Friggjarlykill – Primula florindae
Harðgerð fjölær jurt. Hæð 50 – 80 sm. Blómin oftast gul, drjúpandi, mörg saman á stönglum sem vaxa upp fyrir blaðhvirfinguna. Blómin ilma. Vex best í rökum, frjósömum jarðvegi. Heimkynni SA-Tíbet. Barst fyrst til V-Evrópu árið 1924 með breska grasafræðingnum Frank Kingdon-Ward sem nefndi jurtina í höfuðið á eiginkonu sinni Florinda.
Vöruflokkur: Fjölærar jurtir
Tengdar plöntur
Berghnoðri – Petrosedum rupestre
Harðgerð, lágvaxin, jarðlæg, sígræn jurt. Blaðbreiðan er aðeins nokkrir sm á hæð. Laufið smágert, um 1 sm á lengd, sívallt, blágrænt eða rauðleitt. Laufin sitja mjög þétt á blaðsprotum en gisnar og eru meira útsveigð á blómsprotum. Laufið minnir á barrnálar en mýkra. Blómsprotarnir vaxa upp í 15 - 20 sm hæð. Meðan blómstilkarnir eru að vaxa upp drjúpir blómskipunin en snýr svo upp þegar blómin opnast. Blómin eru skærgul, stjörnulaga, all stór í greinóttum, flötum eða svolítið hvelfdum hálfsveipum. Blómgast síðsumars og fram á haust.
Sólelskur. Þrífst best í þurrum, sendnum/grýttum jarðvegi. Hentar því best í steinhæðir, hleðslur, ker, lifandi þök o.þ.h. Hentar sem þekjuplanta þar sem er sólríkt, jarðvegur ekki of frjór og ekki ágengt illgresi fyrir. All hraðvaxta. Sagður ætur og notaður til manneldis sums staðar í Evrópu. Berghnoðri er betur þekktur undir fræðiheitunum Sedum reflexum og S. rupestre.
Heimkynni: Fjalllendi víða í Mið- og V-Evrópu. Hnoðraætt (Crassulaceae).
Postulínsblóm / Skuggasteinbrjótur – Saxifraga x urbium
Harðgerð, lágvaxin fjölær jurt. Hæð 15 - 30 sm. Laufblöðin sitja í jarðlægum hvirfingum sem smám saman bætist við. Blöðin leðurkennd, hálfsígræn, stilkuð, spaðalaga eða öfugegglaga og bogtennt. Blómin smá, stjörnulaga, fölbleik, mörg saman í uppréttum, gisnum klösum. Blómstilkar rauðleitir.
Postulínsblóm er skuggþolið. Hentar í hleðslur, steinhæðir og ker. Prýðis þekju- og kantplanta. Þrífst í öllum sæmilega frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Þarf ekki djúpan jarðveg. Vinsælt og algengt í görðum hérlendis.
Yrkið 'Aureopunctata' hefur gulflekkótt laufblöð. Eigum það gjarnan til og er það ekki síður harðgert.
Postulínsblóm er talið vera garðablendingur á milli hins eiginlega skuggasteinbrjóts (Saxifraga umbrosa) og spaðasteinbrjóts (S. spathularis). Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Randagras – Phalaris arundinacea var picta
Harðgert skrautgras. Hæð: 1,5 m eða meir. Blöð áberandi hvítröndótt. Ögn fjólublár punturinn vex upp fyrir grasið síðsumars. Mjög skriðullt. Vex best í frjóum og rökum jarðvegi. Fer vel í þyrpingum og röðum t.d. á opnum svæðum, við tjarnir o.þ.h. Einnig kjörið í stóra potta/ker. Vökvið reglulega. Þolir hálfskugga. Heimkynnir: Evrasía og víðar.
Venusvagn / Bláhjálmur – Aconitum napellus
Harðgerð, all hávaxin fjölær jurt. Hæð allt um og yfir 1 m. Blómin dökkfjólublá síðsumars. Mjög eitraður sé hans neitt. Þolir vel hálfskugga. Venusvagn er mjög vindþolinn og leggst ekki niður í roki og þarf því ekki uppbindingu. Þrífst vel í venjulegri garðmold. Þolir vel hálfskugga. Hentar í blönduð blóma- og runnabeð. Stundum plantað í raðir til að afmarka svæði. Notið hanska þegar þið meðhöndlið venusvagn.
