Tjarnaíris – Iris pseudacorus

Harðgerð, fjölær jurt. Hæð 1 - 1,5 m. Laufblöðin eru sverðlaga, heilrennd og löng. Blómin eru dæmigerð "írisarblóm", gul með brúnleitum rákum, all stór, nokkur saman á löngum stöngli. Blómgast miðsumars. Tjarnaíris er eins og nafnið gefur til kynna jurt sem vex í deiglendi eða jafnvel í vatni við lækjar- og tjarnabakka. Hún þrífst þó vel í frjóum, rakaheldnum garðajarðvegi. Sólelsk. Tjarnaíris hentar helst við tjarnir og læki eða í blómabeð á rökum stöðum. Breiðir úr sér með tímanum. Þolir að standa í súrefnislitlu og ísöltu vatni. Slæðingur hérlendis t.d. í Vífilsstaðalæk, Gbæ. Heimkynni: Evrópa, V-Asía og NV-Afríka. Sverðliljuætt (Iridaceae).

Urðahnoðri – Sedum lydium

Harðgerð, mjög lágvaxin, þekjandi, sígræn jurt. Laufblöð mjög smá. Oft rauðleitur sérstaklega á þurrum stöðum og yfir vetrarmánuðina. Minnir tilsýndar á mosa. Blómstönglarnir vaxa allt að 10 sm upp úr blaðbreiðunni. Blómin eru hvít eða bleik í hálfsveip. Blómgast upp úr miðju sumri og fram á haust. Fræhýðin eru áberandi rauð standa fram eftir hausti. Sólelskur en þolir þó hálfskugga. Þrífst í þurrum og rýrum jarðvegi en einnig í venjulegri garðmold. Dreifir sér út með tímanum þar sem aðstæður leyfa. Urðahnoðri hentar í steinhæðir og hleðslur. Einnig sem undirgróður þar sem ekki er of mikill skuggi. Hentar einnig á gróðurþök, veggi, í ker og potta með öðrum áþekkum plöntum eins og hnoðrum (Sedum spp.), steinbrjótum (Saxifraga spp.) og húslaukum (Sempervivum spp.). Heimkynni: Fjalllendi V- og M-Tyrklands og Armeníu. Hnoðraætt (Crassulaeae).

Útlagi – Lysimachia punctata

Harðgerður fjölæringur. Hæð allt að 1 m. Talsvert skriðullt rótarkerfi. Gul blóm upp eftir stilknum birtast síðsumars. Þolir hálfskugga. Algengur.

Valurt – Symphytum officinale

Harðgerð, fjölær jurt. Hæð 60 - 100 sm. Stundum hærri. Stofnlauf stór, egglaga - lensulaga, langydd og með blaðstilk. Stöngulblöð aflöng - lensulaga og stilklaus. Stöngull hærður og vængjaður. Blómin sitja nokkur saman í kvíslskúf. Blómin fjólublá eða purpurarauð. Blómgast í júlí - ágúst. Valurt þrífst best í sæmilega rökum jarðvegi. Þolir nokkurn skugga. Hentar t.d. aftarlega í blómbeð, í villigarða og sem undirgróður undir stærri tré. Vex sums staðar sem slæðingur utan garða hérlendis. Valurt er gömul lækningajurt og þótti sérstaklega græðandi. Í dag er almennt varað við inntöku og annarri notkun valurtar vegna hættu á lifrarskemmdum. Heimkynni: Víða í Evrópu, V-Asíu á rökum svæðum.

Venusvagn / Bláhjálmur – Aconitum napellus

Harðgerð, all hávaxin fjölær jurt. Hæð allt um og yfir 1 m. Blómin dökkfjólublá síðsumars. Mjög eitraður sé hans neitt. Þolir vel hálfskugga. Venusvagn er mjög vindþolinn og leggst ekki niður í roki og þarf því ekki uppbindingu. Þrífst vel í venjulegri garðmold. Þolir vel hálfskugga. Hentar í blönduð blóma- og runnabeð. Stundum plantað í raðir til að afmarka svæði. Notið hanska þegar þið meðhöndlið venusvagn.

Villijarðarber – Fragaria vesca

Harðgerð, lágvaxin, íslensk jurt. Laufblöðin þrífingruð. Smáblöðin tennt og silfurhærð á neðra borði. Blómin hvít með fimm krónublöðum og gulum fræflum og frævum. Blómgast frá því í júní og fram eftir sumri. Síðsumars geta verið blóm og þroskuð ber á sömu plöntunni. Berin eru fremur lítil en bragðgóð og þroskast síðsumars og fram á haust. Berin eru í raun útbelgdur blómbotn og aldinin (hneturnar) sitja þar utan á. Dreifir sér kynlaust með jarðlægum renglum. Þolir vel hálfskugga en þá verður minni berjaþroski. Þrífst vel í öllum sæmilega frjóum, vel framræstum jarðvegi. Heimkynni: Víða á norðurhveli jarðar þar með talið Ísland. Rósaætt (Rosaceae).

Völskueyra – Cerastium tomentosum

Harðgerð, fjölær, breiðumyndandi, fjölær jurt. Hæð: 15 - 30 sm. Laufið gráloðið, hálfsígrænt. Blómin hvít, miðsumars. Blómsælt. Þrífst best í þurrum, malarbornum jarðvegi á sólríkum stað. Þolir þó hálfskugga. Völskueyra hentar í hleðslur, steinhæðir, ker og þess háttar. Breiðist talsvert út. Heimkynni: Fjalllendi SA-Evrópu.