• Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
Gróðrarstöð Gróðrarstöð
  • Heim
  • Plöntuleit
  • Fréttir
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Opnunartími
Search
Menu
Gróðrarstöð Gróðrarstöð
Awaiting product image
Stækka mynd
Heim Runnar Japanselri / Fjallelri – Alnus maximowiczii
Svartyllir 'Black Beauty' - Sambucus nigra 'Black Beauty'
Back to products
Dröfnusteinbrjótur - Saxifraga rotundifolia

Japanselri / Fjallelri – Alnus maximowiczii

Harðgerður, stórvaxinn, sumargrænn runni eða lágvaxið tré. Ein- eða margstofna. Hæð 3 – 7 m. Börkur grár. Árssprotar og brum dökkbrún eða því sem næst svört. Laufin eru gljáandi, egglaga fín-sagtennt með hjartalaga grunni. Brúnleitir haustlitir eða frýs grænt. Blómstrar rétt fyrir laufgun í  maí. Karlreklar aflangir, gulgrænir, drjúpandi og um 5 sm langir. Kvenreklar, smáir í fyrstu og rauðleitir. Að hausti líkjast kvenreklarnir litlum, könglum. Þeir eru um 2 sm á lengd, egglaga og grænir en brúnleitir fullþroska. Sitja á greinunum fram á vetur.

Sólelskt. Niturbindandi eins og aðrar tegundir elris. Gerir því litlar kröfur til jarðvegs. Japanselri er enn tiltölulega sjaldgæft en hefur hingað til reynst harðgert.

Japanselri hentar í runnaþyrpingar, skjólbelti og þess háttar. Millibil 1,5 m.

Heimkynni: Til fjalla í mið- og N-Japan, Kóreu og A-Rússlandi. Japanselrið sem er í ræktun hérlendis mun allt vera ættað frá Hokkaido, Japan. Var það Ólafur S. Njálsson sem safnaði þar fræi og kom með til landins árið 1996. Okkar plöntur eru ræktaðar upp af fræi sem safnað hefur verið hérlendis. Líklegt er að japanselri myndi kynblendinga með öðrum elritegundum sem hér vaxa.

Vöruflokkar: Runnar, Tré og runnar í pottum
Share:

Tengdar plöntur

Bersarunni – Viburnum edule

Harðgerður, meðalhár, sumargrænn runni (1,5 - 2,5 m). Laufin sitja gagnstætt á greinunum og eru gjarnan þrí-sepótt. Óreglulega tennt. Brum áberandi rauð. Rauðir og bleikir haustlitir. Blómin hvít - bleik í litlum sveipum. Rauðgul, æt ber (steinaldin) þroskast að hausti. Hægvaxta eða í meðallagi hraðvaxta. Skuggþolinn en fallegastir haustlitir og mest berjauppskera í fullri sól. Þrífst í öllum sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Bersarunni fer vel í blönduðum runnabeðum, röðum og þyrpingum. Millibil um 80 sm. Berin má nýta í sultur og þess háttar. Þau eru sögð rík af andoxunarefnum. Okkar bersarunnar eru allir vaxnir upp af fræi sem tínt er hérlendis. Íslenski efniviðurinn af bersarunna er trúlega allur frá Alaska. Heimkynni: Norðanverð N-Ameríka. Desjurtaætt (Adoxaceae).

Geislasópur – Cytisus purgans

Harðgerður, þéttur, lágvaxinn runni (50 - 80 sm). Vaxtarlagið hálfkúlulaga. Greinar sígrænar og þunnar. Lauf lítil og lítið áberandi. Blómstar skærgulum blómum í miklu magni í júní. Blómin dæmigerð ertublóm. Minni blómgun gjarnan að hausti. Blómin ilma sterkt og ekki kunna allir að meta það. Aldinið hærður belgur gjarnan með nokkrum fræjum. Sólelskur. Lifir í sambýli við niturbindandi bakteríur. Gerir litlar kröfur til jarðvegs en þrífst ekki í blautum jarðvegi. Harðgerðasti sópurinn hérlendis. Hentar í blönduð runnabeð, innan um grjót, í hlaðin beð og þess háttar. Millibil 80 - 90 sm. Heimkynni: Aðallega ofan skógarmarka í fjöllum á Íberíuskaganum. Ertublómaætt (Fabaceae).

Döglingskvistur – Spiraea douglasii

Harðgerður, þéttur runni. Hæð rúmlega 1 m. Blómin fjólubleik í uppréttum klösum síðsumars (ágúst - september). Virðast loðin þar sem fræflarnir standa út fyrir blómskipunina. Greinar uppréttar, rauðbrúnar. Visnar blómskipanir standa fram á vetur. Döglingskvistur hefur talsvert skriðullt rótarkerfi. Laus við meindýr og sjúkdóma. Þolir hálfskugga. Best fer á því að klippa döglingskvist niður í svona 50 - 60 sm seinni part vetrar. Það hefur ekki áhrif á blómgun þar sem döglingskvistur blómgast á árssprotann. Þrífst í allri venjulegri rakaheldinni garðmold. Döglingskvist er gjarnan plantað í raðir / limgerði. Einnig í ker og þess háttar þar sem hann getur alveg fyllt út í rýmið. Hentar síður með öðrum gróðri nema tegundum sem eru sjálfar duglegar í samkeppni. Tilvalinn í villigarða þar sem hann má breiðast út. Líklegt er að stór hluti af því sem í daglegu tali kallast "döglingskvistur" sé í raun úlfakvistur (S. x billardii). Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka. Úlfakvistur er blendingur döglings- og víðikvists (S. salicifolia). Víðikvistur er frá Evrasíu.

Myrtuvíðir ‘Vala’ – Salix myrsinites ‘Vala’

Mjög harðgerður, þéttur, lágvaxinn (60 - 100 sm stundum hærri) runni. Laufið, smágert, dökkgrænt, tennt og gljáandi. Gulir haustlitir. Gullinbrúnt, visið laufið situr á greinunum fram á vor. Reklar með vínrauðum frævum birtast á vorin. Sólelskur en annars nægjusamur. Vind- og saltþolinn. Myrtuvíðir hentar sérstaklega vel í þyrpingar, raðir, til klæða brekkur og þess háttar. Þolir klippingu. Má t.d. gróðursetja í lágvaxin limgerði. Millibil almennt 70 - 100 sm. Asparglytta sækir nokkuð í myrtuvíði. Asparglytta er síður vandamál á vindasömum stöðum. Vinsæll og útbreiddur hérlendis. Yrkið sem er kvenkyns er kennt við Óla Val Hansson garðyrkjuráðanaut sem kom með umræddan myrtuvíði hingað til lands frá Vadsø í N-Noregi árið 1963. Heimkynni: N-Evrópa. Víðisætt (Salicaceae).

Blóðrifs ‘Færeyjar’ – Ribes sanguineum ‘Færeyjar’

Harðgerður, sumargrænn, meðalhár runni (1,5 - 1,8 m). Sprotar og ungar greinar rauðbrúnar. Lauf handflipótt, mött. Blómin fölbleik í klösum í maí - júní. Þroskar sjaldan ber. Gulir haustlitir. Þolir vel hálfskugga. Blóðrifs 'Færeyjar' hentar í raðir, þyrpingar og limgerði. Þolir vel klippingu. Vinsælt í limgerði í Færeyjum. Þrífst í allri venjulegri garðmold. Barst hingað frá Færeyjum en blóðrifs er annars ættað frá vestanverðri N-Ameríku. Garðaberjaætt (Grossulariaceae)

Alaskayllir / Rauðyllir – Sambucus racemosa ssp. arborescens

Harðgerður, stórvaxinn, grófur runni. Hæð: 3-5 m. Blómin mörg saman í kremuðum klasa í maí - júní. Berin eldrauð í ágúst. Fuglar sækja mjög í berin. Brumin gagnstæð. Laufblöðin stór, stakfjöðruð. Laufgast snemma á vorin. Gulir - brúnir haustlitir. Hraðvaxta. Mjög skuggþolinn. Þrífst í frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Sáir sér gjarnan út þar sem aðstæður leyfa. Góður til uppfyllingar í skuggsæl horn o.þ.h. Getur hæglega vaxið yfir aðrar plöntur og skyggt þær út. Virðist nokkuð saltþolinn. Þolir vel klippingu. Millibil 1,5 - 2,0 m. Berin má nýta í sultur, vín og fleira séu þau soðin og fræið, sem er eitrað, sigtað frá. Alaskayllir er sá yllir sem er algengastur hérlendis. Sú deilitegund (S. racemosa ssp. arborescens) eða afbrigði (S. racemosa var. racemosa) er ættað frá vestanverðri N-Ameríku.

Fjalldrapi / Hrís – Betula nana

Harðgerður, íslenskur, lágvaxinn runni (20 - 50 sm). Blöðin smá, nánast kringlótt. Rauðir - rauðgilir haustlitir. Sólelskur. Vex í mólendi og deiglendi víða um land. Hentar í hleðslur, steinhæðir og í rakan jarðveg þar sem sólar nýtur. Blandast gjarnan íslensku ilmbjörkinni (Betula pubescens) og myndar blendinginn skógviðarbróður (Betula x intermedia) sem er algengur í náttúru Íslands sérstaklega á Vesturlandi. Fjalldrapi er ekki algengur í görðum landsmanna. Fjalldrapinn okkar er af íslensku fræi.

Blátoppur ‘Þokki’ – Lonicera caerulea ‘Þokki’

Mjög harðgerður, þéttur, fremur hægvaxta runni. Laufið blágrænt, gagnstætt. Blómin smá, gulgræn og lítið áberandi. Aldinið blátt ber. Ekki talin góð til átu. Blátoppur 'Þokki' er skuggþolinn. Hentar í raðir, þyrpingar, limgerði og til uppfyllingar í skuggsæl horn og undir trjám. Lokar sér vel niður að jörð og heldur þannig niðri illgresi. Almennt heilbrigður. Þrífst vel í allri venjulegri garðmold. Millibil í limgerði um 50 sm eða meir.
Kaldárselsvegi. Hafnarfirði
555 6455
skoghf@simnet.is
Tenglar
  • Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
  • Plöntuleit
  • Skógræktarfélag Íslands
  • Yndisgróður
  • Lystigarður Akureyrar
  • Sumarhúsið og garðurinn
  • Grasagarður Reykjavíkur
  • Garðaflóra
  • Garðyrkjufélag Íslands
Plöntuleit
  • Tré
  • Runnar
  • Skógarplöntur
  • Ávaxtatré og berjarunnar
  • Tré og runnar í pottum
  • Klifurrunnar
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar 2021
Hönnun: Veftorg vefþjónusta
  • Menu
  • Categories
  • Heim
  • Plöntuleit
  • Fréttir
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Opnunartími
  • Heim
  • Plöntuleit
  • Fréttir
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Opnunartími
Start typing to see products you are looking for.