Strandavíðir / Gulvíðir – Salix phylicifolia ‘Strandir’ (Tröllatunga)

Mjög harðgerður, íslenskur, meðalhár runni (1,5 - 2,0 m). Laufið smágert, dökkgrænt og gljáandi. Gulir haustlitir. Sólelskur. Strandavíðir er mikið notaður í limgerði og skjólbelti. Venjulega eru gróðursett 3 stk/m í limgerði. Strandavíðir er þokkalega heilbrigður þó að stundum séu fiðrildalirfur fyrri part sumars til vandræða. Strandavíðir er í raun klón af gulvíði (S. phylicifolia) ættað frá Selárdal á Ströndum. Strandavíðir var gróðursettur á sínum tíma í garðinum að Tröllatungu við Steingrímsfjörð. Þaðan dreifðist svo strandavíðirinn áfram um landið. Strandavíðir er karlkyns og því er óþrifnaður af völdum fræullar ekki vandamál samanborið við t.d. brekkuvíði (S. phylicifolia 'Brekka'). Seldur berróta, 10 stk. í búnti og stakar plöntur í pottum. Fæst einnig í fjölpotta-bökkum.

Sólbroddur ‘Laugardalur’ – Berberis thunbergii ‘Laugardalur’

Fremur harðgerður, þéttur, þyrnóttur, meðalstór runni. Hæð: 1,5 - 2,5 m. Nýtt lauf rauðleitt. Annars grænt - gulgrænt með rauðum jöðrum. Smá gul blóm, nokkur saman fyrri part sumars. Sólelskur. Þolir vel klippingu. Skærrauðir haustlitir í október - nóvember. Þrífst best í venjulegri garðmold. Hentar í raðir, þyrpingar, í limgerði og stakstæður. Í limgerði er hæfilegt millibil 60 - 70 sm. Annars 1 m. Yrkið er fræplanta af B. thunbergii 'Golden Ring' að talið er sem sáð var til í Grasagarði Reykjavíkur, Laugardal. Vegna þess hve sólbroddur 'Laugardalur' heldur laufinu lengi fram eftir hausti hefur hann stundum ranglega verið talinn sígrænn. Einn allra útbreiddasti broddurinn (Berberis spp.) hérlendis. Heimkynni tegundarinnar eru A-Asía þar á meðal Japan.

Sunnukvistur – Spiraea nipponica

Harðgerður, í meðallagi hávaxinn runni (1, 5 m, stundum hærri). Greinar bogsveigðar. Blómin hvít í sveipum sem sitja eftir endilöngum greinunum. Gulir - rauðir haustlitir. Sunnukvistur fer vel stakstæður en einnig í röðum og þyrpingum eða í bland með öðrum gróðri. Millibil um 80 sm. Til að eyðileggja ekki vaxtarlagið er best að grisja gamla runna með því að klippa gamlar greinar alveg niður við jörð. Með því móti skapast rými fyrir nýjar greinar að vaxa upp sem seinna meir munu svo blómgast. Sunnukvistur þolir hálfskugga. Vinsæll og algengur um land allt. Virðist vind- og saltþolinn. Laus við meindýr og sjúkdóma.

Surtartoppur / Svarttoppur – Lonicera nigra

Harðgerður, þéttur, meðalstór runni (1,5 - 2 m). Laufin eru mött og sitja gagnstætt á greinunum. Laufið gjarnan rauðbrúnleitt fyrst á vorin. Laufgast fremur snemma á vorin. Blómin smá, hvít - ljósbleik. Aldinið svart, óætt ber sem þroskast í ágúst. Blómin og berin sitja tvö og tvö saman. Skuggþolinn. Heilbrigður. Haustlitir ekki áberandi. Surtartoppur hentar í raðir, þyrpingar og limgerði. Þolir vel klippingu. Vex best í frjórri garðmold. Millibil í limgerði um 50 sm. Millibil í blandað runnabeð um 80 - 100 sm. Heimkynni: Fjallendi Mið- og Suður-Evrópu.

Surtartoppur ‘Árni’ – Lonicera nigra ‘Árni’

Harðgerður, meðalstór runni. Hæð um 1,5 - 2,0 m. Laufgast snemma í maí. Laufið áberandi rauðbrúnt við laufgun og fram eftir sumri. Hvít - ljósbleik blóm snemma sumars tvö og tvö saman. Svört, óæt ber þroskast í ágúst. Skuggþolinn. Þolir vel klippingu. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með 80 - 100 sm millibili. Góður í ker / potta einnig t.d. klipptur í kúlur. Úrvals-yrki sem valið var í Þöll úr hópi fræplantna. Blöðin eru rauðari en gengur og gerist hjá surtartoppi. Yrkið er kennt við Árna Þórólfsson starfsmann Skógræktarfélags Hfj. Aðeins fáanlegur í Þöll.

Súdetareynir – Sorbus sudetica

Harðgerður, lágvaxinn - meðalhár (1 - 3 m), fremur grófgreinóttur runni. Laufið fremur smátt miðað við aðrar reynitegundir (Sorbus spp.), gljáandi að ofan en gráloðið að neðanverðu. Blómin rauðbleik í sveipum fyrri part sumars. Rauð ber í klösum þroskast að hausti. Gulir - brúnir haustlitir. Þolir hálfskugga. Fer best í hleðslum, köntum og framanlega í blönduðum runna- og blómabeðum. Sjaldgæfur en virðist öruggur í ræktun. Uppruninn í Súdetafjöllunum á landamærum Þýskalands, Póllands og Tékklands.

Sveighyrnir ‘Roði’ – Cornus sericea ‘Roði’

Fremur harðgerður, meðalhár, sumargrænn runni (1,5 - 2,2 m). Blöð gagnstæð, egglaga, 5 - 12 cm á lengd og 2,5 - 6 cm á breidd. Heilrennd. Rauðir og gulir haustlitir. Litlir hvítir blómsveipir birtast snemmsumars. Hvít - ljósblá ber þroskast á haustin í kjölfarið. Sprotar og ungar greinar rauðar. Sólelskur en þolir hálfskugga. Þrífst best í sæmilega frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Í sínum heimkynnum vex sveighyrnir gjarnan í deigu eða jafnvel blautu landi. Sé runninn óklipptur sveigjast greinarnar með tímanum niður og slá rótum. Til að örva myndun nýrra rauðra sprota er tilvalið að klippa í burt eldri greinar alveg niður við jörð seinni part vetrar. Sveighyrnir fer vel í blönduðum runna- og blómabeðum en einnig í nokkrir saman í röðum og þyrpingum með um 80 - 100 sm millibili. Hentar einnig í hefðbundin limgerði með um 50 sm millibili. Ekki síður skrautlegur á veturna vegna rauða barkarlitarins. Greinar af hyrni eru gjarnan notaðar til skreytinga. Yrkið 'Roði' er úrvalsyrki sem barst hingað með efnivið frá Alaska þegar Óli Valur Hansson og félagar fóru þangað í söfnunarferð haustið 1985. Náttúruleg heimkynni sveighyrnis eru auk Alaska, Kanada og norðanverð Bandaríkin þvert yfir meginland N-Ameríku. Skollabersætt (Cornaceae).

Sveigsýrena ‘Agnes Smith’ – Syringa x josiflexa ‘Agnes Smith’ (hvít)

All harðgerður, hægvaxta meðalhár - hávaxinn runni (2 - 3 m). Laufið ljósgrænt, gagnstætt. Gulir haustlitir. Blómin snjóhvít í uppréttum, keilulaga klasa, ilmandi. Blómgast miðsumars (júní - júlí). Falleg stakstæð eða í bland með öðrum runnum og blómum með um 1 m millibili. Kettir sækja mjög í sveigsýrenu 'Agnes Smith'. Því verður að verja hana fyrstu árin gegn ágangi katta með t.d. hænsnaneti eða einhverju þess háttar. Þolir hálfskugga. Þrífst í allri venjulegri garðmold.

Sýrena ‘Villa Nova’ – Syringa ‘Villa Nova’

Harðgerður, stórvaxinn runni (3 - 4 m). Blómin fjólubleik, mörg saman í stórum klasa, ilmandi. Þolir hálfskugga. Þrífst vel í venjulegri garðmold. Ein allra besta sýrenan. Fer vel stakstæð, aftarlega í blönduðum runna- og blómabeðum eða fleiri saman í þyrpingum eða röðum. Millibil 2 m. Ekki er nákvæmlega vitað um uppruna þessa yrkis. Sýrenan mun vera kennd við Vilhjálm Sigtryggsson fyrrverandi framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Úlfareynir – Sorbus x hostii

Harðgert lágvaxið tré - hávaxinn runni (2,5 - 5 m, stundum hærri). Blöðin gljáandi á efra borði, gráloðin á því neðra. Blómin bleik í sveipum fyrri part sumars. Rauð reyniber í klösum þroskast á haustin. Fljótlega étin upp af fuglum. Gulir - rauðir haustlitir. Vind- og saltþolinn. Þolir hálfskugga. Fer vel stakstæður eða í bland með öðrum gróðri. Má einnig nota í limgerði. Í limgerði er hæfilegt bil 50 - 70 sm. Annars er 1,5 - 2 m bil hæfilegt. Klippið helst á sumrin til að forðast reyniátu. Úlfareynir er algengur í íslenskum görðum. Berin eru ekki römm og stundum notuð til manneldis. Úlfareynir er talinn vera náttúrulegur tegundablendingur á milli blikreynis (S. chamaemespilus) og alpareynis (S. mougeotii) og finnst eins og móðurtegundirnar í fjalllendi M-Evrópu.

Úlfarunni – Viburnum opulus

Sæmilega harðgerður, meðalstór, sumargrænn runni (1, 5 - 2,5 m). Laufblöðin sitja gagnstætt. Þau eru þríflipótt, 5 - 10 sm löng og breið, grófsagtennt. Haustlitir gjarnan rauðir. Blómin hvít í 4 - 11 cm breiðum hálfsveipum síðsumars. Yst í sveipnum sitja stærri og skrautlegri ófrjó blóm en frjó nær miðju. Stundum þroskast rauð, óæt ber (steinaldin) í kjölfarið. Rauðir og gulir haustlitir. Úlfarunni þrífst í frjórri, rakaheldinni garðmold. Þolir hálfskugga. Fer vel í blönduðum runnabeðum. Þolir vel klippingu. Millibil um 1 m. Heimkynni úlfarunna eru í Evrópu en þó ekki Íslandi, N-Afríku og M-Asíu. Yllisætt (Adoxaceae).

Þokkasýrena ‘Julia’ – Syringa x henryi ‘Julia’

Harðgerður, hávaxinn runni. Hæð 3 - 4 m. Börkur ljósgrábrúnn. Laufin all stór, heilrennd og hvassydd. Blómin í stórum, u.þ.b. 30 sm löngum, keilulaga, klösum, fjólubleik í knúpp, bleik útsprungin. Blómstrar á miðju sumri. Ilmandi. All blómsæl. Fremur hraðvaxta. Líkist fagursýrenu 'Elinor' (S. x prestonia 'Elinor') í útliti en byrjar aðeins fyrr að blómgast eða seinni part júní. Þokkasýrena 'Julia' þrífst í allri venjulegri garðmold. Blómgast mest í fullri sól en þolir vel hálfskugga. Hentar stakstæð, í blönduð beð, raðir og þyrpingar með 1 - 1,5 m millibili. Yrkið 'Julia' er finnskt. Barst hingað í gegnum Rósaklúbb G.Í. í kringum aldamótin 2000. Hefur reynst vel. Er sögð hafa uppgötvast í hópi fræplantna af gljásýrenu (S. josikaea) í Närpes á vesturströnd Finnlands snemma á áttunda áratug síðustu aldar. Talin vera blendingur gljásýrenu og dúnsýrenu (S. villosa). Smjörviðarætt (Oleaceae).