrar.
Sveighyrnir fer vel í blönduðum runna- og blómabeðum en einnig í nokkrir saman í röðum og þyrpingum með um 80 – 100 sm millibili. Hentar einnig í hefðbundin limgerði með um 50 sm millibili. Ekki síður skrautlegur á veturna vegna rauða barkarlitarins. Greinar af hyrni eru gjarnan notaðar til skreytinga. Yrkið ‘Roði’ er úrvalsyrki sem barst hingað með efnivið frá Alaska þegar Óli Valur Hansson og félagar fóru þangað í söfnunarferð haustið 1985.
Náttúruleg heimkynni sveighyrnis eru auk Alaska, Kanada og norðanverð Bandaríkin þvert yfir meginland N-Ameríku. Skollabersætt (Cornaceae).
