Mánakvistur – Spiraea ‘Máni’

Harðgerður, þéttur, meðalhár, all hraðvaxta runni. Hæð 1,5 - 2,0 m. Álíka breiður með tímanum. Greinar fyrst uppréttar en síðan útsveigðar. Laufblöð oftast í kringum 1,5 sm á lengd, mött, grágræn á neðra borði og hárlaus. Blaðgrunnur odddreginn. Breiðsporbaugótt - öfugegglaga. og yfirleitt bogtennt á efsta þriðja hluta blöðkunnar. Blómin smá, hvít, mörg saman í hálfsveipum sem eru allt að 3 sm í þvermál. Blómgast í júlí og fram í ágúst. Blómsæll. Rauðgulir haustlitir. Þolir vel hálfskugga. Þolir vel klippingu. Minnir talsvert á sunnukvist (S. nipponica) í útliti en greinabygging er fíngerðari. Mánakvistur sómir sér vel í blönduðum runna- og blómabeðum og í röðum/limgerðum og þyrpingum. Millibil um 80 - 100 sm. Mánakvistur er all algengur á opnum svæðum í Rvk og í görðum á höfuðborgarsvæðinu og sjálfsagt víðar. Mánakvisturinn sem hér er í ræktun kom frá Grasagarðinum í Rvk. Hann óx upp af fræi frá háskólagrasagarðinum í Rostock í Þýskalandi á áttunda áratug síðustu aldar. Fræið kom undir heitinu Spiraea uratensis. Mánakvisturinn virðist ekki vera ekta S. uratensis og er hann því skráður sem Spiraea 'Máni' enda líklega um blendingstegund að ræða. Rósaætt (Rosaceae).

Perlukvistur – Spiraea x margaritae

Lágvaxinn, þéttur, hálfkúlu-laga runni. Hæð: 50 - 60 sm. Stórir fölbleikir blómsveipir síðsumars. Rauðgulir haustlitir. Fremur harðgerður. Hentar í ker / stampa, raðir, þyrpingar og blönduð beð. Millibil 60 - 70 sm. Best fer á því að klippa perlukvistinn niður síðvetrar. Blómgast á árssprotann.

Perlureynir – Sorbus munda

Harðgert lítið tré eða stór runni. Hæð: 3,5 - 5 m. Brum rauðleit. Blöðin fínleg, fjöðruð. 12-15 smáblaðapör. Blómin hvít í frekar litlum sveipum. Berin fyrst ljósgræn síðan hvít í klösum í október. Rauðir haustlitir í október. Þolir hálfskugga. Perlureynir sómir sér vel stakstæður en einnig í röðum. þyrpingum og í blönduðum beðum með öðrum gróðri. Millibil: 1,5 - 2,0 m. Perlureynir minnir mjög á koparreyni (S. frutescens) í útliti. Perlureynir verður hávaxnari, berin þroskast seinna á haustin og haustlitir birtast  seinna á haustin samanborið við koparreyni. Perlureynir er ekki með eins drjúpandi greinar og ljósari brum samanborið við koparreyni. Perlureynir er miklu sjaldgæfari hérlendis samanborið við koparreyni. Heimkynni: V-Sichuan í Kína.

Purpurabroddur / sunnubroddur – Berberis x ottawensis ‘Superba’

Meðalstór, þyrnóttur runni (1,5 - 2,5 m). Purpurarautt lauf. Gulir blómklasar í júní. Skærrauðir haustlitir. Þolir vel klippingu. Sólelskur. Hentar í raðir, þyrpingar, stakstæður og jafnvel í klippt limgerði. Þrífst vel í venjulegtri garðmold. Vinsælasti broddurinn hérlendis.

Rauðtoppur ‘Arnold’s Red’ – Lonicera tatarica ‘Arnold’s Red’

All harðgerður, meðalstór runni. Blómin dökkrauð í júní. Aldinið rautt ber. Þolir vel hálfskugga. Þrífst vel í frjóum, framræstum garðajarðvegi. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 sm millibili. Yrkið 'Arnold's Red' er upprunið frá trjásafninu Arnold Arboretum, Boston í Bandaríkjunum frá árinu 1945.

Reklavíðir ‘Wehrhahnii’ – Salix hastata ‘Wehrhahnii’

All harðgerður, lágvaxinn runni. Hæð: 50 - 70 sm. Áberandi axlarblöð. Sprotar rauðbrúnir. Mjög blómsælt, karlkyns yrki. Reklar fara að gægjast fram í apríl talsvert áður en runninn laufgast. Reklarnir eru hvítloðnir. Gulir frjóhnappar birtast í maí. Blómstrar svo aftur í júní eftir laufgun og jafnvel aftur í júlí! Sólelskur. Stundum ber á kali og asparglittu. Fer best í hleðslum, steinhæðum, beðjöðrum, kerjum og þess háttar. Fremur sjaldgæfur hérlendis. Yrkið 'Wehrhahnii' er fundið í Sviss í kringum árið 1930. Tegundin S. hastata kallast sólvíðir en nafnið reklavíðir á aðeins við um yrkið 'Wehrhahnii'. Heimkynni sólvíðis eru víða á norðurhveli aðallega í fjalllendi í N-Ameríku og Evrasíu.

Reyniblaðka ‘Pia’- Sorbaria sorbifolia ‘Pia’

Harðgerður meðalhár - hávaxinn runni (2 - 2,5 m). Blöðin minna á lauf reyniviðar (Sorbus aucuparia). Laufgast áberandi snemma eða gjarnan í apríl. Verður því stundum fyrir einhverju vorkali. Gulir haustlitir eða frýs græn. Stórir, hvítir, keilulaga blómklasar birtast síðsumars (ágúst). Fremur skuggþolin. Hraðvaxta. Reyniblaðka 'Pia' skríður eitthvað út með rótarskotum. Þrífst best í frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Tilvalin undir stórum trjám, í skuggsæl horn, í raðir, þyrpingar og limgerði. Einnig á umferðaeyjar og við bílastæði þar sem hún þolir vel að brotna t.d. vegna snjóruðnings. Millibil um 1 m. Ögn þéttar sé hún gróðursett í limgerði. Það er tilvalið að klippa reyniblöðku niður á nokkurra ára fresti eða grisja hana vel. 'Pia' er norskt úrvalsyrki frá Vadsø í N-Noregi. Sögð skríða minna út en reyniblaðka almennt. Náttúruleg heimkynni tegundarinnar eru í Asíu það er tempraða hluta Síberíu, N-Kína, Japan og Kóreu.

Rjúpuvíðir ‘Þórhalla’ – Salix glauca ‘Þórhalla’

Mjög harðgerður, meðalstór runni. Hæð um 1 - 1,3 m. Lauf og sprotar gráloðin. Gulir haustlitir. Sólelskur. Vind- og saltþolinn. Minnir á loðvíði (S. lanata) en laufið á rjúpuvíði er að jafnaði smærra. Engin axlarblöð eru á rjúpuvíði eins og eru á loðvíði. Rjúpuvíðir 'Þórhalla' sómir sér vel í blönduðum beðum með öðrum gróðri en einnig í röðum og þyrpingum. Millibil um 80 sm. Þolir vel klippingu. Yrkið er kennt við Þórhall Jónsson kaupmann en hann var m.a. mikilvirkur í Dalíuklúbbnum. Rjúpuvíðir 'Þórhalla' mun upphaflega hafa komið hingað til lands frá Grænlandi en þar vex rjúpuvíðir villtur. Auk Grænlands er rjúpuvíðir villtur víða í N-Ameríku, N-Evrópu og í N-Asíu. Mjög breytileg tegund.

Rósakirsi / Kúrileyjakirsi ‘Ruby’ – Prunus kurilensis ‘Ruby’

Lítið tré eða stór runni, 2 - 3,5 m á hæð. Blómin ljósbleik í maí. Blómgast fyrir laufgun. Þroskar yfirleitt ekki mikið af berjum. Rauðir haustlitir. Þolir hálfskugga. Harðgerðasta skrautkirsið. Fallegur stakstæður eða fleiri saman með 2 m millibili.

Runnamura ‘Elizabeth’ – Dasiphora fruticosa ‘Elizabeth’

Lágvaxinn, nánast jarðlægur runni. Blómin fremur stór miðið við önnur yrki af runnamuru, ljósgul. Langur blómgunartími. Blómgast fram á haust. Gulir - rauðgulir haustlitir. Sólelsk. Runnamura 'Elizabeth' sómir sér vel í pottum og kerjum, grjóthleðslum o.þ.h. Ágætis þekjuplanta þar sem hún nýtur sólar og keppir ekki við of ágengar plöntur. Gengur einnig undir heitinu runnamura 'Arbuscula'.

Runnamura ‘Goldteppich’ – Dasiphora fruticosa ‘Goldteppich’

Lágvaxinn, nánast jarðlægur runni. Fremur harðgerð. Blómin stór, gul. Blómstrar frá miðju sumri og fram eftir hausti. Blómviljug. Sólelsk. Hentar í ker, hleðslur, kanta o.þ.h.

Runnamura ‘Mount Everes’ – Dasiphora fruticosa ‘Mount Everest’

Harðgerður, fínlegur, þéttur og blómsæll runni. Hæð um 70-90 sm. Sólelsk. Þrífst vel í venjulegri garðmold. Blómin hvít með gulri miðju. Blómgast frá lokum júní og fram eftir hausti. Gulir haustlitir. Hentar í raðir, þyrpingar, blönduð beð og ker/potta. Millibil um 80 sm. 'Mount Everest' er talin vera besta hvítblómstrandi runnamuran hérlendis.