Garðakvistill ‘Diabolo’ – Physocarpus opulifolius ‘Diabolo’
Lágvaxinn – meðalstór runni. Laufið dökk-purpurarautt. Ljósir blómsveipir miðsumars. Skærrauðir haustlitir. Þrífst vel í grónum hverfum. Sólelskur. Verður gjarnan fyrir einhverju haustkali. Þolir vel klippingu. Garðakvistill ‘Diabolo’ fer sérlega vel í blönduðum beðum með ljósari plöntum eða framan við ljósa fleti.
Vörunr.
f1a852fcf655
Vöruflokkar: Runnar, Tré og runnar í pottum
Tengdar plöntur
Baunatré – Caragana arborescens
Harðgerður runni eða lítið tré (1,5 - 2,5 m). Blómin smá, gul, ilmandi. Þau eru æt og má nota í salat. Aldinið belgur með nokkrum ætum baunum/fræjum. Sjóðið fræin áður en þeirra er neytt. Laufið er fjaðrað, mjög ljóst, nánast hvítt á vorin og fyrri part sumars en síðan áberandi gulgrænt. Axlarblöð lík þyrnum. Greinar grænleitar. Sólelskt. Hægvaxta. Lifir í sambýli við niturbinandi bakteríur. Baunatré gerir því litlar kröfur til jarðvegs. Baunatré sómir sér vel stakstætt í garðinum eða í blönduð beð með öðrum gróðri. Einnig má planta baunatré í klippt eða óklippt limgerði. Gengur einnig undir nöfnunum "síberískt baunatré" og "kergi". Náttúruleg heimkynni baunatrés er M-Asía.
Bergreynir – Sorbus x ambigua
Harðgert lítið, sumargrænt tré eða all stór runni (2 - 5 m). Ýmist ein- eða margstofna. Lauf sporöskjulaga og sagtennt. Blómin eru rauðbleik í hálfsveip fyrri part sumars. Rauð ber (berepli) í klösum í september. Rauðgulir haustlitir.
Minnir mjög á úlfareyni (S. x hostii). Blöð bergreynis eru minna hærð og meira gljáandi samanborið við úlfareyni, einnig á neðra borði. Blómin eru ívið rauðari samanborið við úlfareyni. Vindþolinn og trúlega saltþolinn einnig.
Bergreyni sómir sér stakstæður, í beðum með öðrum gróðri, í raðir og þyrpingar. Mætti jafnvel nota í klippt limgerði. Tilvalinn í sumarhúsalóðina. Millibil 1,5 - 2 m. Í limgerði 50 - 100 sm. Byrjar ungur að blómgast og þroska ber, fyrr samanborið við úlfareyni.
Bergreynir er náttúrulegur blendingur seljureynis (Sorbus aria) og blikreynis (S. chamaemespilus). Íslenski stofninn er líklega allur kominn af tré/trjám í Grasagarði Rvk sem uxu upp af fræi frá Haute-Savoie í frönsku Ölpunum og sáð var til árið 1989.
Vex villtur í fjalllendi Mið - S-Evrópu. Rósaætt (Rosaceae).
Birkikvistur – Spiraea betulifolia
Mjög harðgerður, fremur lágvaxinn (1 m), þéttur runni. Blómin hvít í sveipum miðsumars. Rauðir haustlitir. Þolir hálfskugga. Vind- og saltþolinn. Hentar í potta, raðir og þyrpingar. Þolir vel klippingu. Klipptir birkikvistar blómstra minna en ella. Bil milli plantna ætti ekki að vera minna en 60 sm. Mjög algengur og vinsæll hérlendis. Þetta yrki gengur undir heitunum 'Birkikvistur', 'Ísland' og 'Island' og er fáanlegt víða í Evrópu.
Fjallarifs/Alparifs ‘Lára’- Ribes alpinum ‘Lára’
Harðgerður, fremur lágvaxinn runni (1,5 m). Laufið fremur smátt, handsepótt og áberandi hvítyrjótt. Gulir haustlitir. Gulgræn blóm í klösum fyrri part sumar ekki áberandi. Fjallarifs 'Lára' er kvenkyns þroskar gjarnan rauð ber á haustin. Berin eru æt en bragðdauf.
Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Fjallarifs 'Lára' er fallegast í hálfskugga. Hentar í blönduð beð með t.d. hvítblómstrandi runnum og blómum. Einnig sem undirgróður undir t.d. birkitrjám. Millibil um 50 sm sé því plantað í raðir/limgerði annars 70 - 80 sm.
'Lára' kom upphaflega upp af fræi í Þöll. Fræinu var safnað í Fossvogskirkjugarði, Rvk. Yrkið fæst ekki annars staðar. Kennt við Láru Þöll Búadóttur barnabarn Hólmfríðar Finnbogadóttir en Hólmfríður var formaður og síðan framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Þallar allt til ársins 2013. Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
Koparreynir – Sorbus frutescens
Harðgerður meðalhár - hávaxinn runni (2 - 3 m). Brum nær svört. Greinar útsveigðar með tímanum og dálítið drjúpandi. Blöðin dökkgræn, mött, fínleg, stakfjöðruð og allt að 18 sm löng. Smáblaðapör venjulega 11 - 12 talsins. Smáblöð 15 - 24 mm löng alla jafna, tennt, egglaga - lensulaga. Rauðir haustlitir í september. Smáir, hvítir blómsveipir snemmsumars. Hvít - fölbleik ber í stórum klösum þroskast á haustin. Mikið af berjum þroskast á hverju hausti einnig þó sumarið sé slakt!. Koparreynir er "apomictic" smátegund og er því einsleitur upp af fræi.
Koparreynir þrífst í allri venjulegri garðmold sem ekki er of blaut. Koparreynir er glæsilegur stakstæður. Einnig fallegur í röðum og þyrpingum með 1 - 1,5 m millibili. Koparreyni má einnig gróðursetja í limgerði sem eru ýmist klippt eða meira og minna óklippt. Hæfilegt millibil er 50 - 60 sm í limgerði. Koparreynir er fallegastar í fullri sól en þolir vel hálfskugga. Klippið á sumrin en ekki að hausti eða vetri til að forðast reyniátu (Cytospora rubescens). Koparreynir er vinsæll og algengur í íslenskum görðum. Heimkynni: Kína. Líklega frá NV-Gansu. Rósaætt (Rosaceae).
Lækjavíðir ‘Blika’ – Salix arbusculoides ‘Blika’
Harðgerður, fremur hraðvaxta, hávaxinn runni eða margstofna tré. Hæð 3 - 6 m. Sprotar grannir, dökkrauðbrúnir og gljáandi. Laufblöð lensulaga - mjósporbaugótt, ydd í báða enda og gljándi á efra borði. Ljósari og gjarnan aðeins hærð að neðan. Laufin eru allt að 7,5 sm löng og kirtiltennt. Er með axlarblöð sem falla fljótt. Haustlitur gulur.
Sólelskur. Þolir vel klippingu. Laus við asparglyttu og ryð. Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi sem má gjarnan vera sand- og malarborinn. Lækjavíðir 'Blika' hentar vel í klippt limgerði. Einnig fer hann vel í þyrpingar og við læki og tjarnir. 2 - 3 stk/m henta í limgerði. Meira bil þarf að gefa þegar lækjavíðir er gróðursettur í þyrpingar eða stakur eða um 1,5 m. Lækjavíðir 'Blika' hentar ekki á mjög vindasama staði t.d. úti við ströndina. Þá henta jörfavíðir (S. hookeriana) og alaskavíðir (S. alaxensis) betur.
'Blika' er úrvalsyrki valin úr efniviði úr Alaskaferð Óla Vals og félaga árið 1985. Henni var safnað nálægt Port Alsworth við Clark stöðuvatnið sunnarlega í vesturhluta Alaska. Heimkynni lækjarvíðis eru annars auk Alaska, stærstur hluti Kanada. Lækjavíðir vex aðallega inn til landsins meðfram ám og lækjum. Víðisætt (Salicaceae).
Myrtuvíðir ‘Vala’ – Salix myrsinites ‘Vala’
Mjög harðgerður, þéttur, lágvaxinn (60 - 100 sm stundum hærri) runni. Laufið, smágert, dökkgrænt, tennt og gljáandi. Gulir haustlitir. Gullinbrúnt, visið laufið situr á greinunum fram á vor. Reklar með vínrauðum frævum birtast á vorin. Sólelskur en annars nægjusamur. Vind- og saltþolinn.
Myrtuvíðir hentar sérstaklega vel í þyrpingar, raðir, til klæða brekkur og þess háttar. Þolir klippingu. Má t.d. gróðursetja í lágvaxin limgerði. Millibil almennt 70 - 100 sm. Asparglytta sækir nokkuð í myrtuvíði. Asparglytta er síður vandamál á vindasömum stöðum. Vinsæll og útbreiddur hérlendis.
Yrkið sem er kvenkyns er kennt við Óla Val Hansson garðyrkjuráðanaut sem kom með umræddan myrtuvíði hingað til lands frá Vadsø í N-Noregi árið 1963. Heimkynni: N-Evrópa. Víðisætt (Salicaceae).
