Renglurós ‘Dart’s Defender’ – Rosa x rugotida ‘Dart’s Defender’
Harðgerð runnarós. Hæð: 1 – 1,5 m. Laufið áberandi gljáandi. Þéttþyrnótt. Blómin meðalstór, rauðfjólublá, hálffyllt og ilmandi. Blómstrar frá miðju sumri og fram á haust. Rauðgulir haustlitir. Þroskar gjarnan rauðar nýpur á haustin. Hentar í raðir og þyrpingar og í bland með öðrum runnum. Millibil um 1 m. Skríður eitthvað út með rótarskotum. ‘Dart’s Defender’ er tegundablendingur hansarósar (R. rugosa ‘Hansa’) og brúðurósar (R. nidita). Hollenskt yrki frá árinu 1971.
Vöruflokkur: Rósir
Tengdar plöntur
Rós ‘Schneekoppe’ – Rosa rugosa ‘Schneekoppe’
Harðgerð lágvaxin - meðalhá runnarós (1 - 1,5 m). Blöðin fremur mött, stakfjöðruð, ljósgræn. Talsvert þyrnótt. Blómin stór, fyllt, föl-lillableik - hvít, ilmandi, ögn drjúpandi (rósirnar þungar). Þroskar lítið eða ekki nýpur. Gulir haustlitir. Sólelsk. 'Schneekoppe' hentar í blönduð runna- og rósabeð, raðir, þyrpingar, ker, villigarða og sumarhúsalóðir. All vind- og saltþolin. Millibil 80 - 100 sm. Úr smiðju Karl Baum, Þýskalandi.
Ígulrós ‘Krístin’ – Rosa rugosa ‘Kristín’
Harðgerð, fremur lágvaxinn (1,5) runnarós. Blómin tvöfölld, rauðbleik, fremur stór, ilmandi og gjarnan nokkur saman í klasa. Rauðar nýpur þroskast að hausti. Rauðgulir - gulir haustlitir. Sólelsk. Skríður nokkuð út með rótarskotum. Vind- og saltþolin. Hentar í raðir, þyrpingar, brekkur og villigarða. Millibil: 80 - 100 sm. 'Kristín' er ein af rósum Jóhanns Pálssonar. Hún mun vera afkomandi R. rugosa 'Logafold' og (R. kamtschatica x ?).
Fjallarós ‘Lina’ – R. pendulina ‘Lina’
Harðgerður, meðalhár, þéttur runni. Hæð og breidd um 2 m. Laufið fagurgrænt, meðalstórt, fjaðrað. Blómin fremur smá, rauðbleik. Krónublöð ljósari nær miðju. Með fyrstu rósum að byrja að blómstra á sumrin jafnvel í júní. Rauðar, smáar, aflangar nýpur þroskast á haustin. Gulir - rauðgulir haustlitir. Nánast þyrnalaus. Sólelsk en þolir vel hálfskugga. Fjallarós hentar sérlega vel í raðir /limgerði og þyrpingar. Einnig falleg stakstæð. Þolir vel hóflega klippingu.
Ígulrós ‘Hadda’ – Rosa rugosa ‘Hadda’
Harðgerð runnarós. Vaxtarlagið útbreitt. Hefur því þekjandi eiginleika. Hæð: 1 - 1,5 m. Blómin stór, hálffyllt, rauðfjólublá og ilmandi. Er með fyrstu ígulrósum að byrja að blómstra á sumrin. Blómgast fram á haust. Rauðar, flathnöttóttar nýpur þroskast að hausti. Blaðstönglar og axlarblöð rauðleit. Gulbrúnir haustlitir. Sólelsk. Þrífst best í aðeins sendnum/grýttum og vel framræstum jarðvegi. Blandið lífrænu efni (búfjáráburði/moltu) saman við jarðveginn við gróðursetningu. 'Hadda' hentar í breiðuplantanir til að þekja yfirborð og sem jaðarplanta í trjábeðum. Einnig í blönduð runnabeð, brekkur og þess háttar. Rótarkerfið skríður lítið sem ekkert út. 'Hadda' er úr smiðju Jóhanns Pálssonar og er blendingur R. rugosa 'Rotes Meer' x R. kamtschatica.
Rós ‘Skotta’ – Rosa ‘Skotta’
Harðgerður, lágvaxinn - meðalstór runni (1 - 1,5 m). Sólelsk. Blómin bleik, vel fyllt og ilmandi. Skriðul. Engar nýpur. Laufið ljósgrænt, stakfjaðrað og matt. Gulir haustlitir. Hentar í runnaþyrpingar, raðir, opin svæði, villigarða og þess háttar. Mjög blómsæl. Blómgast frá miðju sumri og fram á haust. Algeng í íslenskum görðum. Hefur í gegnum tíðina verið ranglega seld undir heitunum 'Betty Bland', 'Wasagaming', 'George Will' og þokkarós. 'Skotta' óx upp af fræi í Grasagarði Reykjavíkur árið 1965. Fræið kom frá grasagarðinum í Wageningen í Hollandi.