Lágkvistur – Spiraea humilis

Fremur harðgerður, lágvaxinn runni (30 – 40 sm). Laufið fremur ljósgrænt. Rauðgulir haustlitir. Stórir ljósbleikir, keilulaga blómklasar síðsumars (Seinni part júlí – ágúst). Lágkvistur skríður aðeins út með rótarskotum. Þolir hálfskugga. Lágkvistur fer vel í blönduðum beðum með runnum og fjölæringum. Heimkynni: A-Rússland. Stundum talinn undirtegund víðikvists (S. salicifolia).

Vörunr. a48872e4fff2 Vöruflokkar: ,