Rós ‘Rote Max Graf’ – Rosa ‘Rote Max Graf’

Jarðlæg, þekjandi rós. Blómin meðalstór, rauð. Takmörkuð reynsla. Sólelsk.

Rós ‘Schneekoppe’ – Rosa rugosa ‘Schneekoppe’

Harðgerð lágvaxin - meðalhá runnarós (1 - 1,5 m). Blöðin fremur mött, stakfjöðruð, ljósgræn. Talsvert þyrnótt. Blómin stór, fyllt, föl-lillableik - hvít, ilmandi, ögn drjúpandi (rósirnar þungar). Þroskar lítið eða ekki nýpur. Gulir haustlitir. Sólelsk. 'Schneekoppe' hentar í blönduð runna- og rósabeð, raðir, þyrpingar, ker, villigarða og sumarhúsalóðir. All vind- og saltþolin. Millibil 80 - 100 sm. Úr smiðju Karl Baum, Þýskalandi.

Rós ‘Skotta’ – Rosa ‘Skotta’

Harðgerður, lágvaxinn - meðalstór runni (1 - 1,5 m). Sólelsk. Blómin bleik, vel fyllt og ilmandi. Skríður talsvert út með rótarskotum. Engar nýpur. Laufið ljósgrænt, stakfjaðrað og matt. Gulir haustlitir. Þrífst í sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi. Má vera ögn grýttur og malarborinn. Hentar í runnaþyrpingar, raðir, opin svæði, villigarða og þess háttar. Millibil um 80 - 100 sm. Mjög blómsæl. Blómgast frá miðju sumri og fram á haust. Algeng í íslenskum görðum. Hefur í gegnum tíðina verið ranglega seld undir heitunum 'Betty Bland', 'Wasagaming', 'George Will' og þokkarós. 'Skotta' óx upp af fræi í Grasagarði Reykjavíkur árið 1965. Fræið kom frá grasagarðinum í Wageningen í Hollandi.

Rósagríma – Penstemon rupicola

Jarðlægur, sígrænn, breiðumyndandi hálfrunni. Hæð 10 - 15 cm. Blöðin eru grágræn, sporbaugótt - hringlaga og allt að 2 cm á lengd. Aðeins tennt. Blómin allt að 4 cm á lengd, skær rósrauð/bleik, klukkulaga með lengri neðri vör. Sitja nokkur saman í klasa sem vex upp úr blaðbreiðunni. Rósagríma þrífst best í hleðslum og steinhæðum á móti sól. Gott er að skýla henni á veturna með sígrænum barrviðargreinum, laufi eða striga. Jarðvegurinn þarf að vera vel framræstur og gjarnan blandaður möl og sandi. Rósagríma er nægjusöm á næringu. Setjið aðeins smá lag af moltu í kring á vorin eða ögn af tilbúnum áburði. Heimkynni: Fjalllendi í Washington fylki, Óregon og N-Kaliforníu. Græðisúruætt (Plantaginaceae). Var áður talin tilheyra grímublómaætt (Scrophulariaceae)

Rósakirsi / Kúrileyjakirsi ‘Ruby’ – Prunus kurilensis ‘Ruby’

Lítið tré eða stór runni, 2 - 3,5 m á hæð. Blómin ljósbleik í maí. Blómgast fyrir laufgun. Þroskar yfirleitt ekki mikið af berjum. Rauðir haustlitir. Þolir hálfskugga. Harðgerðasta skrautkirsið. Fallegur stakstæður eða fleiri saman með 2 m millibili.

Rósareynir – Sorbus rosea

All harðgerður hávaxinn runni eða lágvaxið tré (2,5 - 5 m). Blöðin stakfjöðruð, mött. Rauðgulir haustlitir. Fölbleik blóm í sveipum birtast fyrri part sumars. Fremur stór, bleik/rósrauð reyniber í klösum þroskast á haustin. Þolir hálfskugga. Rósareynir sómir sér vel stakur eða í bland með öðrum runnum. Fremur nýlegur í ræktun hérlendis. Minnir í útliti á kasmírreyni (S. cashmiriana). Heimkynni: Karmír í Pakistan.

Rúbínreynir – Sorbus bissetii

Stór runni eða lítið tré (3 - 5 m). Ýmist ein- eða margstofna. Brum dökkrauð. Blaðstilkar rauðleitir. Laufið allt að 20 sm á lengd, stakfjaðrað, dökkgrænt og gljáandi. Smáblaðapörin yfirleitt 11 - 15 talsins. Stundum allt niður í 9. Rauðir haustlitir í lok september og fram í október. Laufgast í maí. Blómin hvít, smá í sveip í júní. Berin vínrauð í ágúst en síðan bleik er líður að hausti. Virðist nokkuð harðgerður. Sérlega fallegt garðtré. Fremur nýlegur í ræktun hérlendis en lofar almennt góðu. Þrífst í allri sæmilega frjórri, framræstri garðmold. Hentar stakstæður, í raðir og þyrpingar. Varist að láta gras vaxa upp að stofni. Klippið og snyrtið að sumri til ef þörf krefur. Millibil alla vega 2 m. Rúbínreynir er kenndur við Dr. L. Bisset sem starfaði í Grasagarðinum í Edinborg, Skotlandi. Rúbínreynir er fræekta (apomictic). Í Bretlandi er hann stundum seldur undir yrkisheitinu 'Pearls'. Heimkynni: Kína (V-Sichuan).

Runnagríma – Penstemon fruticosus

Sígrænn dvergrunni. Blómin lillablá, trektlaga. Hentar í hleðslur og steinhæðir. Sólelsk. Forðist blauta og áveðursama staði. Ættuð frá vestanverðri N-Ameríku.

Runnamura ‘Elizabeth’ – Dasiphora fruticosa ‘Elizabeth’

Lágvaxinn, nánast jarðlægur runni. Blómin fremur stór miðið við önnur yrki af runnamuru, ljósgul. Langur blómgunartími. Blómgast fram á haust. Gulir - rauðgulir haustlitir. Sólelsk. Runnamura 'Elizabeth' sómir sér vel í pottum og kerjum, grjóthleðslum o.þ.h. Ágætis þekjuplanta þar sem hún nýtur sólar og keppir ekki við of ágengar plöntur. Gengur einnig undir heitinu runnamura 'Arbuscula'.

Runnamura ‘Glenroy Pinkie’ – Dasiphora fruticosa ‘Glenroy Pinkie’

All harðgerður, lágvaxinn runni (50 sm), fínlegur, þéttur runni. Blómin fölbleik. Blómgast frá miðju sumri og fram á haust. Sólelsk. Þrífst vel í venjulegri garðmold. Hentar í hleðslur, kanta/jaðra gróðurbeða, ker o.fl.

Runnamura ‘Goldfinger’ – Dasiphora fruticosa ‘Goldfinger’

All harðgerður, fínlegur, lágvaxinn, þéttur, sumargrænn runni (50 - 80 sm). Blómin all stór miðað við runnumuru, dökkgul. Blómgast frá miðju sumri og fram á haust. Blómviljug. Sólelsk. Runnamura 'Goldfinger' hentar í raðir og þyrpingar með um 60 - 70 sm millibili eða í blönduð beð með runnum og fjölæringum. Einnig heppileg til ræktunar í kerjum og pottum.

Runnamura ‘Goldteppich’ – Dasiphora fruticosa ‘Goldteppich’

Lágvaxinn, nánast jarðlægur runni. Fremur harðgerð. Blómin stór, gul. Blómstrar frá miðju sumri og fram eftir hausti. Blómviljug. Sólelsk. Hentar í ker, hleðslur, kanta o.þ.h.