• Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
Gróðrarstöð Gróðrarstöð
  • Heim
  • Plöntuleit
  • Fréttir
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Opnunartími
Search
Menu
Gróðrarstöð Gróðrarstöð
Stækka mynd
Heim Tré og runnar í pottum Þyrnirós (Lóurós) ‘Lovísa’ – Rosa pimpinellifolia ‘Lovísa’
Meyjarós 'Kristine' - Rosa moyesii 'Kristine'
Back to products
Einir - Juniperus communis - Undirhlíðar-Hfj

Þyrnirós (Lóurós) ‘Lovísa’ – Rosa pimpinellifolia ‘Lovísa’

Sérlega harðgerður, þéttur, fremur lágvaxinn runni. Hæð um 1 m eða rúmlega það. Laufið blágrænt, fínlegt, stakfjaðrað. Árssprotar rauðir, mikið þyrnóttir. Blómin meðalstór, hvít, einföld og ilmandi. Blómgast í nokkrar vikur miðsumars. Blómviljug. Dökkbrúnar – svartar nýpur þroskast á haustin. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk. Vind- og saltþolin. Skríður eitthvað út með rótarskotum.

Lóurós er nægjusöm. Þrífst vel í ekki of frjóum jarðvegi og vel framræstum sem gjarnan má vera sand- og malarborinn. Lóurós er kjörin í raðir, þyrpingar, sumarhúsalandið og opin svæði. All vind- og saltþolin. Millibil 80 – 100 sm.

Ólafur S. Njálsson, Nátthaga valdi þessa rós árið 1985 úr 66 sáðplöntum sem hann fékk hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur, Fossvogi á áttunda áratug síðustu aldar. Plönturnar voru á sínum tíma gróðursettar í limgerði á Seltjarnarnesi og bar ‘Lovísa’ af hvað varðar harðgerði og blómgun. Rósina skírði hann í höfuðið á móður sinni Lovísu Margréti Marinósdóttur. Plönturnar munu hafa vaxið upp af erlendu fræi sem merkt var R. pimpinellifolia var. altaica. Afbrigðið var. altaica hefur stundum verið nefnt hlíðarós.

Lóurós algeng hérlendis sérstaklega á opnum svæðum sveitarfélaga. Lóurós er að mörgu leyti dæmigerð þyrnirós. Náttúruleg heimkynni þyrnirósar eru í stórum hluta Evrópu og þar með talið Ísland og NV-Afríku. Afbrigðið var. altaica er ættað frá Síberíu. Rósaætt (Rosaceae).

Vörunr. 6d3fdd7bb87e Vöruflokkar: Rósir, Tré og runnar í pottum
Share:

Tengdar plöntur

Birkikvistur – Spiraea betulifolia

Mjög harðgerður, fremur lágvaxinn (1 m), þéttur runni. Blómin hvít í sveipum miðsumars. Rauðir haustlitir. Þolir hálfskugga. Vind- og saltþolinn. Hentar í potta, raðir og þyrpingar. Þolir vel klippingu. Klipptir birkikvistar blómstra minna en ella. Bil milli plantna ætti ekki að vera minna en 60 sm. Mjög algengur og vinsæll hérlendis. Þetta yrki gengur undir heitunum 'Birkikvistur', 'Ísland' og 'Island' og er fáanlegt víða í Evrópu.

Jörfavíðir – Salix hookeriana ‘Katla’, ‘Gáski’, ‘Taða’ og ‘Sandi’

Mjög harðgerður, hávaxinn runni eða lágvaxið tré. Hæð: 2,5 - 4,5 m. Laufið heilrennt, yfirleitt sporöskjulaga og gljándi að ofan. Í fyrstu er laufið áberandi hært en síðan nær hárlaust. Sprotar ljósbrún-hærðir. Blómgast fyrir laufgun í apríl. Gulir haustlitir. Frýs stundum grænn. Sérbýll. Sólelskur. Jörfavíðir er almennt heilbrigður og laus við asparglyttu og ryð. Fallegir karlreklar skreyta 'Gáska' og 'Sanda' á vorin. Þeir henta því vel afskornir í vorskreytingar. Jörfavíðir er sérlega hentugur í limgerði og skjólbelti á vindasömum stöðum og þar sem gætir saltákomu af hafi og vegum. 1-3 plöntur eru gróðursettar á hvern m. Jörfavíðir hentar almennt best í lágsveitum. Getur orðið fyrir haustkali inn til landsins. Klippið jörfavíði-limgerði/skjólbelti seinni part vetrar til að halda þeim í formi. Einnig getur þurft að klippa að sumri. 'Katla' er grófust og mest upprétt. 'Taða' er eins og nafnið gefur til kynna hálfkúlulaga hvað vaxtarlag varðar. 'Töðu' þarf ekki að klippa þar sem pláss er nægt til að halda henni þéttri niður við jörðu. Jörfavíðir þrífst best í sæmilega frjósömum og rakaheldnum jarðvegi. Má vera sendinn og malarborinn. Annars nægjusamur. Jörfavíðir er kenndur við breska grasafræðinginn Sir William Jackson Hooker (1785 - 1865). Heimkynni: Strandhéröð á vesturströnd N-Ameríku. Allt frá Alaska í norðri suður til Kaliforníu. Íslensku yrkin eru öll ættuð frá Alaska. Víðisætt (Salicaceae).

Hesli – Corylus avellana – kvæmi: frönsku Alparnir

Sumargrænn runni. Óvíst er hversu hávaxið hesli getur orðið hérlendis en nú þegar eru til um 2 m háir runnar á höfuðborgarsvæðinu og ef til vill víðar. Hesli blómgast snemma vors. Blómin minn á rekla birkis (Betula spp.) og elris (Alnus spp.) enda er hesli af bjarkætt (Betulaceae). Hesli er tvíkynja en vissara er að hafa fleiri runna saman til að tryggja frævun og síðan frjóvgun. Óvíst er hvort heslihnetur nái að þroskast hérlendis þó það sé ekki ósennilegt í góðu árferði á hlýjum stöðum. Hesli þrífst best í rakaheldnum og steinefnaríkum jarðvegi. Þolir hálfskugga.

Baunatré – Caragana arborescens

Harðgerður runni eða lítið tré (1,5 - 2,5 m). Blómin smá, gul, ilmandi. Þau eru æt og má nota í salat. Aldinið belgur með nokkrum ætum baunum/fræjum. Sjóðið fræin áður en þeirra er neytt. Laufið er fjaðrað, mjög ljóst, nánast hvítt á vorin og fyrri part sumars en síðan áberandi gulgrænt. Axlarblöð lík þyrnum. Greinar grænleitar. Sólelskt. Hægvaxta. Lifir í sambýli við niturbinandi bakteríur. Baunatré gerir því litlar kröfur til jarðvegs. Baunatré sómir sér vel stakstætt í garðinum eða í blönduð beð með öðrum gróðri. Einnig má planta baunatré í klippt eða óklippt limgerði. Gengur einnig undir nöfnunum "síberískt baunatré" og "kergi". Náttúruleg heimkynni baunatrés er M-Asía.

Bergreynir – Sorbus x ambigua

Harðgert lítið tré eða all stór runni (2 - 5 m). Ýmist ein- eða margstofna. Lauf sporöskjulaga og sagtennt. Blómin eru rauðbleik í hálfsveip fyrri part sumars. Rauð ber í klösum í september. Rauðgulir haustlitir. Minnir mjög á úlfareyni (S. x hostii). Blöð bergreynis eru minna hærð og meira gljáandi samanborið við úlfareyni, einnig á neðra borði. Vindþolinn og trúlega saltþolinn einnig. Bergreyni sómir sér stakstæður, í beðum með öðrum gróðri, í raðir og þyrpingar. Mætti jafnvel nota í klippt limgerði. Tilvalinn í sumarhúsalóðina. Millibil 1,5 - 2 m. Í limgerði 50 - 100 sm. Byrjar ungur að blómgast og þroska ber, fyrr samanborið við úlfareyni. Bergreynir er náttúrulegur blendingur seljureynis (Sorbus aria) og blikreynis (S. chamaemespilus). Vex villtur í fjalllendi Mið - S-Evrópu. Íslenski stofninn er líklega allur kominn af tré/trjám í Grasagarði Rvk sem uxu upp af fræi frá Haute-Savoie í frönsku Ölpunum og sáð var til árið 1989.

Gráelri / Gráölur – Alnus incana

Harðgert, hraðvaxta, sumargrænt, venjulega einstofna tré. Hæð 7 - 15 m. Getur sjálfsagt orðið enn hærra á góðum stöðum hérlendis. Stundum runni við erfiðar aðstæður. Börkur grár og sléttur. Brum stilkuð. Laufið egglaga, mattgrænt og tennt. Nýtt lauf á vorin og fyrri part sumars gjarnan rauðbrúnleitt. Haustlitir ekki áberandi en laufið verður gjarnan brúnleitt áður en það fellur. Lifir í sambýli við niturbindandi bakteríur sem gera elrinu kleift að lifa og vaxa í ófrjóum jarðvegi. Þolir að vaxa í deiglendi. Sólelskt. Vindþolið en ekki talið sérlega saltþolið. Karlreklar birtast strax á haustin og vaxa fram síðvetrar eða snemma vors. Drjúpandi, 5 - 7 sm, gulbrúnir. Kvenreklar eru fullþroska að hausti. Líkjast litlum könglum. Dökkbrúnir. Stundum ber talsvert á rótarskotum hjá gráelri. Hentar stakstætt, í raðir, þyrpingar og til skógræktar og uppgræðslu. Einnig stundum gróðursett sem götutré hérlendis. Millibil að minnsta kosti 3 m. Gráelrið okkar er mest megnis ættað frá Hallormsstað og Egilsstöðum. Heimkynni gráelris (A. incana subsp. incana) er Evrópa og NV-Asía. Elrivendill (Taphrina alni) er gjarnan áberandi á kvenreklum gráelris. Bjarkarætt (Betulaceae).

Alaskasýprus – Cupressus nootkatensis

Lágvaxið, sígrænt tré. Gjarnan líkari runna fyrstu árin. Toppurinn og smágreinar áberandi drjúpandi. Barrið hreisturlaga, blágrænt - gulgrænt. Könglar kúlulaga á stærð við bláber. Dökkbláir fullþroska. Þokkafullur og jafnvel draugalegur að sjá. Þarf nokkurt skjól. Fremur skuggþolinn. Þolir vel klippingu. Almennt talinn harðgerðasti sýprusinn. Óvíst er hveru hár alaskasýprus getur orðið hérlendis. Reikna má með 6 - 7 m hæð á bestu stöðum í skógarskjóli. Getur orðið talsvert breiður. Alaskasýprus þrífst í skjólgóðum görðum og trjálundum. Hentar í beð og þyrpingar með öðrum sígrænum runnum og smátrjám. Einnig framan við og jafnvel undir stærri trjám. Þrífst í allri venjulegri, framræstri garðmold. Framleiðum eingöngu alaskasýprus af íslensku fræi. Einnig nefndur Callitropsis nootkatensis. Heimkynni: Vesturströnd N-Ameríku. Allt frá Alaska suður til N-Kaliforníu. Grátviðarætt (Cupressaceae).

Blágreni – Picea engelmannii

Harðgert, hávaxið, keilulaga, sígrænt barrtré. Nýja barrið bláleitt, ekki eins stingandi eins og barr sitkagrenis (Picea sitchensis). Gömul tré hérlendis þroska stundum köngla. Fremur hægvaxta. Krónan gjarnan fremur mjóslegin. Þolir hálfskugga. Þrífst betur inn til landsins en síður við sjávarsíðuna. Sitkalús getur verið vandamál. Blágreni er glæsilegt stakstætt tré. Sómir sér einnig í þyrpingum með að minnsta kosti 3 m millibili. Úrvals jólatré enda barrheldið. Víða nýtt til skógræktar sérstaklega norðan- og austanlands. Blágreni þykir all gott timburtré og viðurinn sagður léttur en fremur sterkur. M.a. nýtt í ýmis hljóðfæri. Blágreni er fyrst og fremst háfjallatré. Heimkynni blágrenis eru aðallega í Klettafjöllum og Fossafjöllum (Cascade Range) N-Ameríku. Vex þar víða upp að skógarmörkum. Myndar blendinga með hvít- (P. glauca) og sitkagreni (P. sitchensis) í heimkynnum sínum þar sem útbreiðslusvæði þessara tegunda skarast.
Kaldárselsvegi. Hafnarfirði
555 6455
skoghf@simnet.is
Tenglar
  • Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
  • Plöntuleit
  • Skógræktarfélag Íslands
  • Yndisgróður
  • Lystigarður Akureyrar
  • Sumarhúsið og garðurinn
  • Grasagarður Reykjavíkur
  • Garðaflóra
  • Garðyrkjufélag Íslands
Plöntuleit
  • Tré
  • Runnar
  • Skógarplöntur
  • Ávaxtatré og berjarunnar
  • Tré og runnar í pottum
  • Klifurrunnar
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar 2021
Hönnun: Veftorg vefþjónusta
  • Menu
  • Categories
  • Heim
  • Plöntuleit
  • Fréttir
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Opnunartími
  • Heim
  • Plöntuleit
  • Fréttir
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Opnunartími
Start typing to see products you are looking for.