Hurdalsrós – Rosa ‘Hurdalsrose’
Meðalstór til stórvaxinn runni, 1,5 – 2,5 m á hæð. All harðgerð. Blómin fagurbleik, meðalstór, hálffyllt. Ilma lítið sem ekkert. Rauðgular, þyrnóttar nýpur. Rauðgulir haustlitir. Fer vel stakstæð, í blönduð beð og upp við vegg, jafnvel á grind sem klifurrós. Skríður ekki út með rótarskotum. Getur sýkst af ryðsvepp.
Vörunr.
95d2a846e3cc
Vöruflokkur: Rósir
Tengdar plöntur
„Hansarós“ – Rosa rugosa ‘Hansa’
Harðgerð, meðalstór runnarós af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin stór, vel fyllt, rauðfjólblá og ilmandi. Blómgast frá því í júlí og eitthvað fram á haustið. Blómviljug. Þroskar lítið sem ekkert af nýpum. Rauðgulir haustlitir. Mjög algeng hérlendis. Mest notuð í raðir og þyrpingar. Hentar vel í limgerði sem ekki eru "stífklippt". Millibil um 80 sm. Vind- og saltþolin. Skríður eitthvað út sé hún á eigin rót. Stundum kölluð "Vestmannaeyjarós". Tvímælalaust algengasta rósin í íslenskum görðum. Ekki er óalgengt að ígulrósir (R. rugosa) séu í daglegu tali kallaðar "hansarósir" þó að í raun eigi það aðeins við um þetta tiltekna yrki af ígulrós. Gamalt hollenskt yrki.
„Páfarós“ – Rosa ‘Poppius’
Mjög harðgerð, meðalstór runnarós. Þyrnirósablendingur. Blómin fremur smá, hálffyllt, lillableik. Daufur ilmur. Smágerðar, dökkar nýpur. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk. Ekki svo skriðul. Fer vel í blönduð runnabeð, í raðir, þyrpingar og í sumarhúsalandið. Ein allra harðgerðasta rósin sem völ er á. 'Poppius' er sögð blendingur fjallarósar (R. pendulina) og þyrnirósar (R. pimpinellifolia). Úr smiðju Carl Stenberg, Svíþjóð frá árinu 1838. Hann skýrði yrkið í höfuðið á vini sínum Dr Gabriel Poppius sem var finnskur grasafræðingur og stjórnaði sænsku Konunglegu landbúnaðarakademíunni. Millibil 70 - 80 sm.
Ígulrós ‘Logafold’ – Rosa rugosa ‘Logafold’
Rósin 'Logafold' er afrakstur rósakynbóta Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar. 'Logafold' er harðgerð og þétt runnarós. Vind- og saltþolin enda af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin eru stór, léttfyllt, fallega skálformuð, rauðfjólublá - bleik og ilmandi. Langur blómgunartími. Rauðar nýpur. Sólelsk en þolir hálfskugga. Hæð um 1,5 m. Framleidd og seld í Þöll á eigin rót. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 sm millibili. Getur einnig vaxið "villt" í sumarhúsalöndum og þess háttar. 'Logafold' er úr smiðju Jóhanns Pálssonar grasafræðings. Hún er afkomandi R. 'Charles Albanel x ?.
Rós ‘Guðbjörg’ – Rosa ‘Guðbjörg’
Harðgerð, lágvaxin - meðahá runnarós (1,5 m). Laufið dökkgrænt, stakfjaðrað. Rauðir blaðstilkar. Rauð brum. Blómin tvöfölld, dökkrauðfjólublá með ljósari æðum. Ilma. Rauðar nýpur þroskast að hausti. Skriðullt rótarkerfi. Sólelsk. Hentar í runnaþykkni, brekkur (til að binda jarðveg), villigarða og sumarhúsalóðir. Yrkið er upprunið frá Jóhanni Pálssyni fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkur. 'Guðbjörg' er samkvæmt Jóhanni afkvæmi ígulrósarinnar 'Logafold' og R. x kamtschatica.
Rós ‘Lykkefund’ – Rosa ‘Lykkefund’
Klifurrós. Hæð 2 - 3 m eða meir á góðum stað. Laufið stakfjaðrað, gljáandi. Nánast þyrnalaus. Blómin meðalstór, rjómahvít, hálffyllt, ilmandi í klösum. Þvermál blóma 3 - 5 sm. Blómin eru ljósbleik í knúpp. Gulir fræflar. Blómstrar hérlendis aðallega í ágúst og fram í september. Getur þó byrjað að blómstra í júlí í góðu árferði.
Þarf gott skjól og sólríkan stað helst upp við húsvegg til að þrífast. Gróðursetjið 'Lykkefund' við klifurgrind eða styðjið hana á annan hátt. 'Lykkefund' er seld ágrædd. Gróðursetjið djúpt þannig að ágræðslan fari 10 sm undir jarðvegsyfirborðið. Það er mjög mikilvægt til að tryggja að rósin lifi af veturinn. Gróðursetjið í frjóan, vel framræstan jarðveg blandaðan sandi og lífrænu efni (búfjáráburður/molta). Berið tilbúinn áburð í kringum rósina í lok maí og lok júní. Gott er að setja lag af moltu í rósabeðið annað hvert ár. Klippið í burt kalnar greinar á vorin eða snemma sumars. Greinar sem ekki standa undir sér eru festar á klifurgrind, bundnar upp á prik eða klipptar burt.
Danskt yrki frá Aksel Olsen frá árinu 1930. Sögð vaxin upp af fræi af helenurós (R. helenae) sem ættuð er frá Kína en frjóvguð af "bourbon" rósinni, R. 'Charles Bonnet'/'Zephirine Drouhin'. Rósaætt (Rosaceae).
Rós ‘Ristinummi’ (járnbrautarrósin) – Rosa ‘Ristinummi’
Harðgerður, þéttur, meðalstór runni. Laufið stakfjaðrað. Blómin stór, einföld, fölbleik, daufur ilmur. Krónublöðin eru gulleit neðst. Blómgast í júlí og ágúst. Rauðar nýpur. Rauðgulir haustlitir. Vaxtarlagið hvelft. Sólelsk. Blómgast mest í sæmilega frjóum vel framræstum, aðeins sendnum eða grýttum jarðvegi í fullri sól. Járnbrautarrósin sómir sér vel í blönduðum runnabeðum, röðum og þyrpingum með tæplega 1 m millibili. Hentar í villigarða og sumarhúsalóðir. Talin vind- og saltþolin. Skríður ekki mikið út með rótarskotum. 'Ristinummi' er að öllum líkindum blendingur ígulrósar (R. rugosa) og þyrnirósar (R. pimpinellifolia). Kennd við bæinn Ristinummi í Finnlandi þar sem Peter Joy fann hana við járnbrautarstöðina í bænum í kringum árið 1996.
Rós ‘Skotta’ – Rosa ‘Skotta’
Harðgerður, lágvaxinn - meðalstór runni (1 - 1,5 m). Sólelsk. Blómin bleik, vel fyllt og ilmandi. Skríður talsvert út með rótarskotum. Engar nýpur. Laufið ljósgrænt, stakfjaðrað og matt. Gulir haustlitir. Þrífst í sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi. Má vera ögn grýttur og malarborinn. Hentar í runnaþyrpingar, raðir, opin svæði, villigarða og þess háttar. Millibil um 80 - 100 sm. Mjög blómsæl. Blómgast frá miðju sumri og fram á haust. Algeng í íslenskum görðum. Hefur í gegnum tíðina verið ranglega seld undir heitunum 'Betty Bland', 'Wasagaming', 'George Will' og þokkarós. 'Skotta' óx upp af fræi í Grasagarði Reykjavíkur árið 1965. Fræið kom frá grasagarðinum í Wageningen í Hollandi.
