Fréttir
19. júlí 2026 – erum aftur komin með gullregn
Við erum aftur komin með gullregn, bæði garðagullregn ‘Vossii’ og fjallagullregn. Hæð um 120 – 150 cm . Opið sunnudaginn 19. júlí 2026 frá kl. 10.00 – 17.00. Eigum til trjákurl í 60 l pokum á kr. 4.000,-. Eigum til úrval trjáa og runna í pottum eins og kvisti, sýrenur, elri, kórónur, rósir, toppa, reyni, eini og fleira. Einnig margar tegundir trjágróðurs í skógarplöntubökkum. Bakkinn er frá kr. 10.500,-/stk.