Rósagríma – Penstemon rupicola
Jarðlægur, sígrænn, breiðumyndandi hálfrunni. Hæð 10 – 15 cm. Blöðin eru grágræn, sporbaugótt – hringlaga og allt að 2 cm á lengd. Aðeins tennt. Blómin allt að 4 cm á lengd, skær rósrauð/bleik, klukkulaga með lengri neðri vör. Sitja nokkur saman í klasa sem vex upp úr blaðbreiðunni.
Rósagríma þrífst best í hleðslum og steinhæðum á móti sól. Gott er að skýla henni á veturna með sígrænum barrviðargreinum, laufi eða striga. Jarðvegurinn þarf að vera vel framræstur og gjarnan blandaður möl og sandi. Rósagríma er nægjusöm á næringu. Setjið aðeins smá lag af moltu í kring á vorin eða ögn af tilbúnum áburði.
Heimkynni: Fjalllendi í Washington fylki, Óregon og N-Kaliforníu.
Græðisúruætt (Plantaginaceae). Var áður talin tilheyra grímublómaætt (Scrophulariaceae)
