Kirtilrifs – Ribes glandulosum
Harðgerður, jarðlægur, þekjandi runni. Hæð yfirleitt aðeins 30 - 40 sm. Stundum hærra ef það nær að fikra sig upp girðingar eða upp með öðrum gróðri. Brum rauð. Laufblöð handflipótt með yfirleitt 5 flipum. Allt að 8 (10) sm á breidd, um 6,5 sm á lengd og tvísagtennt. Hárlaus á efra borði en hærð á æðastrengjum á neðra borði. Blaðstilkur álíka langur og blaðkan og kirtilhærður neðst. Laufið er yfirleitt smærra en á hélurifsi og meira gljáandi. Laufgast í lok apríl - maí. Rauðir haustlitir. Blómin smá, fölgræn eða ljósbleik í klösum. Lítt áberandi. Rauð, kirtilhærð, æt ber þroskast strax í ágúst. Ögn smærri eða álíka stór og venjuleg rifsber.
Skuggþolið. Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Blandið moltu eða gömlu taði saman við jarðveginn við gróðursetningu. Getur þakið 1 fermeter á fáum árum. Hentar sem undirgróður undir trjám og runnum. Þrífst illa í of þurrum og ófrjóum jarðvegi. Millibil allt að 1 m. Má setja þéttar ef óskað er eftir því að það loki yfirborðinu sem allra fyrst.
Heimkynni: Alaska, Kanada, norðanverð Bandaríkin ásamt Appalasíufjöllum. Garðaberjaætt (Grossulariaceae)
Hélurifs ‘Rökkva’ – Ribes laxiflorum ‘Rökkva’
Harðgerður, mjög kröftugur, jarðlægur þekjandi runni. Blöðin eru stærri samaborið við lauf kirtilrifs (R. glandulosum). Laufgast í apríl. Rauðir, áberandi haustlitir sem birtast strax í ágúst. Rauð brum áberandi á veturna. Skuggþolið. Sérlega öflug þekjuplanta. Hentar vel sem þekjuplanta undir trjám og stærri runnum. Getur klifrað upp veggi, tré o.þ.h. Hentar einnig í raðir sem lágvaxið gerði. 'Rökkva' þroskar yfirleitt ekki ber. Blómin eru rauðbrún en ekki sérlega áberandi. Ein planta þekur 1 fermeter á fáum árum. Þrífst illa í þurrum og ófrjóum jarðvegi. 'Rökkva' er úrvalsyrki úr efnivið sem safnað var í Alaska í leiðangri Óla Vals Hanssonar og félaga árið 1985.
Hélurifs ‘Lukka’ – Ribes laxiflorum ‘Lukka’
Harðgerður, lágvaxinn (30 - 50 sm), jarðlægur runni. Laufið handflipótt. Laufgast í apríl. Rauðir haustlitir birtast strax í ágúst. Rauðbrún blóm í klasa í maí. Blá, héluð, , hærð, æt ber þroskast í lok júlí eða í ágúst. Má nýta í sultu og fleira.
Hélurifs 'Lukka' þrífst í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Skuggþolið en mest berjauppskera fæst í fullri sól. Hentar sem undirgróður undir trjám, í kanta, jaðra og þess háttar. Nóg er að planta 1 - 2 plöntum á fermetra. 'Lukka' er úrvalsyrki úr Lystigarði Akureyrar. Heimkynni: Vestanverð N-Ameríka. Garðaberjaætt (Grossulariaceae).