Einir ‘Holger’ – Juniperus ‘Holger’

All harðgerður, sígrænn, lágvaxinn, hægvaxta, þekjandi runni. Hæð 30 - 50 cm. Barrið á nýjum sprotum áberandi ljósgult/smjörgult síðan gráblátt. Sólelskur. Þrífst í sæmilega frjóum, vel framræstum jarðvegi sem má gjarnan vera blandaður sandi og möl. Hentar í ker, hleðslur, kanta og þess háttar. Ekki eins harðgerður og himalajaeinir 'Meyeri'. Yrkið 'Holger' mun vera blendingur garðaeinis (J. media 'Pfitzeriana Aurea') og himalajaeinis (J. squamata 'Meyeri'). Úr smiðju Holger Jensen, Svíþjóð frá árinu 1946.

Himalajaeinir / Keilubláeinir – Juniperus squamata ‘Blue Swede’

Fremur lágvaxinn, þéttur, sígrænn runni. Hæð um 50 - 70 sm en stundum hærri í góðu skjóli. Barrið ljósblá-grænt. Stundum aðeins brúnleitt á veturna. Sólelskur en þolir hálfskugga. 'Blue Swede' einirinn hentar í ker, blönduð beð með sígrænum gróðri, steinabeð, hleðslur, kanta og þess háttar.

Einir – Juniperus communis – Undirhlíðar-Hfj

Harðgerður, sígrænn, lágvaxinn runni (30 - 120 sm). Ýmist jarðlægur eða hálfuppréttur. Sérbýll. Kvenplöntur þroska einiber á tveimur árum. Þau má nýta í matargerð. Sólelskur. Hægvaxta. Einir hentar í ker, hleðslur, kanta og þess háttar. Einnig í blönduð beð með öðrum sígrænum runnum. Jarðlæg yrki nokkuð þekjandi. Vex villtur víða um land.

Breiðumispill / Hrísmispill ‘Skogholm’ – Cotoneaster x suecicus ‘Skogholm’

All harðgerður, sígrænn, jarðlægur, þekjandi runni. Laufið dökkgrænt, heilrennt. Verður gjarnan bronslitað yfir vetrartímann. Stundum vill laufið sviðna að vetri til en það lagast yfirleitt fljótlega aftur. Blómin smá, hvít með rauðbleikum frjóhnöppum, stjörnulaga snemmsumars. Stundum þroskast rauðgul ber á haustin. Þolir hálfskugga. Tilvalinn í hleðslur, kanta, upp á veggi, í ker og þess háttar. Greinarnar geta með tímanum slútað niður um 2 m. Millibil 60 - 80 sm. Vinsæl garðplanta hérlendis. Fjótvaxnari samanborið við skriðmispil (C. apiculatus). Þrífst í allri venjulegri, vel framræstri garðmold. 'Skogholm' er sænskt úrvalsyrki frá árinu 1941.

Rós ‘Rote Max Graf’ – Rosa ‘Rote Max Graf’

Jarðlæg, þekjandi rós. Blómin meðalstór, rauð. Takmörkuð reynsla. Sólelsk.

Rós ‘Max Graf’ – Rosa ‘Max Graf’

All harðgerð, jarðlæg, þekjurós. Laufið fínlegt, gljándi, stakfjaðrað. Blómin bleik, einföld með daufum ilm. Sólelsk. Fer best í hleðslum, steinhæðum og þess háttar á móti sól.

Bergflétta – Hedera helix

Sígrænn klifurrunni. Fetar sig upp veggi og trjástofna með heftirótum. Þrífst víða vel nálægt sjávarsíðunni en helst í einhverju skjóli. Skuggþolin. Getur einnig vaxið sem þekjandi runni á jörðu niðri á skjólsömum og mildum stöðum. Á áveðursömum stöðum t.d. þar sem gætir salts af hafi sviðnar laufið gjarnan mikið yfir veturinn en nær sér svo aftur sumarið á eftir.

Sólber ‘Polar’ – Ribes nigrum ‘Polar’

Harðgerður, lágvaxinn berjarunni. Hæð um 60. Reynist vel á höfuðborgarsvæðinu. Blóm þola næturfrost. Uppréttur vöxtur. Stór ber sem þroskast snemma og jafnt. Henta í sultur og saft. Millibil um 80 sm. Má nota sem þekjuplöntu. Danskt yrki.

Rauðberjalyng / Týtuber ‘Koralle’ – Vaccinium vitis-idaea ‘Koralle’

All harðgerður, lágvaxinn (15 - 20 sm), sígrænn dvergrunni. Blöðin smá, heilrennd. Fölbleikir sætukoppar birtast snemmsumars. Meðalstór, rauð, súrsæt, aðeins bitur, æt ber þroskast að hausti. Sólelskt en þolir hálfskugga. Berjaþroski verður þó mestur í fullri sól. Þrífst best í lítið eitt súrum, rakaheldnum jarðvegi. Dreifir sér með rótarskotum. Myndar breiður. Forðist að rækta með mjög ágengum tegundum. Rauðberjalyng hentar til að klæða beð. Berin eru notuð í sultur og þess háttar. Kallast "lingonberry" á ensku og "tyttebær" á dönsku. Tegundin finnst villt á einstaka stað hérlendis

Skriðmispill – Cotoneaster apiculatus?

Harðgerður, jarðlægur runni. Blöðin smá, dökkgræn og gljáandi. Rauðir haustlitir. Smá bleik blóm fyrri part sumars. Rauðgul ber þroskast á haustin og endast þau gjarnan langt fram á vetur. Sólelskur. Hentar í grjóthleðslur, kanta, ker o.þ.h. Ágætis þekjuplanta þar sem hann nýtur góðrar birtu. Hugsanlega eru fleiri tegundir en ein sem í daglegu tali kallast "skriðmispill". Mjög vinsæll og algengur í görðum landsmanna.

Runnamura ‘Goldteppich’ – Dasiphora fruticosa ‘Goldteppich’

Lágvaxinn, nánast jarðlægur runni. Fremur harðgerð. Blómin stór, gul. Blómstrar frá miðju sumri og fram eftir hausti. Blómviljug. Sólelsk. Hentar í ker, hleðslur, kanta o.þ.h.

Runnamura ‘Elizabeth’ – Dasiphora fruticosa ‘Elizabeth’

Lágvaxinn, nánast jarðlægur runni. Blómin fremur stór miðið við önnur yrki af runnamuru, ljósgul. Langur blómgunartími. Blómgast fram á haust. Gulir - rauðgulir haustlitir. Sólelsk. Runnamura 'Elizabeth' sómir sér vel í pottum og kerjum, grjóthleðslum o.þ.h. Ágætis þekjuplanta þar sem hún nýtur sólar og keppir ekki við of ágengar plöntur. Gengur einnig undir heitinu runnamura 'Arbuscula'.