Renglurós ‘Dart’s Defender’ – Rosa x rugotida ‘Dart’s Defender’
Harðgerð, sumargræn runnarós. Hæð: 70 – 100 cm. Laufið stakfjaðrað, áberandi gljáandi og um 10 cm á lengd. Laufið situr stakstætt á greinunum. Rauðgulir haustlitir. Þéttþyrnótt. Blómin meðalstór, rauðfjólublá – lillableik, hálffyllt og ilmandi. Blómin eru yfirleitt nokkur saman í klasa. Blómstrar frá miðju sumri og fram á haust. Þroskar gjarnan rauðar nýpur á haustin. Heilbrigð rós.
Sólelsk. Þrífst best í sæmilega frjóum, vel framræstum jarðvegi sem gjarnan má vera blandaður sandi og möl. Hentar í raðir og þyrpingar og í bland með öðrum runnum. Millibil um 1 m. Skríður eitthvað út með rótarskotum. ‘Dart’s Defender’ er all vind- og saltþolinn og hentar því við sjávarsíðuna og á opnum svæðum.
‘Dart’s Defender’ er tegundablendingur hansarósar/ígulrósar (R. rugosa ‘Hansa’) og brúðurósar (R. nidita). Hollenskt yrki frá árinu 1971. Rósaætt (Rosaceae).
