Vetrartoppur – Lonicera pileata
Lágvaxinn (50 sm), sígrænn runni. Laufið smátt, gljándi og heilrennt. Blóm og aldin lítið áberandi. Vex meira og minna lágrétt. Skuggþolinn. Þrífst í venjulegri, framræstri garðmold á skjólsælum stöðum. Þekjandi. Skýlið fyrsta veturinn eftir gróðursetningu nema að skjólið sé þeim mun meira. Hentar framarlega í beð, sem undirgróður undir trjám og þess háttar. Millibil um 50 – 70 sm. Erlendis gjarnan gróðursettur í lágvaxin limgerði.
Vörunr.
890bcbdc5ef6
Vöruflokkar: Sígrænir runnar og sígræn smátré, Tré og runnar í pottum, Þekjuplöntur
Tengdar plöntur
Bergreynir – Sorbus x ambigua
Harðgert lítið, sumargrænt tré eða all stór runni (2 - 5 m). Ýmist ein- eða margstofna. Lauf sporöskjulaga og sagtennt. Blómin eru rauðbleik í hálfsveip fyrri part sumars. Rauð ber (berepli) í klösum í september. Rauðgulir haustlitir.
Minnir mjög á úlfareyni (S. x hostii). Blöð bergreynis eru minna hærð og meira gljáandi samanborið við úlfareyni, einnig á neðra borði. Blómin eru ívið rauðari samanborið við úlfareyni. Vindþolinn og trúlega saltþolinn einnig.
Bergreyni sómir sér stakstæður, í beðum með öðrum gróðri, í raðir og þyrpingar. Mætti jafnvel nota í klippt limgerði. Tilvalinn í sumarhúsalóðina. Millibil 1,5 - 2 m. Í limgerði 50 - 100 sm. Byrjar ungur að blómgast og þroska ber, fyrr samanborið við úlfareyni.
Bergreynir er náttúrulegur blendingur seljureynis (Sorbus aria) og blikreynis (S. chamaemespilus). Íslenski stofninn er líklega allur kominn af tré/trjám í Grasagarði Rvk sem uxu upp af fræi frá Haute-Savoie í frönsku Ölpunum og sáð var til árið 1989.
Vex villtur í fjalllendi Mið - S-Evrópu. Rósaætt (Rosaceae).
Birki / Ilmbjörk – Betula pubescens
Harðgert íslenskt tré. Hæð breytileg. Sólelskt. Í meðallagi hraðvaxið. Þrífst best í frjóum jarðvegi en annars nægjusamt. Getur lifað í all blautum jarðvegi. Lauf ilmar, sérstaklega á vorin í röku veðri. Haustlitur á ekta ilmbjörk er gulur. Eina trjátegundin sem myndað hefur skóga hérlendis frá því að síðustu ísöld lauk fyrir um 10.000 árum. Myndar gjarnan blendinga með fjalldrapa (B. nana). Blendingurinn kallast skógviðarbróðir og er misstór runni en ekki tré og mjög algengur í íslenskri náttúru, sérstaklega vestanlands. Skógviðarbróðir hefur yfirleitt dökkan / svartan börk, smágert lauf og rauðgulan haustlit. Birki hentar sem stakstætt tré eða fleiri saman í þyrpingum og röðum með að minnsta kosti 2,5 m millibili. Einnig notað til skógræktar og uppgræðslu. Vex þó hægt í ófrjóu landi. Birki hentar einnig í klippt limgerði á sólríkum stöðum. Upp á síðkastið hafa nýjar tegundir skordýra sem herja á birki numið land. Birkið okkar í Þöll er af Bæjarstaða-uppruna. Móðurtréin eru af yrkinu 'Embla'. Því fá tréin venjulega ljósan börk með aldrinum. Náttúruleg heimkynni imbjarkar eru auk Íslands mestur hluti Evrópu nema syðst, Norður og Mið-Asía og S-Grænland.
Bjarkeyjarkvistur – Spiraea chamaedryfolia
Harðgerður, þéttur, meðalhár runni (1,5 m). Laufið matt, óreglulega tennt. greinar ljósbrúnar, áberandi hlykkjóttar. Blómin hvít í sveip. Fræflar skaga upp fyrir krónublöðin. Blómgast miðsumars eða fyrir mitt sumar í lok júní og fram í júlí. Gulir og rauðir haustlitir. Bjarkeyjarkvistur hefur aðeins skriðullt rótarkerfi. Þolir vel hálfskugga. Þrífst í allri venjulegri garðmold. Hentar í runnaþyrpingar, raðir og undir stórum trjám. Millibil um 80 sm.
Bjarmasýrena ‘Valkyrja’ – Syringa wolfii ‘Valkyrja’
Harðgerður, þéttur, meðalhár runni (1,5 - 2,5 m). Blómin lillableik, ilmandi í klösum. Lágvaxnari en aðrar sýrenur. Sólelsk en þolir hálfskugga. Nýtur sín vel stakstæð eða fleiri saman í þyrpingu með um 120 sm millibili. Hentar einnig í stóra potta. Kettir sækja talsvert í Bjarmasýrenu 'Valkyrju' og geta eyðilagt hana meðan hún er ung. Því borgar sig að setja girðingu/net utan um nýgróðursettar plöntur og hafa það í kring fyrstu árin þar sem mikið er um ketti. 'Valkyrja' er úrval úr Grasagarði Reykjavíkur.
Koparreynir – Sorbus frutescens
Harðgerður meðalhár - hávaxinn runni (2 - 3 m). Brum nær svört. Greinar útsveigðar með tímanum og dálítið drjúpandi. Blöðin dökkgræn, mött, fínleg, stakfjöðruð og allt að 18 sm löng. Smáblaðapör venjulega 11 - 12 talsins. Smáblöð 15 - 24 mm löng alla jafna, tennt, egglaga - lensulaga. Rauðir haustlitir í september. Smáir, hvítir blómsveipir snemmsumars. Hvít - fölbleik ber í stórum klösum þroskast á haustin. Mikið af berjum þroskast á hverju hausti einnig þó sumarið sé slakt!. Koparreynir er "apomictic" smátegund og er því einsleitur upp af fræi.
Koparreynir þrífst í allri venjulegri garðmold sem ekki er of blaut. Koparreynir er glæsilegur stakstæður. Einnig fallegur í röðum og þyrpingum með 1 - 1,5 m millibili. Koparreyni má einnig gróðursetja í limgerði sem eru ýmist klippt eða meira og minna óklippt. Hæfilegt millibil er 50 - 60 sm í limgerði. Koparreynir er fallegastar í fullri sól en þolir vel hálfskugga. Klippið á sumrin en ekki að hausti eða vetri til að forðast reyniátu (Cytospora rubescens). Koparreynir er vinsæll og algengur í íslenskum görðum. Heimkynni: Kína. Líklega frá NV-Gansu. Rósaætt (Rosaceae).
Lækjavíðir ‘Blika’ – Salix arbusculoides ‘Blika’
Harðgerður, fremur hraðvaxta, hávaxinn runni eða margstofna tré. Hæð 3 - 6 m. Sprotar grannir, dökkrauðbrúnir og gljáandi. Laufblöð lensulaga - mjósporbaugótt, ydd í báða enda og gljándi á efra borði. Ljósari og gjarnan aðeins hærð að neðan. Laufin eru allt að 7,5 sm löng og kirtiltennt. Er með axlarblöð sem falla fljótt. Haustlitur gulur.
Sólelskur. Þolir vel klippingu. Laus við asparglyttu og ryð. Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi sem má gjarnan vera sand- og malarborinn. Lækjavíðir 'Blika' hentar vel í klippt limgerði. Einnig fer hann vel í þyrpingar og við læki og tjarnir. 2 - 3 stk/m henta í limgerði. Meira bil þarf að gefa þegar lækjavíðir er gróðursettur í þyrpingar eða stakur eða um 1,5 m. Lækjavíðir 'Blika' hentar ekki á mjög vindasama staði t.d. úti við ströndina. Þá henta jörfavíðir (S. hookeriana) og alaskavíðir (S. alaxensis) betur.
'Blika' er úrvalsyrki valin úr efniviði úr Alaskaferð Óla Vals og félaga árið 1985. Henni var safnað nálægt Port Alsworth við Clark stöðuvatnið sunnarlega í vesturhluta Alaska. Heimkynni lækjarvíðis eru annars auk Alaska, stærstur hluti Kanada. Lækjavíðir vex aðallega inn til landsins meðfram ám og lækjum. Víðisætt (Salicaceae).
Skrautreynir – Sorbus decora
Lítið - meðalstórt, fremur harðgert tré. Stundum runni. Hæð: 4 - 10 m. Brum eru dökkrauðbrún, gljáand og klístruð. Ekki gráloðin eins og brum ilmreynis/reyniviðar (S. aucuparia). Laufblöð stór, stakfjöðruð. Smáblöð 11 - 17 talsins. Smáblöð 5 - 10 cm á lengd og 1 - 2,5 cm á breidd. Rauðir og gulir haustlitir. Smáblöðin eru hlutfallslega breiðari og sljóyddari á skrautreyni samanborið við reynivið. Blómin smá, mörg saman í þéttum, sveiplaga skúfum sem geta verið allt að 25 cm í þvermál. Blómgast í júní. Rauðir, stórir berjaklasar í september. Hvert ber er allt að 7 mm í þvermál. Fuglar sækja í berin. Þolir hálfskugga. Í meðallagi vindþolinn.
Þrífst best í þokkalega frjóum, meðalrökum jarðvegi. Millibil að minnsta kosti 3 m. Fallegt og hæfilega stórt garðtré. Virðist sæmilega vind- og saltþolinn. Notkun skrautreynis hefur aukist mikið síðastliðna tvo áratugi. Virðist ekki eins næmur fyrir reyniátu (Valsaria insitiva) samanborið við reynivið.
Skrautreynir myndar fræ með geldæxlun og er því einsleitur samanborið við ilmreyni. Heimkynni: Norðaustanverð N-Ameríka, aðallega í A-Kanada. Á Grænlandi vex náskyld tegund (S. groenlandica) sem stundum er talin vera undirtegund skrautreynis. Rósaætt (Rosaceae).
Þorrarunni ‘Dawn’ – Viburnum x bodnantense ‘Dawn’
Sumargrænn, meðalhár runni (1,5 - 2,5 m). Ung lauf bronslituð. Þorrarunni blómgast að vetri til eða réttara sagt hann getur blómgast frá hausti og fram á vor. Blómin eru rauð í knúpp en bleik útsprungin mörg saman í sveip, ilmandi. Þolir vel hálfskugga. Þorrarunni er glæsilegur stakstæður en einnig fleiri saman í þyrpingu með um 1 m millibili. Þorrarunni virðist harðgerður á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Fremur sjaldgæfur í ræktun enn sem komið er.
