Grænlandsmura – Sibbaldiopsis tridentata
Harðgerð, lágvaxin, sígræn jurt. Hæð 15 sm. Blöðin þrífingruð. Blómin hvít. Blómgast mest allt sumarið. Þrífst best í þurrum, malarbornum jarðvegi á sólríkum stöðum. Hentar í steinhæðir, hleðslur og þess háttar en einnig sem þekjuplanta þar sem jarðvegur er ekki of frjór. Laufið verður gjarnan rauðleitt á veturna. Millibil í breiðuplöntunum: 30 sm. Heimkynni: N-Ameríka þ.m.t. Grænland. Eldra fræðiheiti er Potentilla tridentata.
Vöruflokkar: Fjölærar jurtir, Þekjuplöntur
Tengdar plöntur
Eplamynta – Mentha suaveolens
All harðgerð, fjölær jurt. Hæð: 30 - 70 sm. Blöðin áberandi loðin. Hvít eða bleik blóm birtast stundum þegar komið er undir haust. Þrífst vel í frjóum, rakaheldnum eða jafnvel blautum jarðvegi. Sólelsk. Má nota ferska og þurrkaða í te, salöt, til að skreyta rétti og þess háttar. Eplamynta kemur fremur seint upp (júní) og gæti maður því haldið að hún væri dauð á vorin. Sjaldgæfari í ræktun hérlendis samanborið við piparmyntu (Mentha x piperita) Heimkynni: Suður- og V-Evrópa.
Kögurkolla – Tellima grandiflora
Harðgerð hálfsígræn, fjölær jurt. Hæð um eða yfir 50 sm. Laufblöðin hjartalaga, 5 - sepótt, gistennt með gisin hár. Blómin gulgræn, ilmandi í uppréttum klasa. Krónublöðin eru sérkennilega kögruð. Blómin verða gjarnan rauðleit þegar líður á sumarið. Blómgast í júní - júlí.
Þrífst best í rakaheldnum, frjósömum jarðvegi. Skuggþolin og þekjandi. Sáir sér út. Hentar aðallega sem þekjuplanta undir trjám og runnum.
Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka. Frá Alaska í norðri til N-Kaliforníu. Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Krosshnappur – Glechoma hederacea
Harðgerð, jarðlæg fjölær, sígræn, þekjandi jurt. Laufið gjarnan rauðbrúnleitt. Laufið er ætt. Blómin fjólublá miðsumars. Þolir hálfskugga. Ilmandi. Þrífst best í frjóum, niturríkum, sæmilega rökum jarðvegi. Hentar sem þekjuplanta t.d. undir trjám, í ker og potta og þess háttar. Dreifir sér með jarðstönglum. Heimkynni: Evrasía.
Lundahæra – Luzula sylvatica
All harðgerð, sígræn, fjölær, graskennd jurt. Hæð: 30 - 70 sm. Laufið gljáandi. Hært á blaðjöðrum. Blómhnoð í smáum klösum sem standa upp úr blaðbreiðunni, brún en ekki áberandi. Lundahæra er all skuggþolin. Hentar sem þekjandi undirgróður undir trjám og runnum, í beðjöðrum, við tjarnir og læki. Breiðist rólega út. Þrífst vel í rökum - meðalrökum jarðvegi. Þolin gagnvart breytilegu sýrustigi jarðvegs þó hún vaxi venjulega villt í súrum jarðvegi. Heimkynni Evrópa og SV-Asía.
