Skáldarós ‘Frankfurt’ – Rosa x francofurtana ‘Frankfurt’

Fremur harðgerð runnarós. Þyrnalítil. Hæð 1 – 1,5 m. Sólelsk en þolir hálfskugga. Laufið matt. Blómin fremur stór, rauðbleik – purpurarauð, tvöfölld með gulum fræflum. Enginn eða lítill ilmur. Blómgast í nokkrar vikur síðsumars og jafnvel fram á haust. Rauðar perulaga nýpur þroskast á haustin.

Þrífst vel í allri sæmilega frjósamri og vel framræstri ræktunarmold. Blandið moltu eða gömlu hrossataði við moldina við gróðursetningu. Ef jarðvegur er leirkenndur/þéttur blandið þá sandi eða fínnri möl við jarðveginn. Skríður eitthvað út með rótarskótum en ekki til ama. Klippið í burt kalnar greinar og krosslægjur seinni part vetrar eða snemma vors.

Skáldarós ‘Frankfurt’ hentar í blönduð rósa- og runnabeð. Einnig tilvalin í raðir og þyrpingar. Millibil tæpur 1 m. Gamalt yrki sem er þekkt frá Þýskalandi frá því á 16. öld. Talin blendingur gallarósar (R. gallica) og kanelrósar (R. majalis).