Rós ‘Skotta’ – Rosa ‘Skotta’
Harðgerður, lágvaxinn – meðalstór runni (1 – 1,5 m). Sólelsk. Blómin bleik, vel fyllt og ilmandi. Skríður talsvert út með rótarskotum. Engar nýpur. Laufið ljósgrænt, stakfjaðrað og matt. Gulir haustlitir. Þrífst í sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi. Má vera ögn grýttur og malarborinn. Hentar í runnaþyrpingar, raðir, opin svæði, villigarða og þess háttar. Millibil um 80 – 100 sm. Mjög blómsæl. Blómgast frá miðju sumri og fram á haust. Algeng í íslenskum görðum. Hefur í gegnum tíðina verið ranglega seld undir heitunum ‘Betty Bland’, ‘Wasagaming’, ‘George Will’ og þokkarós. ‘Skotta’ óx upp af fræi í Grasagarði Reykjavíkur árið 1965. Fræið kom frá grasagarðinum í Wageningen í Hollandi.
Vörunr.
7643aabc450f
Vöruflokkur: Rósir
Tengdar plöntur
„Hansarós“ – Rosa rugosa ‘Hansa’
Harðgerð, meðalstór runnarós af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin stór, vel fyllt, rauðfjólblá og ilmandi. Blómgast frá því í júlí og eitthvað fram á haustið. Blómviljug. Þroskar lítið sem ekkert af nýpum. Rauðgulir haustlitir. Mjög algeng hérlendis. Mest notuð í raðir og þyrpingar. Hentar vel í limgerði sem ekki eru "stífklippt". Millibil um 80 sm. Vind- og saltþolin. Skríður eitthvað út sé hún á eigin rót. Stundum kölluð "Vestmannaeyjarós". Tvímælalaust algengasta rósin í íslenskum görðum. Ekki er óalgengt að ígulrósir (R. rugosa) séu í daglegu tali kallaðar "hansarósir" þó að í raun eigi það aðeins við um þetta tiltekna yrki af ígulrós. Gamalt hollenskt yrki.
Ígulrós ‘Fru Dagmar Hastrup’ – Rosa rugosa ‘Fru Dagmar Hastrup’
Harðgerð, meðalstór runnarós (1 -1,5 m). Blómin stór, einföld, ljósbleik og ilmandi. Sólelsk. Vind- og saltþolin. Stórar rauðar nýpur. Aðeins skriðul. Þrífst í öllum sæmilega frjóum, vel framræstum jarðvegi. Má gjarnan vera sand- og malarborinn. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 - 100 sm millibili. Danskt yrki. Eitt besta yrkið til framleiðslu á nýpum. Nýpur má nýta í sultur, grauta og te. Þær eru mjög C-vítamínríkar.
Meyjarós ‘Kristine’ – Rosa moyesii ‘Kristine’
Fremur harðgerður, hávavaxinn runni (3 m). Laufblöðin stakfjöðruð, dökkgræn og mött. Smáblöð tennt, 7 - 13 talsins. Sprotar og ungir þyrnar rauðleitir. Blómin blóðrauð, einföld í júlí og fram í byrjun ágúst. Enginn eða lítill ilmur. Rauðgular, flöskulaga, fremur stórar nýpur þroskast á haustin. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk en þolir hálfskugga. Engin rótarskot. Þrífst í allri sæmilega frjórri, framræstri garðmold. má vera eitthvað malarborin og grýtt. Glæsileg stakstæð eða aftarlega í blönduðum runna- og blómabeðum. Hentar einnig í sumarhúsalönd og útivistarskóga. Meyjarós 'Kristine' er norskt úrvalsyrki frá Harstad í N-Noregi. Kom hingað til lands í gegnum Rósaklúbb Garðyrkjufélags Íslands upp úr síðustu aldamótum. Náttúruleg heimkynni tegundarinnar eru í V-Kína. Rósaætt (Rosaceae).
Rós ‘Lísa’ – Rosa rugosa ‘Lísa’
Harðgerð, í meðallagi hávaxin runnarós (1 - 1,5 m). Blómin stór, hálffyllt - fyllt, bleik og ilmandi. Þroskar rauðar nýpur á haustin. Gulir - rauðgulir haustlitir. Skríður út með rótarskotum. 'Lísa' er íslenskt yrki valið úr efniviði sem hingað barst úr Alaska-leiðangrinum árið 1985. 'Lísa' ber þess öll merki að vera ígulrós (R. rugosa) eða ígulrósablendingur. Þrífst og blómstrar mest á sólríkum stað í vel framræstum, ekki of frjóum jarðvegi sem gjarnan má vera blandaður sandi og möl. Vind- og saltþolin. Hentar í raðir og þyrpingar, til að binda jarðveg í brekkum, villigarða og sumarbústaða-lönd. Millibil 80 - 100 sm.
Rós ‘Lykkefund’ – Rosa ‘Lykkefund’
Klifurrós. Hæð 2 - 3 m eða meir á góðum stað. Laufið stakfjaðrað, gljáandi. Nánast þyrnalaus. Blómin meðalstór, rjómahvít, hálffyllt, ilmandi í klösum. Þvermál blóma 3 - 5 sm. Blómin eru ljósbleik í knúpp. Gulir fræflar. Blómstrar hérlendis aðallega í ágúst og fram í september. Getur þó byrjað að blómstra í júlí í góðu árferði.
Þarf gott skjól og sólríkan stað helst upp við húsvegg til að þrífast. Gróðursetjið 'Lykkefund' við klifurgrind eða styðjið hana á annan hátt. 'Lykkefund' er seld ágrædd. Gróðursetjið djúpt þannig að ágræðslan fari 10 sm undir jarðvegsyfirborðið. Það er mjög mikilvægt til að tryggja að rósin lifi af veturinn. Gróðursetjið í frjóan, vel framræstan jarðveg blandaðan sandi og lífrænu efni (búfjáráburður/molta). Berið tilbúinn áburð í kringum rósina í lok maí og lok júní. Gott er að setja lag af moltu í rósabeðið annað hvert ár. Klippið í burt kalnar greinar á vorin eða snemma sumars. Greinar sem ekki standa undir sér eru festar á klifurgrind, bundnar upp á prik eða klipptar burt.
Danskt yrki frá Aksel Olsen frá árinu 1930. Sögð vaxin upp af fræi af helenurós (R. helenae) sem ættuð er frá Kína en frjóvguð af "bourbon" rósinni, R. 'Charles Bonnet'/'Zephirine Drouhin'. Rósaætt (Rosaceae).
Rós ‘Schneekoppe’ – Rosa rugosa ‘Schneekoppe’
Harðgerð lágvaxin - meðalhá runnarós (1 - 1,5 m). Blöðin fremur mött, stakfjöðruð, ljósgræn. Talsvert þyrnótt. Blómin stór, fyllt, föl-lillableik - hvít, ilmandi, ögn drjúpandi (rósirnar þungar). Þroskar lítið eða ekki nýpur. Gulir haustlitir. Sólelsk. 'Schneekoppe' hentar í blönduð runna- og rósabeð, raðir, þyrpingar, ker, villigarða og sumarhúsalóðir. All vind- og saltþolin. Millibil 80 - 100 sm. Úr smiðju Karl Baum, Þýskalandi.
Þyrnirós ‘Johannusmorsian’ – Rosa pimpinellifolia ‘Johannusmorsian’
Harðgerð fremur lágvaxin, þétt runnarós (1 m). Blómin ljóslillableik, hálffyllt, meðalstór og ilmandi. Blómgast í nokkrar vikur í júlí - ágúst. Svartar nýpur þroskast á haustin. Rauðgulir haustlitir. Mikið þyrnótt. Skríður eitthvað út með rótarskotum. Sólelsk. Nægjusöm. Hentar í blönduð beð, raðir, þyrpingar og villigarða. Millibil: 80 sm. Finnskt yrki. 'Johannusmorsian' merkir "jónsmessubrúður".
