Hjartarfífill – Doronicum orientale
Harðgerð, fjölær jurt. Laufið hjartalaga eða hóflaga og gróftennt. All þekjandi. Gular blómkörfur vaxa upp í 40 – 50 sm hæð í maí – júní. Ein og ein karfa á það til að birtast fram á haust. Þolir hálfskugga. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 50 – 60 sm millibili. Algengur og auðræktaður í allri venjulegri garðmold. Ættaður frá SA-Evrópu og hluta SV-Asíu. Ekki frá A-Asíu eins og fræðiheitið gæti vísað til! Sagður eitraður og því ekki hæfur til manneldis.
Vöruflokkur: Fjölærar jurtir
Tengdar plöntur
Bláfífill – Cicerbita alpina
Harðgerð, hávaxin, fjölær jurt. Blómkörfurnar fjólubláar með eingöngu tungukrónum í löngum greinóttum toppum. Laufið minnir á lauf túnfífils en stórvaxnara. Getur þurft uppbindingu. Þarf frjóan, rakaheldinn jarðveg. Blómgast miðsumars. Á það til að sá sér eitthvað út. Þolir vel hálfskugga. Hentar aftarlega í blóma- og runnabeð. Heimkynni: Fjalllendi Evrópu, austur til Úralfjalla í Rússlandi.
Burnirót – Rhodiola rosea
Mjög harðgerður, íslenskur, fjölær þykkblöðungur. Laufið gráleitt. Vex upp af gildum jarðstönglum. Karlblóm gulleit en kvenblóm rauðleit. Sólelsk. Þrífst vel í þurrum jarðvegi. Burnirót hentar aðallega í hleðslur, steinhæðir, ker og þess háttar. Burnirót á sér langa sögu sem lækninga- og heilsujurt.
Piparmynta – Mentha x piperita
All harðgerð, fjölær jurt. Hæð um 35 - 60 sm. Ný lauf áberandi dökk-purpurarauð. Blómin lillablá. Birtast seint og stundum ekki. Ófrjór blendingur en skríður talsvert út með jarðrenglum. Ilmandi krydd- og tejurt. Þrífst best í frjósömum og rökum jarðvegi. Getur vaxið með rótarkerfið ofan í vatni við lækjarbakka. Þolir vel hálfskugga. Piparmynta er ómissandi hluti af matjurtagarðinum. Einnig tilvalinn til ræktunar í pottum. Þarf nægt vatn til að þrífast. Lauf og blóm eru nýtt fersk og þurrkuð.
Venusvagn / Bláhjálmur – Aconitum napellus
Harðgerð, all hávaxin fjölær jurt. Hæð allt um og yfir 1 m. Blómin dökkfjólublá síðsumars. Mjög eitraður sé hans neitt. Þolir vel hálfskugga. Venusvagn er mjög vindþolinn og leggst ekki niður í roki og þarf því ekki uppbindingu. Þrífst vel í venjulegri garðmold. Þolir vel hálfskugga. Hentar í blönduð blóma- og runnabeð. Stundum plantað í raðir til að afmarka svæði. Notið hanska þegar þið meðhöndlið venusvagn.
