Kristsþyrnir ‘Blue Princess’ – Ilex x meserveae ‘Blue Princess’

Þokkalega harðgerður, þéttur, sígrænn runni. Hæð um 1 – 1,5 m. Getur hugsanlega orðið hærri við góðar aðstæður. Laufblöðin blágræn og þyrnótt á jöðrunum. Sprotar og ungar greinar dökk-fjólublá. Blómin smá, hvít fyrri part sumars. ‘Blue Princess’ er kvk yrki. Þroskar rauð ber á haustin sé karlplantna í grennd. Berin endast gjarnan fram á vetur.

Þrífst í frjórum, vel framræstum, aðeins súrum jarðvegi. Með harðgerðustu kristsþyrnum fyrir íslenskar aðstæður.

Ilexmeserveae er blendingur á milli I. aquifolium og I. rugosa. Það var Kathleen K. Meserve frá St. James, New York sem upp úr 1950 víxlaði og kom á markaðinn yrkjum þessa blendings með það að markmiði að fá fram harðgerða kristsþyrna fyrir norðanverð Bandaríkin.