Rós ‘Mrs John McNab’ – Rosa ‘Mrs John McNab’
All harðgerður eða harðgerður ígulrósablendingur. Blómin eru fyllt, fölbleik og ilmandi. Blómgast upp úr miðju sumri. Runnarós. Hæð: 1,5 m. Sólelsk. Úr smiðju Skinner, Kanada, 1941.
Vöruflokkur: Rósir
Tengdar plöntur
„Páfarós“ – Rosa ‘Poppius’
Mjög harðgerð, meðalstór runnarós. Þyrnirósablendingur. Blómin fremur smá, hálffyllt, lillableik. Daufur ilmur. Smágerðar, dökkar nýpur. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk. Ekki svo skriðul. Fer vel í blönduð runnabeð, í raðir, þyrpingar og í sumarhúsalandið. Ein allra harðgerðasta rósin sem völ er á. 'Poppius' er sögð blendingur fjallarósar (R. pendulina) og þyrnirósar (R. pimpinellifolia). Úr smiðju Carl Stenberg, Svíþjóð frá árinu 1838. Hann skýrði yrkið í höfuðið á vini sínum Dr Gabriel Poppius sem var finnskur grasafræðingur og stjórnaði sænsku Konunglegu landbúnaðarakademíunni. Millibil 70 - 80 sm.
Fjallarós ‘Lina’ – Rosa pendulina ‘Lina’
Harðgerður, meðalhár, þéttur runni. Hæð og breidd um 2 m. Dreifir sér eitthvað með rótarskotum. Sprotar eru grænir eða rauðbrúnir og nánast þyrnalausir. Greinar í fyrstu uppréttar en síðan með tímanum útsveigðar. Axlarblöð kirtilhærð á jöðrunum. Laufið fjaðrað og matt. Smáblöðin eru 5 - 11 talsins, oddbaugótt, tvísagtennt og 2 - 6 sm á lengd hvert og eitt. Smáblöðin eru dúnhærð. Blómin einföld, fremur smá, rauðbleik/fjólubleik og ilmandi. Krónublöð ljósari nær miðju. Með fyrstu rósum að byrja að blómstra á sumrin. Fyrstu blómin sjást gjarnan í júní. Blómgast annars í júlí. Ef sumarið er vætusamt og kalt blómstrar hún fram í ágúst eins og gerðist sumarið 2024. Rauðar, smáar, aflangar nýpur þroskast á haustin. Gulir - rauðgulir haustlitir.
Sólelsk en þolir vel hálfskugga. All vind- og saltþolin. Þrífst í öllum sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi. Blandið moltu eða stöðnu hrossataði saman við jarðveginn þar sem gróðursetja á fjallarós.
Fjallarós 'Lina' hentar sérlega vel í raðir /limgerði og þyrpingar. Einnig falleg stakstæð. Hentar í sumarhúsalóðir og villigarða þar sem hún þolir vel samkeppni við t.d. lúpínu. Þolir vel hóflega klippingu. Millibil um eða yfir 1 m. Í limgerði er 50 sm millibil hæfilegt. Þar sem fjallarós blómstrar á eldri greinar er heppilegt að klippa fjallarósalimgerði strax eftir blómgun í júlí eða ágústbyrjun. Fái hún að vaxa meira og minna frjálst felst snyrting aðallega í því að klippa í burt gamlar greinar alveg niður við jörð.
'Lina' er norskt úrvalsyrki frá Harstad sem m.a. þrífst í Finnmörku, N-Noregi. Annars eru náttúruleg heimkynni fjallarósar í fjöllum Mið- og S-Evrópu. Rósaætt (Rosaceae).
Ígulrós ‘Logafold’ – Rosa rugosa ‘Logafold’
Rósin 'Logafold' er afrakstur rósakynbóta Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar. 'Logafold' er harðgerð og þétt runnarós. Vind- og saltþolin enda af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin eru stór, léttfyllt, fallega skálformuð, rauðfjólublá - bleik og ilmandi. Langur blómgunartími. Rauðar nýpur. Sólelsk en þolir hálfskugga. Hæð um 1,5 m. Framleidd og seld í Þöll á eigin rót. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 sm millibili. Getur einnig vaxið "villt" í sumarhúsalöndum og þess háttar. 'Logafold' er úr smiðju Jóhanns Pálssonar grasafræðings. Hún er afkomandi R. 'Charles Albanel x ?.
Ígulrós / skráprós – Rosa rugosa
Harðgerður, lágvaxinn - meðalhár (1 - 1,5 m), heilbrigður, sumargrænn runni. Laufin eru stakfjöðruð, smáblöðin oftast sjö talsins, 8 - 15 sm löng. Smáblöðin sporöskjulaga, 3 - 4 sm á lengd og tennt. Gulir haustlitir. Greinar og blaðstilkar þyrnótt. Blómin stór, einföld, yfirleitt rauðfjólublá, ilmandi, venjulega samsett úr fimm krónublöðum. Byrjar að blómgast í júlí og blómstrar gjarnan fram á haust. Stórar rauðar, flathnöttóttar nýpur þroskast á haustin. Nýpurnar sitja gjarnan á greinunum fram á vetur sé þeim ekki safnað eða étnar af fuglum.
Sólelsk. Vind- og saltþolin. Þrífst vel í sendnum og malarbornum jarðvegi. Blandið moltu eða gömlu taði við jarðveginn við gróðursetningu. Hentar ekki á blauta staði. Skríður talsvert út með rótarskotum. Tilvalin til að binda jarðveg t.d. í brekkum, röskuðum svæðum og þess háttar. Hentar í runnaraðir/limgerði á vindasömum stöðum við sjávarsíðuna. Millibil 50 sm en meira ef rósin fær að vaxa óklippt. Ef hún er klippt mikið blómstrar hún minna en ella. Ígulrós hentar til framleiðslu á nýpum sem nota má í te, sultu, grauta og fleira. Einnig nefnd "garðarós", "skráprós", "nýpurós og "hansarós". Hansarós (R. rugosa 'Hansa') er vinsælt yrki af ígulrós með þéttfylltum, rauðfjólubláum blómum sem sjaldan þroskar nýpur. Fjallað er sérstaklega um hansarós hér á síðunni.
Ígulrósirnar okkar eru vaxnar upp af fræi sem tínt hefur verið hérlendis. Við framleiðum og seljum nokkur yrki af ígulrós/ígulrósablendingum sem eru með hálffylltum og fylltum blómum eins og 'Fönn', 'Hansa', Logafold', 'Ritausma' og fleiri sem fjallað er um sérstaklega hér á grodrarstod.is.
Ígulrós vex aðallega með ströndum fram þar sem hún vex villt. Upprunanleg heimkynni ígulrósar eru í A-Asíu nánar tiltekið í NA-Kína, Japan, Kóreu og SA-Síberíu. Í dag vex ígulrós víða villt í Evrópu, N-Ameríku og S-Ameríku og er þar sums staðar talin ágeng. Hefur ekki sáð sér út hérlendis svo vitað sé. Þó hafa plöntur fundist utan garða hérlendis t.d. í Vík í Mýrdal. Það gætu allt eins verið gróðursettar plöntur eða vaxið upp þar sem garðaúrgangur hefur verið losaður. Rósaætt (Rosaceae).
Rós ‘Lísa’ – Rosa rugosa ‘Lísa’
Harðgerð, í meðallagi hávaxin runnarós (1 - 1,5 m). Blómin stór, hálffyllt - fyllt, bleik og ilmandi. Þroskar rauðar nýpur á haustin. Gulir - rauðgulir haustlitir. Skríður út með rótarskotum. 'Lísa' er íslenskt yrki valið úr efniviði sem hingað barst úr Alaska-leiðangrinum árið 1985. 'Lísa' ber þess öll merki að vera ígulrós (R. rugosa) eða ígulrósablendingur. Þrífst og blómstrar mest á sólríkum stað í vel framræstum, ekki of frjóum jarðvegi sem gjarnan má vera blandaður sandi og möl. Vind- og saltþolin. Hentar í raðir og þyrpingar, til að binda jarðveg í brekkum, villigarða og sumarbústaða-lönd. Millibil 80 - 100 sm.
Rós ‘Louise Bugnet’ – Rosa ‘Louise Bugnet’
All harðgerð, fremur lágvaxin (1 m) runnarós af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin rauðbleik í knúpp en alveg snjóhvít útsprungin og ilmandi. Þroskar vart nýpur. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk. Nánast þyrnalaus. Skríður aðeins út með rótarskotum. Mjög falleg rós. 'Louise Bugnet' fer vel í blönduðum beðum með rósum, runnum og fjölærum jurtum.
