Hrossakastanía – Aesculus hippocastanum
Fremur viðkvæmt tré. Laufblöðin eru sérlega stór, samsett. Brum stór. Blómin eru hvít í uppréttum klösum. Aldinið þyrnótt kúla með stórri „hnetu“ innan í. Hrossakastanía er tiltölulega sjaldgæf hérlendis. Í Reykjavík er til yfir 10 m hátt eintak. Hrossakastanía hefur blómstrað hérlendis en ekki þroskað aldin svo vitað sé.
Hrossakastanía þrífs eingöngu á hlýjum og skjólgóðum stöðum í djúpum og frjóum jarðvegi. Ættuð úr fjalllendi á Balkanskaga en algeng í ræktun í Evrópu og víðar.
Vöruflokkar: Tré, Tré og runnar í pottum
Tengdar plöntur
Beyki – Fagus sylvatica
Sumargrænt, lágvaxið - meðalstórt tré hérlendis. Getur trúlega farið upp fyrir 12 m hæð á bestu stöðum. Laufið skærgrænt þegar það springur út fyrir miðjan júní. Visið, gullinbrúnt laufið hangir á greinum ungra trjáa allan veturinn og einnig á neðstu greinum eldri trjáa. Brum hvassydd. Börkur, sléttur, grár. Þarf hlýjan vaxtarstað og frjóan jarðveg til að þrífast. Þolir vel hálfskugga. Þolir vel klippingu og gjarnan notað í klippt limgerði erlendis. Yrki með purpurarauðum laufum (sjá blóðbeyki) eru algengari hérlendis heldur en beyki með grænum laufum. Sumir eru á því að þau rauðu þrífist betur en þau grænu. Beyki finnst hér og þar í görðum en ekki gróðursett í skógrækt hérlendis ennþá enda full hitakær tegund til stórfelldrar ræktunar hérlendis. Heimkynni: Stór hluti Evrópu þó ekki allra nyrst.
Broddhlynur – Acer platanoides
Sæmilega harðgert, meðalhátt - hávaxið tré. Blöðin stór, þunn, með löngum blaðstilk, gagnstæð, handsepótt. Skuggþolinn en skjólþurfi. Hentar eingöngu til ræktunar í grónum hverfum eða í skógarskjóli. Sómir sér best stakstæður. Gulir - rauður haustlitir. Verður gjarnan fyrir haustkali. Ekki eins harðgerður og garðahlynur (Acer pseudoplatanus). Blómin eru smá, gulleit í klösum. Blómstar fyrir laufgun. Horn á milli hnotvængja um 180 gráður. Bjóðum einnig upp broddhlyn með purpuralitum/bronslituðum laufum (sjá myndir).
Döglingsþyrnir – Crataegus douglasii
Lítið tré eða runni (2-6 m). Þéttur. All harðgerður. Fremur hægvaxta. Laufið tvísagtennt, gljáandi. Rauðir haustlitir. Greinar þyrnóttar. Blómin hvít í sveip. Aldinið svart, ætt ber (kjarnaldin). Sólelskur en þolir hálfskugga. Döglingsþyrnir hentar sem stakstætt lítið tré, í þyrpingar með 2 m millibili eða í bland með öðrum runnum og jurtum. Hentar í klippt eða óklippt limgerði með um 0,7 - 1 m millibili. Hentar einnig í yndisskóga. Framleiðum eingöngu döglingsþyrni af fræi sem safnað er hérlendis. Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka, allt norður til Alaska.
Fjallagullregn – Laburnum alpinum
Harðgert, lágvaxið - meðalhátt tré (6 - 10 m). Gjarnan margstofna og umfangsmikið. Fjallagullregn er fremur hraðvaxta. Greinarnar vaxa gjarnan mest út til hliðanna. Þrífingrað lauf. Smáblöðin eru oddbaugótt eða egglaga, 3 - 10 sm á lengd. Hárlaus og aðeins gljáandi á efra borði. Hærð á jöðrum og á miðtaug á neðra borði. Laufgast ekki fyrr en í byrjun júní. Gulir haustlitir í lok september eða byrjun október eða frýs grænt. Gulir, ilmandi, drjúpandi blómklasar, 20 - 35 sm langir. Hvert blóm 0,5 - 2 sm á lengd. Byrjar að blómgast í lok júní eða byrjun júlí. "Baunabelgir" þroskast á haustin. Þeir eru flatir, hárlausir, 4 - 8 sm á lengd. Hver með nokkrum, dökkbrúnum fræum sem eru eitraðasti hluti trésins.
Sólelskt en þolir hálfskugga. Sómir sér vel stakstætt. Þarf talsvert pláss þegar fram líða stundir. Lifir í sambýli við niturbindandi bakteríur og gerir því litlar kröfur til jarðvegs. Hann má þó ekki vera blautur. Sagt kjósa fremur súran jarðveg heldur en kalkríkan. Klippið og snyrtið gullregn á sumrin til að minnka líkur á átu. Með allra glæsilegustu trjám sem völ er á. Sáir sér gjarnan eitthvað út en ekki til ama. Eitrað sé þess neytt.
Fjallagullregn er all vind- og saltþolið og sleppur yfirleitt við vorhret þar sem það laufgast fremur seint. Vissara er að binda það vel upp til að byrja með. Það á síður við ef gróðursettar eru litlar plöntur og/eða margstofna. Fjallagullregnið okkar er vaxið upp af íslensku fræi. Það tekur plönturnar all nokkur ár að ná blómgunaraldri. Oft er það í kringum 10 ára aldurinn en stundum fyrr og stundum síðar á æviskeiðinu.
Heimkynni: Fjalllendi Mið- og S-Evrópu. Ertublómaætt (Fabaceae).
Garðagullregn – Laburnum x watereri ‘Vossii’
All harðgert, fremur lágvaxið tré eða runni (3 - 7 m). Getur orðið nokkuð breitt. Börkur grænn á ungum greinum. Verður síðan gulbrúnn - brúnn með tímanum. Brum stakstæð og silfurhærð. Blöð þrífingruð. Smáblöðin eru sporöskjulaga 2,5 - 7 sm á lengd og allt að 3 sm breið. Blöð eru hærðari að neðanverðu til að byrja með samanborið við fjallagullregn. Blóm dæmigerð ertublóm, gul, ilmandi og um 2 sm löng. Hvert blóm er að jafnaði ívið stærra en blóm fjallagullregns. Þau sitja mörg saman í allt að 50 sm löngum klösum í júní og fram í júlí. Byrjar að blómgast ögn fyrr á sumrin samanborið við fjallagullregn. Aldinið er um 6 sm langur belgur. Þroskar yfirleitt lítið af fræi sem er almennt talið vera kostur þar sem fræið er eitraðasti hluti trésins. Fræið er annars dekkra samanborið við fræ fjallagullregns. Annars er garðagullregn eitrað sé þess neytt.
Sólelskt. Niturbindandi og gerir því litlar kröfur til jarðvegs. Hann má þó ekki vera blautur. Bindið upp eftir gróðursetningu. Hafið uppbindingar á að minnsta kosti fyrsta árið eftir gróðursetningu. Garðagullregni hættir til að losna. Til að létta á trjánum má stytta greinar í júlí/ágúst. Ekki klippa gullregn á öðrum árstíma. þar sem greinar hafa tilhneigingu til að vaxa meira á þverveginn en hæðina getur verið ráð að binda upp leiðandi toppsprota strax í upphafi.
Garðagullregn er ágrætt tré sem blómstrar strax á unga aldri. Garðagullregn er nettara tré samanborið við fjallagullregn. Sómir sér vel stakstætt eða innan um fjölæringa og runna. Hafið minnsta kosti 2-3 m á milli að næsta tré. Erlendis er garðagullregn gjarnan gróðursett við grindur og boga og bundið þar við og t.d. látið mynda bogagöng og þess háttar. Þannig notkun á garðagullregni ætti ekki síður að henta hérlendis. Ekki er óalgengt að garðagullregn blómstri mikið annað hvert ár og hvíli sig með minni eða engri blómgun þar á milli.
Garðagullregn er tegundablendingur milli fjallagullregns og strandgullregns (Laburnum anagyroides). Foreldrategundirnar vaxa í fjalllendi Mið-Evrópu. Yrkið 'Vossii' er upprunið í Hollandi í kringum árið 1875. Garðagullregn er vinsælt og útbreitt garðtré hérlendis og klárlega það gullregn sem mest er gróðursett í dag. Ertublómaætt (Fabaceae)
Glæsiþinur – Abies fraseri
Sígrænt, keilulaga barrtré, frekar lágvaxið tré (5-8 m). Óvíst er þó hversu hátt það verður hérlendis í framtíðinni. Nálar mjúkar, fagurgrænar að ofan en ljósar að neðan. Könglar uppréttir. Ilmar. Þarf nokkurt skjól í uppvextinum. Nokkuð skuggþolinn. Vinsælt jólatré í N-Ameríku. Nýlegur í ræktun hérlendis en lofar góðu. Hentar í skjólgóða garða og inn í skóga/undir skermi. Ættaður frá Appalasíufjöllum í SA-Bandaríkjunum.
Gljáhlynur – Acer glabrum var. douglasii
Fremur harðgert lágvaxið tré eða stór runni (3 - 6 m). Blöðin sepótt eða jafnvel fingruð. Gulir - rauðgulir haustlitir. Sprotar áberandi rauðir. Þolir hálfskugga. Gljáhlynur sómir sér vel stakstæður, í bland með öðrum trjágróðri eða blómgróðri. Gljáhlynur er með harðgerðustu hlyntegundum (Acer spp.) sem völ er á. Sprotarnir vilja þó trosna í vetrarstormum. Miklu fínlegri og nettari samanborði við garðahlyn (A. pseudoplatanus) en garðahlynur er algengasti hlynurinn hérlendis. Gljáhlynurinn okkar er allur vaxinn upp af íslensku fræi.
Heggur – Prunus padus
Harðgert, lágvaxið - meðalhátt tré (5 - 10 m). Ein- eða margstofna. Stundum runni. Blómin hvít, ilmandi í klösum í maí - júní. Stundum þroskast svört ber (steinaldin)í gisnum klösum að hausti. Gulir - rauðgulir haustlitir. Heggur þrífst í öllum sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi. Heggur sómir sér vel stakur eða fleiri saman í þyrpingum og röðum. Tilvalinn í sumarhúsalandið. Þolir vel hálfskugga. Lágmarks-millibil: 2 m. Þolir vel klippingu en blómgast þá minna. Heggurinn okkar er vaxinn upp af fræi sem safnað er hérlendis. Heimkynni: Norður og M-Evrópu, Norður og NA-Asía.
