„Páfarós“ – Rosa ‘Poppius’
Mjög harðgerð, meðalstór runnarós. Þyrnirósablendingur. Blómin fremur smá, hálffyllt, lillableik. Daufur ilmur. Smágerðar, dökkar nýpur. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk. Ekki svo skriðul. Fer vel í blönduð runnabeð, í raðir, þyrpingar og í sumarhúsalandið. Ein allra harðgerðasta rósin sem völ er á. ‘Poppius’ er sögð blendingur fjallarósar (R. pendulina) og þyrnirósar (R. pimpinellifolia). Úr smiðju Carl Stenberg, Svíþjóð frá árinu 1838. Hann skýrði yrkið í höfuðið á vini sínum Dr Gabriel Poppius sem var finnskur grasafræðingur og stjórnaði sænsku Konunglegu landbúnaðarakademíunni. Millibil 70 – 80 sm.
Vörunr.
c7a08de9bedd
Vöruflokkur: Rósir
Tengdar plöntur
„Hansarós“ – Rosa rugosa ‘Hansa’
Harðgerð, meðalstór runnarós af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin stór, vel fyllt, rauðfjólblá og ilmandi. Blómgast frá því í júlí og eitthvað fram á haustið. Blómviljug. Þroskar lítið sem ekkert af nýpum. Rauðgulir haustlitir. Mjög algeng hérlendis. Mest notuð í raðir og þyrpingar. Hentar vel í limgerði sem ekki eru "stífklippt". Millibil um 80 sm. Vind- og saltþolin. Skríður eitthvað út sé hún á eigin rót. Stundum kölluð "Vestmannaeyjarós". Tvímælalaust algengasta rósin í íslenskum görðum. Ekki er óalgengt að ígulrósir (R. rugosa) séu í daglegu tali kallaðar "hansarósir" þó að í raun eigi það aðeins við um þetta tiltekna yrki af ígulrós. Gamalt hollenskt yrki.
Fjallarós ‘Hellisgerði’ – R. pendulina ‘Hellisgerði’
Harðgerð, meðalhá runnarós. Blómin fremur smá, einföld, rauðbleik, ljósari nær miðju. Blómgast yfirleitt fyrst rósa hérlendis, gjarnan seinni part júní. Stundum aftur snemma hausts. Daufur ilmur. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk en þolir hálfskugga. Fjallarós 'Hellisgerði' hentar stakstæð, fleiri saman eða í bland með öðrum gróðri.
Fjallarós ‘Lina’ – Rosa pendulina ‘Lina’
Harðgerður, meðalhár, þéttur runni. Hæð og breidd um 2 m. Dreifir sér eitthvað með rótarskotum. Sprotar eru grænir eða rauðbrúnir og nánast þyrnalausir. Greinar í fyrstu uppréttar en síðan með tímanum útsveigðar. Axlarblöð kirtilhærð á jöðrunum. Laufið fjaðrað og matt. Smáblöðin eru 5 - 11 talsins, oddbaugótt, tvísagtennt og 2 - 6 sm á lengd hvert og eitt. Smáblöðin eru dúnhærð. Blómin einföld, fremur smá, rauðbleik/fjólubleik og ilmandi. Krónublöð ljósari nær miðju. Með fyrstu rósum að byrja að blómstra á sumrin. Fyrstu blómin sjást gjarnan í júní. Blómgast annars í júlí. Ef sumarið er vætusamt og kalt blómstrar hún fram í ágúst eins og gerðist sumarið 2024. Rauðar, smáar, aflangar nýpur þroskast á haustin. Gulir - rauðgulir haustlitir.
Sólelsk en þolir vel hálfskugga. All vind- og saltþolin. Þrífst í öllum sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi. Blandið moltu eða stöðnu hrossataði saman við jarðveginn þar sem gróðursetja á fjallarós.
Fjallarós 'Lina' hentar sérlega vel í raðir /limgerði og þyrpingar. Einnig falleg stakstæð. Hentar í sumarhúsalóðir og villigarða þar sem hún þolir vel samkeppni við t.d. lúpínu. Þolir vel hóflega klippingu. Millibil um eða yfir 1 m. Í limgerði er 50 sm millibil hæfilegt. Þar sem fjallarós blómstrar á eldri greinar er heppilegt að klippa fjallarósalimgerði strax eftir blómgun í júlí eða ágústbyrjun. Fái hún að vaxa meira og minna frjálst felst snyrting aðallega í því að klippa í burt gamlar greinar alveg niður við jörð.
'Lina' er norskt úrvalsyrki frá Harstad sem m.a. þrífst í Finnmörku, N-Noregi. Annars eru náttúruleg heimkynni fjallarósar í fjöllum Mið- og S-Evrópu. Rósaætt (Rosaceae).
Ígulrós ‘Krístin’ – Rosa rugosa ‘Kristín’
Harðgerð, fremur lágvaxinn (1,5) runnarós. Blómin tvöfölld, rauðbleik, fremur stór, ilmandi og gjarnan nokkur saman í klasa. Rauðar nýpur þroskast að hausti. Rauðgulir - gulir haustlitir. Sólelsk. Skríður nokkuð út með rótarskotum. Vind- og saltþolin. Hentar í raðir, þyrpingar, brekkur og villigarða. Millibil: 80 - 100 sm. 'Kristín' er ein af rósum Jóhanns Pálssonar. Hún mun vera afkomandi R. rugosa 'Logafold' og (R. kamtschatica x ?).
Ígulrós ‘Logafold’ – Rosa rugosa ‘Logafold’
Rósin 'Logafold' er afrakstur rósakynbóta Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar. 'Logafold' er harðgerð og þétt runnarós. Vind- og saltþolin enda af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin eru stór, léttfyllt, fallega skálformuð, rauðfjólublá - bleik og ilmandi. Langur blómgunartími. Rauðar nýpur. Sólelsk en þolir hálfskugga. Hæð um 1,5 m. Framleidd og seld í Þöll á eigin rót. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 sm millibili. Getur einnig vaxið "villt" í sumarhúsalöndum og þess háttar. 'Logafold' er úr smiðju Jóhanns Pálssonar grasafræðings. Hún er afkomandi R. 'Charles Albanel x ?.
Rós ‘George Will’ – Rosa rugosa ‘George Will’
Harðgerð, meðalstór runnarós af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin stór, fagurbleik, hálffyllt og ilmandi. Ekki mikið um nýpur. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk. 'George Will' hentar í blönduð runna- og blómabeð, raðir, þyrpingar, sumarhúsalóðir og villigarða. Millibil um 80 sm. Sérlega blómviljug og snotur rós.
Rós ‘Örträsk’ – Rosa ‘Örträsk’ / ‘Örtelius’
Harðgerð, meðalhá runnarós (1,5 - 2,0 m). Talin blendingur ígulrósar (R. rugosa) og kanelrósar (R. majalis). Dreifir sér nokkuð út með rótarskotum. Blómin stór, hálffyllt, bleik og ilmandi. Blómgast frá miðju sumri og fram í frost. Þroskar rauðar nýpur sem má nýta til manneldis.
Sólelsk en þolir vel hálfskugga. Millibil 1 m. Hentar stakstæð, í blönduð beð, raðir og þyrpingar. Ættuð frá Lapplandi. Rósaætt (Rosaceae).
