Baugavíðir ‘Ljúfa’ – Salix ovalifolia ‘Ljúfa’
Harðgerður, sumargrænn dvergrunni. Meira og minna jarðlægur. Hæð 10 – 20 sm. Laufin gljáandi, smá, breið oddbaugótt – öfugegglaga. Blaðgrunnur bogadreginn. Sljóydd í endann. Blöð gjarnan lítið eitt hærð á neðra borði. Gulir haustlitir.
Baugavíðir ‘Ljúfa’ er sólelskur annars nægjusamur. Hentar helst í hleðslur, steinhæðir og þess háttar.
Baugavíður ‘Ljúfa’ er úrvalsyrki sem Ólafur S. Njálsson valdi úr efniviði þeim sem kom frá Alaska þegar Óli Valur Hansson og félagar voru þar á ferð haustið 1985. Líklega eini baugavíðirinn sem hér er í ræktun.
Heimkynni: Alaska og Júkon og Norðvesturhéruðin í Kanada. Vex þar gjarnan í sendnu landi við strendur, í freðmýrum og þess háttar. Víðisætt (Salicaeae).
Vöruflokkar: Runnar, Tré og runnar í pottum
Tengdar plöntur
Bergreynir – Sorbus x ambigua
Harðgert lítið, sumargrænt tré eða all stór runni (2 - 5 m). Ýmist ein- eða margstofna. Lauf sporöskjulaga og sagtennt. Blómin eru rauðbleik í hálfsveip fyrri part sumars. Rauð ber (berepli) í klösum í september. Rauðgulir haustlitir.
Minnir mjög á úlfareyni (S. x hostii). Blöð bergreynis eru minna hærð og meira gljáandi samanborið við úlfareyni, einnig á neðra borði. Blómin eru ívið rauðari samanborið við úlfareyni. Vindþolinn og trúlega saltþolinn einnig.
Bergreyni sómir sér stakstæður, í beðum með öðrum gróðri, í raðir og þyrpingar. Mætti jafnvel nota í klippt limgerði. Tilvalinn í sumarhúsalóðina. Millibil 1,5 - 2 m. Í limgerði 50 - 100 sm. Byrjar ungur að blómgast og þroska ber, fyrr samanborið við úlfareyni.
Bergreynir er náttúrulegur blendingur seljureynis (Sorbus aria) og blikreynis (S. chamaemespilus). Íslenski stofninn er líklega allur kominn af tré/trjám í Grasagarði Rvk sem uxu upp af fræi frá Haute-Savoie í frönsku Ölpunum og sáð var til árið 1989.
Vex villtur í fjalllendi Mið - S-Evrópu. Rósaætt (Rosaceae).
Birkikvistur – Spiraea betulifolia
Mjög harðgerður, fremur lágvaxinn (1 m), þéttur runni. Blómin hvít í sveipum miðsumars. Rauðir haustlitir. Þolir hálfskugga. Vind- og saltþolinn. Hentar í potta, raðir og þyrpingar. Þolir vel klippingu. Klipptir birkikvistar blómstra minna en ella. Bil milli plantna ætti ekki að vera minna en 60 sm. Mjög algengur og vinsæll hérlendis. Þetta yrki gengur undir heitunum 'Birkikvistur', 'Ísland' og 'Island' og er fáanlegt víða í Evrópu.
Bjarkeyjarkvistur – Spiraea chamaedryfolia
Harðgerður, þéttur, meðalhár runni (1,5 m). Laufið matt, óreglulega tennt. greinar ljósbrúnar, áberandi hlykkjóttar. Blómin hvít í sveip. Fræflar skaga upp fyrir krónublöðin. Blómgast miðsumars eða fyrir mitt sumar í lok júní og fram í júlí. Gulir og rauðir haustlitir. Bjarkeyjarkvistur hefur aðeins skriðullt rótarkerfi. Þolir vel hálfskugga. Þrífst í allri venjulegri garðmold. Hentar í runnaþyrpingar, raðir og undir stórum trjám. Millibil um 80 sm.
Bjarmasýrena ‘Valkyrja’ – Syringa wolfii ‘Valkyrja’
Harðgerður, þéttur, meðalhár runni (1,5 - 2,5 m). Blómin lillableik, ilmandi í klösum. Lágvaxnari en aðrar sýrenur. Sólelsk en þolir hálfskugga. Nýtur sín vel stakstæð eða fleiri saman í þyrpingu með um 120 sm millibili. Hentar einnig í stóra potta. Kettir sækja talsvert í Bjarmasýrenu 'Valkyrju' og geta eyðilagt hana meðan hún er ung. Því borgar sig að setja girðingu/net utan um nýgróðursettar plöntur og hafa það í kring fyrstu árin þar sem mikið er um ketti. 'Valkyrja' er úrval úr Grasagarði Reykjavíkur.
Bogsýrena – S. komarowii ssp. reflexa ‘Hólmfríður’
Harðgerður, stórvaxinn runni eða lítið tré (3 - 4 m). Blómin fyrst lillableik en síðan bleik í drjúpandi klösum, ilmandi. Blómgast miðsumars (júlí). Móðurtréið stendur í garðinum að Skúlaskeiði 32, Hafnarfirði þar sem Hólmfríður Finnbogadóttir og Reynir Jóhannsson bjuggu lengst af. Hólmfríður var formaður og síðan framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Þallar ehf.
Döglingsþyrnir – Crataegus douglasii
Lítið tré eða runni (2-6 m). Þéttur. All harðgerður. Fremur hægvaxta. Laufið tvísagtennt, gljáandi. Rauðir haustlitir. Greinar þyrnóttar. Blómin hvít í sveip. Aldinið svart, ætt ber (kjarnaldin). Sólelskur en þolir hálfskugga. Döglingsþyrnir hentar sem stakstætt lítið tré, í þyrpingar með 2 m millibili eða í bland með öðrum runnum og jurtum. Hentar í klippt eða óklippt limgerði með um 0,7 - 1 m millibili. Hentar einnig í yndisskóga. Framleiðum eingöngu döglingsþyrni af fræi sem safnað er hérlendis. Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka, allt norður til Alaska.
Fjallarifs/Alparifs ‘Lára’- Ribes alpinum ‘Lára’
Harðgerður, fremur lágvaxinn runni (1,5 m). Laufið fremur smátt, handsepótt og áberandi hvítyrjótt. Gulir haustlitir. Gulgræn blóm í klösum fyrri part sumar ekki áberandi. Fjallarifs 'Lára' er kvenkyns þroskar gjarnan rauð ber á haustin. Berin eru æt en bragðdauf.
Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Fjallarifs 'Lára' er fallegast í hálfskugga. Hentar í blönduð beð með t.d. hvítblómstrandi runnum og blómum. Einnig sem undirgróður undir t.d. birkitrjám. Millibil um 50 sm sé því plantað í raðir/limgerði annars 70 - 80 sm.
'Lára' kom upphaflega upp af fræi í Þöll. Fræinu var safnað í Fossvogskirkjugarði, Rvk. Yrkið fæst ekki annars staðar. Kennt við Láru Þöll Búadóttur barnabarn Hólmfríðar Finnbogadóttir en Hólmfríður var formaður og síðan framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Þallar allt til ársins 2013. Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
