Fjallatoppur – Lonicera alpigena

Harðgerður, sumargrænn, meðalhár runni (1,5 - 2,0 m). Börkur gráleitur. Laufin eru með stuttan stilk, oddbaugótt, allt að 11 sm löng og 5,5 sm breið. Blaðgrunnur stundum snubbóttur. Þau er stór miðað við aðra toppa (Lonicera spp.), gagnstæð og gljáandi á efra borði. Laufin eru hærð á jöðrum og blaðstrengjum á neðra borði framan af sumri. Laufgast jafnvel í byrjun maí. Gulir haustlitir. Blómin smá, gul með rauðleitum fræflum tvö og tvö saman á löngum stilk fyrri part sumars. Aldinið rautt samvaxið, um eða yfir 1 sm langt, óætt ber sem minnir á kirsuber í útliti. Fremur hægvaxta. Þolir vel hálfskugga. Hentar sérlega vel sem undirgróður undir stærri trjám. Einnig fer fjallatoppur vel í bland með öðrum gróðri eða nokkrir saman í þyrpingum eða röðum. Tilvalinn í skuggsæl horn. Þrífst í öllum sæmilega frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Millibil 80 - 100 sm. Heimkynni: Í skógum til fjalla í Mið- og S-Evrópu. Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).

Fjalldrapi / Hrís – Betula nana

Harðgerður, íslenskur, lágvaxinn runni (20 - 50 sm). Blöðin smá, nánast kringlótt. Rauðir - rauðgilir haustlitir. Sólelskur. Vex í mólendi og deiglendi víða um land. Hentar í hleðslur, steinhæðir og í rakan jarðveg þar sem sólar nýtur. Blandast gjarnan íslensku ilmbjörkinni (Betula pubescens) og myndar blendinginn skógviðarbróður (Betula x intermedia) sem er algengur í náttúru Íslands sérstaklega á Vesturlandi. Fjalldrapi er ekki algengur í görðum landsmanna. Fjalldrapinn okkar er af íslensku fræi.

Garðakvistill – Physocarpus opulifolius

Harðgerður, þéttur, heilbrigður, sumargrænn, meðalhár runni (1,5 - 2,5 m). Getur orðið talsvert breiður. Laufið grænt, flipótt ekki ólíkt rifsi (Ribes spp.) eða hlyn (Acer spp.). Rauðgulir haustlitir. Blómin hvít í hvelfdum sveip miðsumars. Fræbelgir uppblásnir, fremur smáir, margir saman, rauðleitir. Rauðleitir árssprotar. Börkurinn flagnar með tímanum af í strimlum. Þolir vel hálfskugga. Þolir vel klippingu. Þrífst í sæmilega frjóum jarðvegi, jafnvel rökum en einnig fremur þurrum. Garðakvistill fer vel í blönduð runnabeð eða saman með fjölæringum. Einnig fer vel á því að planta nokkrum saman með um 80 - 100 sm millibili. Garðakvistil má nota í klippt eða óklippt limgerði. Hentar vel í jaðra skjólbelta. Garðakvistill gekk áður fyrr undir nafninu "blásurunni" vegna uppblásinna aldinanna. Mun harðgerðari samanborið við yrki garðakvistils sem bera rauðleit lauf eins og 'Diabolo' og 'Summer Wine'. Garðakvistill er sannarlega einn harðgerðasti skraut- og skjólrunni sem völ er á. Heimkynni garðakvistils eru í austanverðri N-Ameríku. Rósaætt (Rosaceae).

Garðakvistill ‘Diabolo’ – Physocarpus opulifolius ‘Diabolo’

Lágvaxinn - meðalstór runni. Laufið dökk-purpurarautt. Ljósir blómsveipir miðsumars. Skærrauðir haustlitir. Þrífst vel í grónum hverfum. Sólelskur. Verður gjarnan fyrir einhverju haustkali. Þolir vel klippingu. Garðakvistill 'Diabolo' fer sérlega vel í blönduðum beðum með ljósari plöntum eða framan við ljósa fleti.

Garðakvistill ‘Diable d’Or’ – Physocarpus opulifolius ‘Diable d’Or’

Sæmilega harðgerður, fremur lágvaxinn skrautrunni hérlendis (1,5 m). Laufið rauð-bronslitað. Ljósara en á garðakvistli 'Diabolo'. Skærrauðir haustlitir. Ljósbleikir blómsveipir birtast stundum miðsumars. Sólelskur. Þarf nokkurt skjól til að þrífast. Kelur yfirleitt eitthvað. Garðakvistill 'Diable d'Or' fer vel í beðum með öðrum runnum og fjölæringum.

Garðakvistill ‘Luteus’ – Physocarpus opulifolius ‘Luteus’

Meðalstór, þokkalega harðgerður runni. Hæð um 1,5 m. Laufið áberandi gulgrænt. Nývöxtur koparlitur. Rauðbleikir haustlitir. Hvítir blómsveipir upp úr miðju sumri. Fræbelgir, uppblásnir, rauðleitir í fyrstu. Þolir hálfskugga. Þrífst í venjulegri garðmold. Börkur flagnar með tímanum af í strimlum. Kelur stundum mikið. Hentar í blönduð beð með runnum og fjölæringum í þokkalegu skjóli. Millibil um 80 - 90 sm.

Gljásýrena ‘Löve’ – Syringa josikaea ‘Löve’

Harðgerður, hávaxinn runni (3 - 4 m). Blómin fjólublá í knúpp, fjólubleik útsprungin, ilmandi. Blómgast miðsumars. Gljásýrena 'Löve' sómir sér vel stakstæð en einnig fleiri saman í þyrpingum eða röðum. Millibil um 1,5 - 2,0 m. Blómstar mest í fullri sól en þolir vel hálfskugga. Kennd við Áskel og Doris Löve grasafræðinga en móðurplantan stendur í garðinum Hraunteig 16, Rvk þar sem Áskell og Doris bjuggu á sínum tíma.

Glótoppur ‘Kera’ – Lonicera involucrata ‘Kera’

Harðgerður, sumargrænn, hraðvaxta runni. Hæð 2 - 2,5 m. Talsvert breiðvaxinn með tímanum. Árssprotar kantaðir. Laufin sitja gagnstætt, 8 - 12 sm löng. Laufgast fremur snemma á vorin. Gulir haustlitir í október. Blómin gul, smá, tvö og tvö saman undir rauðum háblöðum. Svört, gljáandi, ber þroskast í kjölfarið. Ber glótopps eru almennt talin óæt. Skuggþolinn. Glótoppur 'Kera' er vind- og saltþolinn. Þríst t.d. prýðilega í yndisgarðinum í Sandgerði sem er á algerlega skjóllausum stað ofan við þorpið. Þrífst einnig vel á Norðurbakkanum í Hafnarfirði. Hentar sérlega vel í raðir, þyrpingar og í klippt limgerði. Kjörinn í jaðra og inn á milli í skjólbeltum. Í limgerði er nóg að planta 2 stk / m. Í þyrpingar er hæfilegt millibil 1 - 1,5 m. Óklipptur er hann talsvert plássfrekur. 'Kera' er norskt úrvalsyrki. Heimkynni glótopps eru í vestanverðri N-Ameríku. Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).

Glótoppur ‘Marit’ – Lonicera involucrata ‘Marit’

Harðgerður, þéttur, lágvaxinn runni (1 - 1,5 m). Vaxtarlagið hálfkúlulaga og hvelft. Blöðin gagnstæð. Blómin gul, tvö og tvö saman, fremur smá, undir rauðum háblöðum. Aldinið svart ber sem þroskast í ágúst. Almennt talið óætt. Laufgast fremur snemma á vorin. Ljósgulir haustlitir. Þolir vel hálfskugga. Vind- og saltþolinn. Hentar í ker / potta, blönduð runnabeð, raðir og þyrpingar. Millibil um 70 - 90 sm. Þolir vel klippingu og mætti nota í lágvaxin limgerði. Lágvaxnara yrki af glótopp samanborið við 'Kera', 'Höfða' og 'Satu'.

Glæsitoppur ‘Hákon’ – L. involucrata var. ledebourii ‘Hákon’

Mjög harðgerður, þéttur, heilbrigður, hraðvaxta meðalstór runni. Hæð: 1,5 - 1,8 m. Getur orðið álíka breiður. Laufið lensulaga, gagnstætt og gljándi á efra borði. Gulir haustlitir. Blómin tvö og tvö saman, gul undir rauðum háblöðum. Blómgast í júní eða maílok. Aldinið svart ber sem þroskast í ágúst. Berin almennt talin óæt. Fuglar sækja þó í berin. Greinar gulbrúnar en síðar gráleitar. Börkur flagnar af í strimlum með tímanum eins og hjá flestum öðrum tegundum toppa (Lonicera spp.). Skuggþolinn. Þolir vel klippingu. Hentar í raðir, þyrpingar, limgerði og skjólbelti. Hentar einnig í villigarða og sumarhúsalóðir. Sáir sér stundum út. Glæsitoppur 'Hákon' er svo þéttur að illgresi þrífst tæplega undir honum. Yrkið er kennt við Hákon Bjarnason fyrrverandi skógræktarstjóra en samsvarandi runni fannst í sumarhúsalóð hans og konu hans Guðrúnar Bjarnason í Vatnshlíð við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði. Ef til vill er þetta ekki undirtegundin "ledobourii"! Millibil í limgerði að minnsta kosti 50 sm. Millibil í blönduðum beðum um 1 m. Þrífst í allri venjulegri garð- og skógarmold. Glæsitoppur sem er í raun undirtegund glótopps (L. involucrata) á heimkynni í strandhéruðum Kaliforníu og S-Oregon. Af þeim sökum er talið ólíklegt að ekta glæsitoppur þrífist vel á Íslandi. Líklegra er því að um glótopp sé að ræða. Glótoppur er villtur í vestan-og norðanverðri N-Ameríku alveg norður til Alaska og Quebec. Vegna þess hve lengi runni þessi hefur gengið undir þessu nafni er erfitt að breyta því. Blöðin á 'Hákon' eru mjórri, hvassyddari og meira gljáandi samanborið við t.d. glótopp 'Kera' og 'Satu'.

Gullklukkurunni ‘Hokki’ – Weigela middendorffiana ‘Hokki’

Harðgerður, hraðvaxta, þéttur, meðalstór runni. Hæð og breidd um 1,5 m. Laufið egglaga, sagtennt. Laufin sitja gagnstætt. Laufgast í maí. Blómin klukkulaga, ljósgul með dekkra gini. Blómgast á fyrra árs greinar fyrri part sumars (júní). Stundum aftur á árssprotana síðsumars. Þolir hálfskugga. Fer vel í blönduðum beðum með öðrum runnum og fjölæringum. Einnig kjörinn í raðir og þyrpingar. Þolir vel klippingu en blómgast þá minna en ella. Millibil um 1 m. Gullklukkurunni 'Hokki' er ættaður frá Hokkaidó í Japan. Safnað af Ólafi S. Njálssyni í Nátthaga, Ölfusi. Blómgaðist vel rigningarsumarið 2018. Heimkynni gullklukkurunna eru auk Japans, N-Kína.

Gullkóróna / Snækóróna ‘Aureus’ – Philadelphus coronarius ‘Aureus’

Lágvaxinn - meðalstór runni. Þrífst aðeins í grónum görðum í þokkalegu skjóli. Best í fullri sól. Laufið er gult fremur en grænt. Blómin sem sjást sjaldan eru hvít og ilmandi. Hentar aðallega í blönduð beð með dekkri gróðri til að draga fram andstæðurnar.