Heggur ‘Laila’ – Prunus padus ssp. borealis ‘Laila’
Harðgert, fremur lágvaxið tré. Hæð 5 - 8 m. Blómin hvít, ilmandi í uppréttum klösum fyrri part sumars. Stundum sjást svört steinaldin/ber á haustin. Gulir haustlitir. Þolir hálfskugga. Þrífst í allri venjulegri garðmold. Heggur 'Laila' hentar stakstæður, í trjá- og runnaþyrpingar og í sumarhúsalóðina. Millibil: 2 - 3 m. 'Laila' er sænskt, blómsælt úrvalsyrki ættað frá Kukkola við Torne-ánna í N-Svíþjóð.
Heggur – Prunus padus
Harðgert, lágvaxið - meðalhátt tré (5 - 10 m). Ein- eða margstofna. Stundum runni. Blómin hvít, ilmandi í klösum í maí - júní. Stundum þroskast svört ber (steinaldin)í gisnum klösum að hausti. Gulir - rauðgulir haustlitir. Heggur þrífst í öllum sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi. Heggur sómir sér vel stakur eða fleiri saman í þyrpingum og röðum. Tilvalinn í sumarhúsalandið. Þolir vel hálfskugga. Lágmarks-millibil: 2 m. Þolir vel klippingu en blómgast þá minna. Heggurinn okkar er vaxinn upp af fræi sem safnað er hérlendis. Heimkynni: Norður og M-Evrópu, Norður og NA-Asía.
Gullklukkurunni ‘Hokki’ – Weigela middendorffiana ‘Hokki’
Harðgerður, hraðvaxta, þéttur, meðalstór runni. Hæð og breidd um 1,5 m. Laufið egglaga, sagtennt. Laufin sitja gagnstætt. Laufgast í maí. Blómin klukkulaga, ljósgul með dekkra gini. Blómgast á fyrra árs greinar fyrri part sumars (júní). Stundum aftur á árssprotana síðsumars. Þolir hálfskugga. Fer vel í blönduðum beðum með öðrum runnum og fjölæringum. Einnig kjörinn í raðir og þyrpingar. Þolir vel klippingu en blómgast þá minna en ella. Millibil um 1 m. Gullklukkurunni 'Hokki' er ættaður frá Hokkaidó í Japan. Safnað af Ólafi S. Njálssyni í Nátthaga, Ölfusi. Blómgaðist vel rigningarsumarið 2018. Heimkynni gullklukkurunna eru auk Japans, N-Kína.
Gráreynir – Sorbus hybrida
Harðgert meðalstórt tré (5-12m). Stundum runni. Laufin með minnst tveimur smáblaða-pörum neðst. Hvítgráloðin á neðra borði. Blómin hvít í sveip í júní. Berin rauð í klösum í október. All vind- og saltþolinn. Ekki viðkvæmur fyrir reyniátu (Cytospora rubescens). Þrífst vel í venjulegri, vel framræstri garðmold. Gráreynir hentar sem stakstætt tré, í raðir/þyrpingar, í sumarhúsalóðir og jafnvel sem götutré. Millibil um 3-4 m. Gráreynirinn okkar er allur af íslensku fræi sem við tínum af fallegum móðurtrjám. Þar sem gráreynir er "apomictic" eru fræplönturnar með sama erfðamengi og móðurtréið.
Glæsiþinur – Abies fraseri
Sígrænt, keilulaga barrtré, frekar lágvaxið tré (5-8 m). Óvíst er þó hversu hátt það verður hérlendis í framtíðinni. Nálar mjúkar, fagurgrænar að ofan en ljósar að neðan. Könglar uppréttir. Ilmar. Þarf nokkurt skjól í uppvextinum. Nokkuð skuggþolinn. Vinsælt jólatré í N-Ameríku. Nýlegur í ræktun hérlendis en lofar góðu. Hentar í skjólgóða garða og inn í skóga/undir skermi. Ættaður frá Appalasíufjöllum í SA-Bandaríkjunum.
Glæsitoppur ‘Hákon’ – L. involucrata var. ledebourii ‘Hákon’
Mjög harðgerður, þéttur, heilbrigður, hraðvaxta meðalstór runni. Hæð: 1,5 - 1,8 m. Getur orðið álíka breiður. Laufið lensulaga, gagnstætt og gljándi á efra borði. Gulir haustlitir. Blómin tvö og tvö saman, gul undir rauðum háblöðum. Blómgast í júní eða maílok. Aldinið svart ber sem þroskast í ágúst. Berin almennt talin óæt. Fuglar sækja þó í berin. Greinar gulbrúnar en síðar gráleitar. Börkur flagnar af í strimlum með tímanum eins og hjá flestum öðrum tegundum toppa (Lonicera spp.). Skuggþolinn. Þolir vel klippingu. Hentar í raðir, þyrpingar, limgerði og skjólbelti. Hentar einnig í villigarða og sumarhúsalóðir. Sáir sér stundum út. Glæsitoppur 'Hákon' er svo þéttur að illgresi þrífst tæplega undir honum. Yrkið er kennt við Hákon Bjarnason fyrrverandi skógræktarstjóra en samsvarandi runni fannst í sumarhúsalóð hans og konu hans Guðrúnar Bjarnason í Vatnshlíð við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði. Ef til vill er þetta ekki undirtegundin "ledobourii"! Millibil í limgerði að minnsta kosti 50 sm. Millibil í blönduðum beðum um 1 m. Þrífst í allri venjulegri garð- og skógarmold. Glæsitoppur sem er í raun undirtegund glótopps (L. involucrata) á heimkynni í strandhéruðum Kaliforníu og S-Oregon. Af þeim sökum er talið ólíklegt að ekta glæsitoppur þrífist vel á Íslandi. Líklegra er því að um glótopp sé að ræða. Glótoppur er villtur í vestan-og norðanverðri N-Ameríku alveg norður til Alaska og Quebec. Vegna þess hve lengi runni þessi hefur gengið undir þessu nafni er erfitt að breyta því. Blöðin á 'Hákon' eru mjórri, hvassyddari og meira gljáandi samanborið við t.d. glótopp 'Kera' og 'Satu'.
Glótoppur ‘Marit’ – Lonicera involucrata ‘Marit’
Harðgerður, þéttur, lágvaxinn runni (1 - 1,5 m). Vaxtarlagið hálfkúlulaga og hvelft. Blöðin gagnstæð. Blómin gul, tvö og tvö saman, fremur smá, undir rauðum háblöðum. Aldinið svart ber sem þroskast í ágúst. Almennt talið óætt. Laufgast fremur snemma á vorin. Ljósgulir haustlitir. Þolir vel hálfskugga. Vind- og saltþolinn. Hentar í ker / potta, blönduð runnabeð, raðir og þyrpingar. Millibil um 70 - 90 sm. Þolir vel klippingu og mætti nota í lágvaxin limgerði. Lágvaxnara yrki af glótopp samanborið við 'Kera', 'Höfða' og 'Satu'.
Glótoppur ‘Kera’ – Lonicera involucrata ‘Kera’
Harðgerður, sumargrænn, hraðvaxta runni. Hæð 2 - 2,5 m. Talsvert breiðvaxinn með tímanum. Árssprotar kantaðir. Laufin sitja gagnstætt, 8 - 12 sm löng. Laufgast fremur snemma á vorin. Gulir haustlitir í október. Blómin gul, smá, tvö og tvö saman undir rauðum háblöðum. Svört, gljáandi, ber þroskast í kjölfarið. Ber glótopps eru almennt talin óæt. Skuggþolinn.
Glótoppur 'Kera' er vind- og saltþolinn. Þríst t.d. prýðilega í yndisgarðinum í Sandgerði sem er á algerlega skjóllausum stað ofan við þorpið. Þrífst einnig vel á Norðurbakkanum í Hafnarfirði. Hentar sérlega vel í raðir, þyrpingar og í klippt limgerði. Kjörinn í jaðra og inn á milli í skjólbeltum. Í limgerði er nóg að planta 2 stk / m. Í þyrpingar er hæfilegt millibil 1 - 1,5 m. Óklipptur er hann talsvert plássfrekur.
'Kera' er norskt úrvalsyrki. Heimkynni glótopps eru í vestanverðri N-Ameríku. Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Gljásýrena ‘Löve’ – Syringa josikaea ‘Löve’
Harðgerður, hávaxinn runni (3 - 4 m). Blómin fjólublá í knúpp, fjólubleik útsprungin, ilmandi. Blómgast miðsumars. Gljásýrena 'Löve' sómir sér vel stakstæð en einnig fleiri saman í þyrpingum eða röðum. Millibil um 1,5 - 2,0 m. Blómstar mest í fullri sól en þolir vel hálfskugga. Kennd við Áskel og Doris Löve grasafræðinga en móðurplantan stendur í garðinum Hraunteig 16, Rvk þar sem Áskell og Doris bjuggu á sínum tíma.