Rjúpuvíðir ‘Þórhalla’ – Salix glauca ‘Þórhalla’
Mjög harðgerður, meðalstór runni. Hæð um 1 – 1,3 m. Lauf og sprotar gráloðin. Gulir haustlitir. Sólelskur. Vind- og saltþolinn. Minnir á loðvíði (S. lanata) en laufið á rjúpuvíði er að jafnaði smærra. Engin axlarblöð eru á rjúpuvíði eins og eru á loðvíði. Rjúpuvíðir ‘Þórhalla’ sómir sér vel í blönduðum beðum með öðrum gróðri en einnig í röðum og þyrpingum. Millibil um 80 sm. Þolir vel klippingu. Yrkið er kennt við Þórhall Jónsson kaupmann en hann var m.a. mikilvirkur í Dalíuklúbbnum. Rjúpuvíðir ‘Þórhalla’ mun upphaflega hafa komið hingað til lands frá Grænlandi en þar vex rjúpuvíðir villtur. Auk Grænlands er rjúpuvíðir villtur víða í N-Ameríku, N-Evrópu og í N-Asíu. Mjög breytileg tegund.
Vörunr.
8919616a6be6
Vöruflokkar: Runnar, Skógarplöntu-bakkar, Tré og runnar í pottum
Tengdar plöntur
Alaskayllir / Rauðyllir – Sambucus racemosa ssp. arborescens
Harðgerður, stórvaxinn, grófur runni. Hæð: 3-5 m. Blómin mörg saman í kremuðum klasa í maí - júní. Berin eldrauð í ágúst. Fuglar sækja mjög í berin. Brumin gagnstæð. Laufblöðin stór, stakfjöðruð. Laufgast snemma á vorin. Gulir - brúnir haustlitir. Hraðvaxta. Mjög skuggþolinn. Þrífst í frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Sáir sér gjarnan út þar sem aðstæður leyfa. Góður til uppfyllingar í skuggsæl horn o.þ.h. Getur hæglega vaxið yfir aðrar plöntur og skyggt þær út. Virðist nokkuð saltþolinn. Þolir vel klippingu. Millibil 1,5 - 2,0 m. Berin má nýta í sultur, vín og fleira séu þau soðin og fræið, sem er eitrað, sigtað frá. Alaskayllir er sá yllir sem er algengastur hérlendis. Sú deilitegund (S. racemosa ssp. arborescens) eða afbrigði (S. racemosa var. racemosa) er ættað frá vestanverðri N-Ameríku.
Birkikvistur – Spiraea betulifolia
Mjög harðgerður, fremur lágvaxinn (1 m), þéttur runni. Blómin hvít í sveipum miðsumars. Rauðir haustlitir. Þolir hálfskugga. Vind- og saltþolinn. Hentar í potta, raðir og þyrpingar. Þolir vel klippingu. Klipptir birkikvistar blómstra minna en ella. Bil milli plantna ætti ekki að vera minna en 60 sm. Mjög algengur og vinsæll hérlendis. Þetta yrki gengur undir heitunum 'Birkikvistur', 'Ísland' og 'Island' og er fáanlegt víða í Evrópu.
Blátoppur ‘Þokki’ – Lonicera caerulea ‘Þokki’
Mjög harðgerður, þéttur, fremur hægvaxta runni. Laufið blágrænt, gagnstætt. Blómin smá, gulgræn og lítið áberandi. Aldinið blátt ber. Ekki talin góð til átu. Blátoppur 'Þokki' er skuggþolinn. Hentar í raðir, þyrpingar, limgerði og til uppfyllingar í skuggsæl horn og undir trjám. Lokar sér vel niður að jörð og heldur þannig niðri illgresi. Almennt heilbrigður. Þrífst vel í allri venjulegri garðmold. Millibil í limgerði um 50 sm eða meir.
Blóðrifs ‘Svanur’ – Ribes sanguineum ‘Svanur’
All harðgerður, meðalstór runnir (1,5 - 2,5 m). Rauðir blómklasar snemmsumars (júní). Laufið handsepótt. Stundum þroskast blá, æt ber í kjölfarið. Gulir - rauðgulir haustlitir. Þolir hálfskugga. Þrífst vel í venjulegri garðmold í þokkalegu skjóli. Mjög áberandi í blóma.
Móðurplantan er í garði Svans Pálssonar og Línu, Háukinn, Hfj. Blóðrifs 'Svanur' fer vel í blönduðum beðum með öðrum runnum og fjölærum jurtum. Hentar einnig í raðir og þyrpingar með um 1 m millibili. Þarf nokkurt skjól til að þrífast. Ekki eins harðgert og blóðrifs 'Færeyjar'. Hugsanlegt er að blóðrifs 'Svanur' sé í raun yrkið 'King Edward VII' en móðurplantan í garði Svans og Línu var á sínum tíma fengin gróðrarstöð Skógræktarfélags Rvk, Fossvogi. Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
Bogsýrena – S. komarowii ssp. reflexa ‘Hólmfríður’
Harðgerður, stórvaxinn runni eða lítið tré (3 - 4 m). Blómin fyrst lillableik en síðan bleik í drjúpandi klösum, ilmandi. Blómgast miðsumars (júlí). Móðurtréið stendur í garðinum að Skúlaskeiði 32, Hafnarfirði þar sem Hólmfríður Finnbogadóttir og Reynir Jóhannsson bjuggu lengst af. Hólmfríður var formaður og síðan framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Þallar ehf.
Garðakvistill ‘Diabolo’ – Physocarpus opulifolius ‘Diabolo’
Lágvaxinn - meðalstór runni. Laufið dökk-purpurarautt. Ljósir blómsveipir miðsumars. Skærrauðir haustlitir. Þrífst vel í grónum hverfum. Sólelskur. Verður gjarnan fyrir einhverju haustkali. Þolir vel klippingu. Garðakvistill 'Diabolo' fer sérlega vel í blönduðum beðum með ljósari plöntum eða framan við ljósa fleti.
Þorrarunni ‘Dawn’ – Viburnum x bodnantense ‘Dawn’
Sumargrænn, meðalhár runni (1,5 - 2,5 m). Ung lauf bronslituð. Þorrarunni blómgast að vetri til eða réttara sagt hann getur blómgast frá hausti og fram á vor. Blómin eru rauð í knúpp en bleik útsprungin mörg saman í sveip, ilmandi. Þolir vel hálfskugga. Þorrarunni er glæsilegur stakstæður en einnig fleiri saman í þyrpingu með um 1 m millibili. Þorrarunni virðist harðgerður á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Fremur sjaldgæfur í ræktun enn sem komið er.
