• Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
Gróðrarstöð Gróðrarstöð
  • Heim
  • Plöntuleit
  • Fréttir
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Opnunartími
Search
Menu
Gróðrarstöð Gróðrarstöð
Stækka mynd
Heim Runnar Dalahind ‘Dóra’ – Hydrangea aspera ‘Dóra’
Rósagríma - Penstemon rupicola
Back to products
Strandreynir - Sorbus meinichii

Dalahind ‘Dóra’ – Hydrangea aspera ‘Dóra’

Stórvaxinn, sumargrænn skrautrunni. Getur með tímanum orðið 3 m á hæð eða meir. Sæmilega hraðvaxta við góðar aðstæður. Laufin sitja gagnstætt. Þau eru lensulaga – oddbaugótt. Allt að 20 cm löng og um 3 – 5 cm á breidd. Laufin eru hærð, sérstaklega á neðra borði og tennt. Blaðstilkur allt að 4 cm langur. Stórir flatir, hvítir blómsveipir birtast síðsumars á runnanum eftir nokkur ár. Allt að 20 cm í þvermál. Ófrjóu blómin sem umlykja blómskipunina eru stærri og mest áberandi.

Dalahind ‘Dóra’ þrífst eingöngu í sæmilegu skjól. Þolir vel hálfskugga. Jarðvegurinn þarf að vera frjór og rakaheldinn en alls ekki blautur. Blandið gömlu taði eða moltu saman við jarðveginn. Einnig er tilvalið að setja lag af moltu í kringum eldri plöntur. Tilbúinn áburður á vorinn hjálpar einnig.

‘Dóra’ er íslenskt yrki. Kennt við Dóru Jakobsdóttur Guðjohnsen grasafræðing sem lengi starfaði við Grasagarð Reykjavíkur í Laugardal.

Tegundin Hydrangea aspera er ættuð frá Himalaja, S-Kína og Taívan. Tegundin er sögð mjög breytileg og gjarnan skipt niður í undirtegundir eða jafnvel fleiri tegundir.

Hindarblómaætt (Hydrangeaceae).

Vöruflokkar: Runnar, Tré og runnar í pottum
Share:

Tengdar plöntur

Döglingskvistur – Spiraea douglasii

Harðgerður, þéttur runni. Hæð rúmlega 1 m. Blómin fjólubleik í uppréttum klösum síðsumars (ágúst - september). Virðast loðin þar sem fræflarnir standa út fyrir blómskipunina. Greinar uppréttar, rauðbrúnar. Visnar blómskipanir standa fram á vetur. Döglingskvistur hefur talsvert skriðullt rótarkerfi. Laus við meindýr og sjúkdóma. Þolir hálfskugga. Best fer á því að klippa döglingskvist niður í svona 50 - 60 sm seinni part vetrar. Það hefur ekki áhrif á blómgun þar sem döglingskvistur blómgast á árssprotann. Þrífst í allri venjulegri rakaheldinni garðmold. Döglingskvist er gjarnan plantað í raðir / limgerði. Einnig í ker og þess háttar þar sem hann getur alveg fyllt út í rýmið. Hentar síður með öðrum gróðri nema tegundum sem eru sjálfar duglegar í samkeppni. Tilvalinn í villigarða þar sem hann má breiðast út. Líklegt er að stór hluti af því sem í daglegu tali kallast "döglingskvistur" sé í raun úlfakvistur (S. x billardii). Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka. Úlfakvistur er blendingur döglings- og víðikvists (S. salicifolia). Víðikvistur er frá Evrasíu.

Döglingsþyrnir – Crataegus douglasii

Lítið tré eða runni (2-6 m). Þéttur. All harðgerður. Fremur hægvaxta. Laufið tvísagtennt, gljáandi. Rauðir haustlitir. Greinar þyrnóttar. Blómin hvít í sveip. Aldinið svart, ætt ber (kjarnaldin). Sólelskur en þolir hálfskugga. Döglingsþyrnir hentar sem stakstætt lítið tré, í þyrpingar með 2 m millibili eða í bland með öðrum runnum og jurtum. Hentar í klippt eða óklippt limgerði með um 0,7 - 1 m millibili. Hentar einnig í yndisskóga. Framleiðum eingöngu döglingsþyrni af fræi sem safnað er hérlendis. Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka, allt norður til Alaska.

Fjallatoppur – Lonicera alpigena

Harðgerður, sumargrænn, meðalhár runni (1,5 - 2,0 m). Börkur gráleitur. Laufin eru með stuttan stilk, oddbaugótt, allt að 11 sm löng og 5,5 sm breið. Blaðgrunnur stundum snubbóttur. Þau er stór miðað við aðra toppa (Lonicera spp.), gagnstæð og gljáandi á efra borði. Laufin eru hærð á jöðrum og blaðstrengjum á neðra borði framan af sumri. Laufgast jafnvel í byrjun maí. Gulir haustlitir. Blómin smá, gul með rauðleitum fræflum tvö og tvö saman á löngum stilk fyrri part sumars. Aldinið rautt samvaxið, um eða yfir 1 sm langt, óætt ber sem minnir á kirsuber í útliti. Fremur hægvaxta. Þolir vel hálfskugga. Hentar sérlega vel sem undirgróður undir stærri trjám. Einnig fer fjallatoppur vel í bland með öðrum gróðri eða nokkrir saman í þyrpingum eða röðum. Tilvalinn í skuggsæl horn. Þrífst í öllum sæmilega frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Millibil 80 - 100 sm. Heimkynni: Í skógum til fjalla í Mið- og S-Evrópu. Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).

Fagursýrena ‘Elinor’ – Syringa x prestoniae ‘Elinor’

Harðgerður stórvaxinn runni eða lítið tré (3 - 4 m). Blómin lillableik, ilmandi í uppréttum klasa miðsumars. Hefur lengi verið ein vinsælasta sýrenan hérlendis enda blómsæl og harðgerð víðast hvar. Þolir hálfskugga. Hentar stakstæð, í bland með öðrum gróðri og í raðir og þyrpingar þar sem pláss leyfir. Hæfilegt bil á milli sýrena er 1,5 - 2,0 m. Kettir virðast ekki sækja sérstaklega í 'Elinor'. 'Elinor' er kanadískt úrvalsyrki úr smiðju Isabellu Preston (1881-1965).

Bogsýrena – S. komarowii ssp. reflexa ‘Hólmfríður’

Harðgerður, stórvaxinn runni eða lítið tré (3 - 4 m). Blómin fyrst lillableik en síðan bleik í drjúpandi klösum, ilmandi. Blómgast miðsumars (júlí). Móðurtréið stendur í garðinum að Skúlaskeiði 32, Hafnarfirði þar sem Hólmfríður Finnbogadóttir og Reynir Jóhannsson bjuggu lengst af. Hólmfríður var formaður og síðan framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Þallar ehf.

Blátoppur ‘Þokki’ – Lonicera caerulea ‘Þokki’

Mjög harðgerður, þéttur, fremur hægvaxta runni. Laufið blágrænt, gagnstætt. Blómin smá, gulgræn og lítið áberandi. Aldinið blátt ber. Ekki talin góð til átu. Blátoppur 'Þokki' er skuggþolinn. Hentar í raðir, þyrpingar, limgerði og til uppfyllingar í skuggsæl horn og undir trjám. Lokar sér vel niður að jörð og heldur þannig niðri illgresi. Almennt heilbrigður. Þrífst vel í allri venjulegri garðmold. Millibil í limgerði um 50 sm eða meir.

Garðakvistill ‘Diabolo’ – Physocarpus opulifolius ‘Diabolo’

Lágvaxinn - meðalstór runni. Laufið dökk-purpurarautt. Ljósir blómsveipir miðsumars. Skærrauðir haustlitir. Þrífst vel í grónum hverfum. Sólelskur. Verður gjarnan fyrir einhverju haustkali. Þolir vel klippingu. Garðakvistill 'Diabolo' fer sérlega vel í blönduðum beðum með ljósari plöntum eða framan við ljósa fleti.

Lækjavíðir ‘Blika’ – Salix arbusculoides ‘Blika’

Harðgerður, fremur hraðvaxta, hávaxinn runni eða margstofna tré. Hæð 3 - 6 m. Sprotar grannir, dökkrauðbrúnir og gljáandi. Laufblöð lensulaga - mjósporbaugótt, ydd í báða enda og gljándi á efra borði. Ljósari og gjarnan aðeins hærð að neðan. Laufin eru allt að 7,5 sm löng og kirtiltennt. Er með axlarblöð sem falla fljótt. Haustlitur gulur. Sólelskur. Þolir vel klippingu. Laus við asparglyttu og ryð. Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi sem má gjarnan vera sand- og malarborinn. Lækjavíðir 'Blika' hentar vel í klippt limgerði. Einnig fer hann vel í þyrpingar og við læki og tjarnir. 2 - 3 stk/m henta í limgerði. Meira bil þarf að gefa þegar lækjavíðir er gróðursettur í þyrpingar eða stakur eða um 1,5 m. Lækjavíðir 'Blika' hentar ekki á mjög vindasama staði t.d. úti við ströndina. Þá henta jörfavíðir (S. hookeriana) og alaskavíðir (S. alaxensis) betur. 'Blika' er úrvalsyrki valin úr efniviði úr Alaskaferð Óla Vals og félaga árið 1985. Henni var safnað nálægt Port Alsworth við Clark stöðuvatnið sunnarlega í vesturhluta Alaska. Heimkynni lækjarvíðis eru annars auk Alaska, stærstur hluti Kanada. Lækjavíðir vex aðallega inn til landsins meðfram ám og lækjum. Víðisætt (Salicaceae).
Kaldárselsvegi. Hafnarfirði
555 6455
skoghf@simnet.is
Tenglar
  • Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
  • Plöntuleit
  • Skógræktarfélag Íslands
  • Yndisgróður
  • Lystigarður Akureyrar
  • Sumarhúsið og garðurinn
  • Grasagarður Reykjavíkur
  • Garðaflóra
  • Garðyrkjufélag Íslands
Plöntuleit
  • Tré
  • Runnar
  • Skógarplöntur
  • Ávaxtatré og berjarunnar
  • Tré og runnar í pottum
  • Klifurrunnar
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar 2021
Hönnun: Veftorg vefþjónusta
  • Menu
  • Categories
  • Heim
  • Plöntuleit
  • Fréttir
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Opnunartími
  • Heim
  • Plöntuleit
  • Fréttir
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Opnunartími
Start typing to see products you are looking for.