Stikilsber ‘Hinnonmäki’ – Ribes uva-crispa ‘Hinnonmäki’
Harðgerður, lágvaxinn (70 – 100 sm, stundum hærri), þyrnóttur berjarunni. Berin stór með áberandi æðum. Erum með annars vegar ‘Hinnonmäki’ með rauðbrúnum berjum og svo samsvarandi yrki með gulgrænum fullþroska berjum. Uppskerumikil yrki í fullri sól, sæmilega frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Millibili 70 – 80 sm. Stikilsber þola hálfskugga en þá verður uppskeran minni. Berin má nýta í sultur, grauta og fleira. Finnsk yrki. Rifsþéla getur verið vandamál.
Vörunr.
1a259c197542
Vöruflokkur: Ávaxtatré og berjarunnar
Tengdar plöntur
Bersarunni – Viburnum edule
Harðgerður, meðalhár, sumargrænn runni (1,5 - 2,5 m). Laufin sitja gagnstætt á greinunum og eru gjarnan þrí-sepótt. Óreglulega tennt. Brum áberandi rauð. Rauðir og bleikir haustlitir. Blómin hvít - bleik í litlum sveipum. Rauðgul, æt ber (steinaldin) þroskast að hausti. Hægvaxta eða í meðallagi hraðvaxta.
Skuggþolinn en fallegastir haustlitir og mest berjauppskera í fullri sól. Þrífst í öllum sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Bersarunni fer vel í blönduðum runnabeðum, röðum og þyrpingum. Millibil um 80 sm. Berin má nýta í sultur og þess háttar. Þau eru sögð rík af andoxunarefnum. Okkar bersarunnar eru allir vaxnir upp af fræi sem tínt er hérlendis. Íslenski efniviðurinn af bersarunna er trúlega allur frá Alaska. Heimkynni: Norðanverð N-Ameríka. Desjurtaætt (Adoxaceae).
Hélurifs ‘Lukka’ – Ribes laxiflorum ‘Lukka’
Harðgerður, lágvaxinn (30 - 50 sm), jarðlægur runni. Laufið handflipótt. Laufgast í apríl. Rauðir haustlitir birtast strax í ágúst. Rauðbrún blóm í klasa í maí. Blá, héluð, , hærð, æt ber þroskast í lok júlí eða í ágúst. Má nýta í sultu og fleira.
Hélurifs 'Lukka' þrífst í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Skuggþolið en mest berjauppskera fæst í fullri sól. Hentar sem undirgróður undir trjám, í kanta, jaðra og þess háttar. Nóg er að planta 1 - 2 plöntum á fermetra. 'Lukka' er úrvalsyrki úr Lystigarði Akureyrar. Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka. Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
Hrútaber / Hrútaberjaklungur – Rubus saxatilis
Harðgerð, lágvaxin, íslensk jurt. Hæð um 10 - 20 sm. Hrútaberjaklungur er skuggþolið. Lauf þrífingruð. Rauðir haustlitir. Blóm fimmdeild, hvít á lit. Berin (steinaldin) eru rauð í klösum og má nýta í sultur (hrútaberjahlaup) og fleira. Hrútaber fjölga sér kynlaust með löngum renglum sem mynda smáplöntur sem skjóta rótum. Þrífst í allri sæmilega frjórri, vel framræstri mold. Prýðis þekjuplanta t.d. undir trjám og runnum. Hentar einnig í brekkur og skriður. Í skugga þroskast minna eða ekkert af berjum.
Jóstaber – Ribes × nidigrolaria ‘Josta’
Harðgerður berjarunni. Hæð 1,5 - 1,8 m. Fjölbastarður sólberja (Ribes nigrum) og stikilsberja (R. uva-crispa) og skógarstikils (R. divaricatum).
Óþroskuð berin minna á stikilsber en fullþroskuð meira á sólber. Heilbrigt yrki. Ber notuð í sultur og þess háttar. Millibil: 1 m. Sólelsk en þola hálfskugga. Þrífst best í frjóum, sæmilega rökum jarðvegi en alls ekki blautum. Plantað í raðir með öðrum berjarunnum eða eitt og sér. Fremur fljóvaxin.
Rauðberjalyng / Týtuber ‘Koralle’ – Vaccinium vitis-idaea ‘Koralle’
All harðgerður, lágvaxinn (15 - 20 sm), sígrænn dvergrunni. Blöðin smá, heilrennd. Fölbleikir sætukoppar birtast snemmsumars. Meðalstór, rauð, súrsæt, aðeins bitur, æt ber þroskast að hausti. Sólelskt en þolir hálfskugga. Berjaþroski verður þó mestur í fullri sól. Þrífst best í lítið eitt súrum, rakaheldnum jarðvegi. Dreifir sér með rótarskotum. Myndar breiður. Forðist að rækta með mjög ágengum tegundum. Rauðberjalyng hentar til að klæða beð. Berin eru notuð í sultur og þess háttar. Kallast "lingonberry" á ensku og "tyttebær" á dönsku. Tegundin finnst villt á einstaka stað hérlendis
Rifs ‘Rautt Hollenskt’ – Ribes rubrum ‘Rautt Hollenskt’
Mjög harðgerður, meðalhár runni (1,5 m eða meir). Laufið handsepótt á löngum blaðstilk. Berin rauð, í klösum, súrsæt og æt. Berin Þroskast yfirleitt seinni part ágúst. Rifs 'Rautt Hollenskt' er aðallega ræktað vegna berjanna. Hæfilegt bil á milli rifsrunna er um 1 m. 'Rautt Hollenskt' er algengasta "rauð-rifsið" hérlendis og hefur verið lengi. Rifslús og rifsþéla eru gjarnan til ama. Rifs 'Rautt Hollenskt' er all vind- og saltþolið. Þrífst best í frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Þolir vel hálfskugga en mest berjauppskera fæst í fullri sól. Venjulega gróðursett í raðir t.d. utan um matjurtagarða og þess háttar. Berin eru notuð í sultur, saft, hlaup og fleira. Mjög gamalt yrki.
Sólber ‘Storklas’ – Ribes nigrum ‘Storklas’
Harðgerður berjarunni. Hæð: 150 sm. Nokkuð uppréttur vöxtur. Stór ber með þykku skinni. Ber henta því vel til frystingar. Seinþroska. Reynist vel á höfuðborgarsvæðinu. Sænskt yrki. Gróðursetjið með um 1 m millibili í frjóan og rakaheldin jarðveg. Setjið moltu eða veðraðan búfjáráburð yfir moldina snemma vors árlega. Sænskt yrki.
