Yndisrós – Rosa ‘Yndisrós’
All harðgerð runnarós. Hæð: 1,5 m. Blómin lillableik, hálffyllt, meðalstór. Blómgast í júlí - ágúst. Laufið gljáandi, stakfjaðrað. Sprotar rauðir. Millibil: 80 sm.
Hentar í blönduð beð, raðir, þyrpingar og brekkur. Skríður talsvert út. Yndisrós er upprunanlega fræplanta úr Grasagarði Reykjavíkur. Hugsanlegt er að yndisrósin sé blönduð brúðurós (R. nitida). Yndisrósin verður stundum fyrir haustkali. Rósaætt (Rosaceae).
Þyrnirós ‘Johannusmorsian’ – Rosa pimpinellifolia ‘Johannusmorsian’
Harðgerð fremur lágvaxin, þétt runnarós (1 m). Blómin ljóslillableik, hálffyllt, meðalstór og ilmandi. Blómgast í nokkrar vikur í júlí - ágúst. Svartar nýpur þroskast á haustin. Rauðgulir haustlitir. Mikið þyrnótt. Skríður eitthvað út með rótarskotum. Sólelsk. Nægjusöm. Hentar í blönduð beð, raðir, þyrpingar og villigarða. Millibil: 80 sm. Finnskt yrki. 'Johannusmorsian' merkir "jónsmessubrúður".
Þyrnirós ‘Katrín Viðar’ – R. pimpinellifolia ‘Katrín Viðar’
Harðgerður, þéttur, frekar lágvaxinn runni (1,5 m). Laufið blágrænt fínlegt, stakfjaðrað. Blómin stór, einföld, hvít en ljósbleik í knúpp. Ilmar. Blómstrar í nokkrar vikur aðallega í júlí í venjulegu árferði. Blómsæl. Dökkbrúnar - svartar nýpur þroskast á haustin. Græn fram á haust. Rauðgulir haustlitir í október. Sólelsk. Skríður eitthvað út með rótarskotum.
Nægjusöm. Sæmilega vind- og saltþolin. Þrífst vel í sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi sem má gjarnan vera sand- og malarborinn. Blandið gömlu taði eða moltu saman við jarðveginn fyrir gróðursetningu. Þolir ágætlega klippingu. Blómstrar á eldri greinar og því hefur klipping að vetri eða á vorin áhrif á blómgun það árið. Fjarlægið eldri greinar alveg niður við jörð. Þannig auðveldið þið rósarunnanum að endurnýja sig. Aðallega notuð í þyrpingar, raðir eða í blönduð runnabeð. Millibil allt að 70 - 100 sm.
Íslenskt úrval úr Grasagarði Reykjavíkur frá árinu 1972. Kom upp af fræi frá grasagarðinum í Dresden, Þýskalandi. Fræmóðir var skráð R. spinossima var. altaica en fræðiheitið R. spinossima er einnig mikið notað á þyrnirós. Yrkið er tileinkað minningu hjónanna Jóns Sigurðssonar skólastjóra og Katrínar Viðar sem árið 1961 gáfu Reykjavíkurborg safn íslenskra jurta og varð sú gjöf upphafið af Grasagarðinum. Vinsæl hérlendis sérstaklega á opnum svæðum sveitarfélaganna.
Þyrnirós vex villt víða í Evrópu þar með talið á Íslandi. Einnig finnst hún í Atlasfjöllum í N-Afríku, Tyrklandi, Kákasus og V-Asíu. Afbrigðið var. altaica er ættað frá Síberíku. Rósaætt (Rosaceae).
Þyrnirós (Lóurós) ‘Lovísa’ – Rosa pimpinellifolia ‘Lovísa’
Sérlega harðgerður, þéttur, fremur lágvaxinn runni. Hæð um 1 m eða rúmlega það. Laufið blágrænt, fínlegt, stakfjaðrað. Árssprotar rauðir, mikið þyrnóttir. Blómin meðalstór, hvít, einföld og ilmandi. Blómgast í nokkrar vikur miðsumars. Blómviljug. Dökkbrúnar - svartar nýpur þroskast á haustin. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk. Vind- og saltþolin. Skríður eitthvað út með rótarskotum.
Lóurós er nægjusöm. Þrífst vel í ekki of frjóum jarðvegi og vel framræstum sem gjarnan má vera sand- og malarborinn. Lóurós er kjörin í raðir, þyrpingar, sumarhúsalandið og opin svæði. All vind- og saltþolin. Millibil 80 - 100 sm.
Ólafur S. Njálsson, Nátthaga valdi þessa rós árið 1985 úr 66 sáðplöntum sem hann fékk hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur, Fossvogi á áttunda áratug síðustu aldar. Plönturnar voru á sínum tíma gróðursettar í limgerði á Seltjarnarnesi og bar 'Lovísa' af hvað varðar harðgerði og blómgun. Rósina skírði hann í höfuðið á móður sinni Lovísu Margréti Marinósdóttur. Plönturnar munu hafa vaxið upp af erlendu fræi sem merkt var R. pimpinellifolia var. altaica. Afbrigðið var. altaica hefur stundum verið nefnt hlíðarós.
Lóurós algeng hérlendis sérstaklega á opnum svæðum sveitarfélaga. Lóurós er að mörgu leyti dæmigerð þyrnirós. Náttúruleg heimkynni þyrnirósar eru í stórum hluta Evrópu og þar með talið Ísland og NV-Afríku. Afbrigðið var. altaica er ættað frá Síberíu. Rósaætt (Rosaceae).