Sitkagreni – Picea sitchensis

Mjög harðgert, stórvaxið, langlíft, sígrænt barrtré. Krónan breiðkeilulaga. Greinar yfirleitt uppréttar. Sprotar ljósgulbrúnir eða nánast hvítir og hárlausir. Nálar flatar í þversniðinu, 1,5 – 2,5 cm á lengd. 2 – 3 loftaugarendur eru að ofanverðu á nálunum og tvær miklu meira áberandi að neðanverðu sem gera það að verkum að nálar eru dökkgrænar að ofanverðu en ljós-bláleitar að neðanverðu. Því eru stór sitkagreni sem maður horfir uppundir blágrá eða jafnvel silfurlit að sjá. Nálar eru mjög stingandi. Könglar sívalir, drjúpandi á greinunum, 6 – 10 cm á lengd og 2 – 3 cm á breidd. Köngulhreistrið þunnt og sveigjanlegt. Hreisturblaðkan stundum sjáanleg á lokuðum könglum. Könglar í fyrstu rauðleitir og síðan ljósbrúnir fullþroska. Það tekur köngla 5 – 7 mánuði að þroskast frá frjóvgun sem á sér stað á vorin. Sitkagreni þroskar köngla á nokkurra ára fresti eftir að 30 – 40 ára aldri er náð. Sum tré mynda þó köngla fyrr á æviskeiðinu t.d. eftir áföll eins og flutning. Börkur er fremur þunnur og er því sitkagreni ekki eldþolið tré.

Viðurinn er léttur og hlutfallslega sterkur. Hann er m.a. notaður í hljóðfæri, flugvélar og báta. Útsprungin brum má nota í greni-bjór og sýróp.

Forðist að planta í frostpolla. Sumt af því sem kallað er sitkagreni kann að vera sitkabastarður / hvítsitkagreni (Picea x lutzii). Sitkagreni/sitkabastarður er lang algengasta grenið hérlendis.

Hraðvaxta. Vind- og saltþolið. Þolir vel klippingu. Þolir hálfskugga. Þrífst best í brekkum þar sem er að finna ferskan jarðraka og jarðvegur er nokkuð frjór. Glæsilegt stakstætt, fer vel í röðum og þyrpingum. Einnig kjörið í skjólbelti og jafnvel klippt limgerði. Þó eru ekki öll sveitarfélög sem leyfa gróðursetningu sitkagrenis á lóðarmörkum (sjá byggingareglugerð) enda verður sitkagreni mjög stórvaxið með tímanum.  Eitt mest notaða tré í skógrækt hérlendis enda harðgert og gott timburtré. Stundum nýtt sem jólatré/torgtré enda ágætlega barrheldið. Lang besta sígræna tréið til ræktunar við sjávarsíðuna eins og t.d. á Reykjanesi. Sáir sér út þar sem aðstæður leyfa.

Sitkagreni gerir kröfur um frjósemi jarðvegs svo setjið vel af moltu eða búfjáráburði við gróðursetningu. Þegar skógarplöntur eru gróðursettar skal setja nokkur korn af tilbúnum áburði með.

Sitkagreni er ein hávaxnasta trjátegnd í heiminum. Óvíst er hversu hávaxið það getur orðið hér á landi. Hæstu tré hérlendis eru sitkagreni á Kirkjubæjarklaustri, um 30 m á hæð (2022). Millibil við gróðursetningu að lágmarki 3 m. Stundum 2 m í skógrækt. Til frambúðar að lágmarki 4 – 5 m. Við framleiðum eingöngu sitkagreni af íslensku fræi.

Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka frá Alaska í norðri suður til Kaliforníu. Vex yfirleitt ekki langt frá ströndinni í heimkynnum sínum. Íslenski stofninn er nær allur ættaður frá Alaska. Kennt við bæinn Sitka sem er á eyjunum Baranof og Chichagof sem eru hluti af Alexander-eyjaklasanum í SA-Alaska, Bandaríkjunum. Þallarætt (Pinaceae).