Körfurunni / Brárunni – Chiliotrichum diffusum
Harðgerður, sígrænn, lágvaxinn runni (1 - 1,5 m). Blöðin fremur smá, dökkgræn að ofan, ljós að neðan. Blómin fremur smá, mörg saman, með hvítar tungukrónur og gulleytar pípukrónur. Litlar biðukollur þroskast að hausti. Sólelskur. Ættaðar frá sunnanverðri S-Ameríku og Falklandseyjum. Virðist all vind- og saltþolinn. Þrífst best í vel framræstum jarðvegi. Körfurunni sómir sér vel í blönduðum beðum með runnum og blómum. Einnig fer vel á því að gróðursetja nokkra saman í þyrpingu með um 70 - 80 sm millibili. Körfurunni finnst hér og þar í görðum. Einnig nefndur "brárunni". Körfurunni minnir í útliti á rósmarín (Rosmarinus officinalis).
Körfuvíðir ‘Katrín’ – Salix viminalis ‘Katrín’
Harðgerður, hávaxinn runni (3 - 5 m). Laufið er áberandi mjólensulaga. Græn að ofan en silkihærð á neðra borði. Gulir haustlitir. Sólelskur. Þolir vel klippingu. Til að körfuvíðir þrífist þarf jarðvegurinn að vera frjór og sæmilega rakur. Sprotar og ungar greinar eru gulgrænar eða gulbrúnar. Fer sérlega vel við tjarnir og læki. All plássfrekur. Millibil þarf að minnsta kosti að vera 150 sm. Körfuvíðir 'Katrín' er hingað kominn frá grasagarðinum í Uppsölum, Svíþjóð. Jóhann Pálsson grasafræðingur tók þar græðlinga og flutti til landsins. Líklega kom víðirinn frá Pétursborg í Rússlandi til Uppsala. Því þótti Jóhanni við hæfi að skíra þennan kvenkyns klón 'Katrínu' í höfuðuð á Katrínu miklu keisaraynju.
Kristsþyrnir ‘Alaska’ – Ilex aquifolium ‘Alaska’
Sæmilega harðgerður, sígrænn, þéttur, hægvaxta runni eða lítið tré. Vaxtarlagið breiðkeilulaga. Hefur náð um 3 m hæð hérlendis. Getur sjálfsagt orðið hærri með tímanum á góðum stöðum. Laufin eru stíf viðkomu, dökkgræn að ofanverðu með bylgjaðan og þyrnóttan blaðjaðar. Blómin smá, hvít, ilmandi, mörg saman fyrri part sumars. Aldinið rautt, óætt ber eða réttara sagt steinaldin.
'Alaska' er sjálffrjóvgandi þýskt yrki frá því um 1960. Sé karlplanta í grennd getur það þó aukið aldinmyndun. Einn harðgerðasti kristsþyrnirinn. Kristsþyrnir þrífst aðeins í skjólgóðum görðum. Þolir vel að vaxa í hálfskugga t.d. í skógarskjóli hærri trjáa og runna. Skýlið alla vega fyrsta veturinn eftir gróðursetningu. Þrífst í allri venjulegri, rakaheldinni garðmold, þó ekki í blautum jarðvegi. Gerar engar sérstakar kröfur til sýrustigs jarðvegs. Þolir ágætlega klippingu. Klippið helst síðvetrar ef þörf er á. Tegundin kristsþyrnir (I. aquifolium) vex villt víða í Evrópu, NV-Afríku og Litlu-Asíu. Kristþyrnisætt (Aquifoliaceae).
Kristsþyrnir ‘Blue Angel’ – Ilex x meserveae ‘Blue Angel’
Sígrænn lágvaxinn - meðahár runni (1 - 1,5 m). Laufið gljándi, blágræn með áberandi þyrnum á jöðrunum. Sprotar og ungar greinar dökk-fjólubláar. Kristsþyrnir er sérbýll. 'Blue Angel' er kvenkyns og þroskar rauð ber sé karlplanta t.d. 'Blue Prince' í grendinni. Þarf skjól. Þolir hálfskugga. Þrífst í frjórum, vel framræstum, aðeins súrum jarðvegi. Með harðgerðustu kristsþyrnum fyrir íslenskar aðstæður.
Ilex x meserveae er blendingur á milli I. aquifolium og I. rugosa. Það var Kathleen K. Meserve frá St. James, New York sem upp úr 1950 víxlaði og kom á markaðinn yrkjum þessa blendings með það að markmiði að fá fram harðgerða kristsþyrna fyrir norðanverð Bandaríkin.
Kristsþyrnir ‘Blue Prince’ – Ilex x meserveae ‘Blue Prince’
Þokkalega harðgerður, hægvaxta, sígrænn, þéttur runni. Laufið blágrænt og þyrnótt á jöðrunum. Sprotar og ungar greinar dökk-fjólublá. Blómin smá, hvít fyrri part sumars. Þolir að vaxa í hálfskugga. Karlkyns yrki. Hentar sem frjógjafi fyrir kvk yrkin 'Blue Princess' og 'Blue Angel'. Þrífst í frjórum, vel framræstum, aðeins súrum jarðvegi. Með harðgerðustu kristsþyrnum fyrir íslenskar aðstæður.
'Blue Prince' hentar í blönduð beð með t.d. öðrum sígrænum runnum eins og auðvitað kvk yrkjum kristsþyrnis á borð við 'Blue Angel' og 'Blue Princess'. Hentar einnig með lyngrósum en kristsþyrnar gera svipaðar kröfur til jarðvegs og skjóls.
Ilex x meserveae er blendingur á milli I. aquifolium og I. rugosa. Það var Kathleen K. Meserve frá St. James, New York sem upp úr 1950 víxlaði og kom á markaðinn yrkjum þessa blendings með það að markmiði að fá fram harðgerða kristsþyrna fyrir norðanverð Bandaríkin.
Kristsþyrnir ‘Blue Princess’ – Ilex x meserveae ‘Blue Princess’
Þokkalega harðgerður, þéttur, sígrænn runni. Hæð um 1 - 1,5 m. Getur hugsanlega orðið hærri við góðar aðstæður. Laufblöðin blágræn og þyrnótt á jöðrunum. Sprotar og ungar greinar dökk-fjólublá. Blómin smá, hvít fyrri part sumars. 'Blue Princess' er kvk yrki. Þroskar rauð ber á haustin sé karlplantna í grennd. Berin endast gjarnan fram á vetur.
Þrífst í frjórum, vel framræstum, aðeins súrum jarðvegi. Með harðgerðustu kristsþyrnum fyrir íslenskar aðstæður.
Ilex x meserveae er blendingur á milli I. aquifolium og I. rugosa. Það var Kathleen K. Meserve frá St. James, New York sem upp úr 1950 víxlaði og kom á markaðinn yrkjum þessa blendings með það að markmiði að fá fram harðgerða kristsþyrna fyrir norðanverð Bandaríkin.
Krosshnappur – Glechoma hederacea
Harðgerð, jarðlæg fjölær, sígræn, þekjandi jurt. Laufið gjarnan rauðbrúnleitt. Laufið er ætt. Blómin fjólublá miðsumars. Þolir hálfskugga. Ilmandi. Þrífst best í frjóum, niturríkum, sæmilega rökum jarðvegi. Hentar sem þekjuplanta t.d. undir trjám, í ker og potta og þess háttar. Dreifir sér með jarðstönglum. Heimkynni: Evrasía.
Lágkvistur – Spiraea humilis
Fremur harðgerður, lágvaxinn runni (30 - 40 sm). Laufið fremur ljósgrænt. Rauðgulir haustlitir. Stórir ljósbleikir, keilulaga blómklasar síðsumars (Seinni part júlí - ágúst). Lágkvistur skríður aðeins út með rótarskotum. Þolir hálfskugga. Lágkvistur fer vel í blönduðum beðum með runnum og fjölæringum. Heimkynni: A-Rússland. Stundum talinn undirtegund víðikvists (S. salicifolia).
Lambarunni – Viburnum lantana
All harðgerður, sumargrænn runni. Hæð: 2 - 3 m hérlendis. Laufin gagnstæð, sporöskjulaga - lensulaga og tennt. 6 - 13 sm á lengd og 4 - 9 sm á breidd. Dúnhærð á neðra borði en nánast hárlaus að ofan. Blómin eru smá, mörg saman í sveip, rjómahvít fyrri part sumars. Það vottar strax fyrir blómsveipunum á greinarendum haustið áður. Berin sem þroskast á haustin eru í raun steinaldin. Fyrst græn, svo rauð og fullþroska svört. Berin eru óæt. Frýs gjarnan grænn en haustlitur annars rauður.
Lambarunni þrífst best í ögn basískum, frjóum, framræstum jarðvegi. Þolir hálfskugga. Þarf nokkurt skjól. Verður gjarnan nokkuð breiður með tímanum. Millibil 1 m eða meir. Heimkynni: Mið-, Suður- og V-Evrópa, NV-Afríka og SV-Asía. Yllisætt (Adoxaceae).
Lárheggur ‘Herbergii’ – Prunus laurocerasus ‘Herbergii’
Fremur viðkvæmur, , þéttur, sígrænn, lágvaxinn runni. Laufið heilrennt, dökkgrænt og gljáandi. Blómin hvít í klösum fyrri part sumars. Þrífst aðeins í góðu skjóli í frjóum rakaheldum, gjarnan aðeins súrum jarðvegi. Þolir vel hálfskugga. Mjög hægvaxta. Hentar í blönduð beð með t.d. lyngrósum og öðrum sígrænum runnum. Sjaldgæfur hérlendis enda ekki öruggur í ræktun.
Lækjavíðir ‘Blika’ – Salix arbusculoides ‘Blika’
Harðgerður, fremur hraðvaxta, hávaxinn runni eða margstofna tré. Hæð 3 - 6 m. Sprotar grannir, dökkrauðbrúnir og gljáandi. Laufblöð lensulaga - mjósporbaugótt, ydd í báða enda og gljándi á efra borði. Ljósari og gjarnan aðeins hærð að neðan. Laufin eru allt að 7,5 sm löng og kirtiltennt. Er með axlarblöð sem falla fljótt. Haustlitur gulur.
Sólelskur. Þolir vel klippingu. Laus við asparglyttu og ryð. Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi sem má gjarnan vera sand- og malarborinn. Lækjavíðir 'Blika' hentar vel í klippt limgerði. Einnig fer hann vel í þyrpingar og við læki og tjarnir. 2 - 3 stk/m henta í limgerði. Meira bil þarf að gefa þegar lækjavíðir er gróðursettur í þyrpingar eða stakur eða um 1,5 m. Lækjavíðir 'Blika' hentar ekki á mjög vindasama staði t.d. úti við ströndina. Þá henta jörfavíðir (S. hookeriana) og alaskavíðir (S. alaxensis) betur.
'Blika' er úrvalsyrki valin úr efniviði úr Alaskaferð Óla Vals og félaga árið 1985. Henni var safnað nálægt Port Alsworth við Clark stöðuvatnið sunnarlega í vesturhluta Alaska. Heimkynni lækjarvíðis eru annars auk Alaska, stærstur hluti Kanada. Lækjavíðir vex aðallega inn til landsins meðfram ám og lækjum. Víðisætt (Salicaceae).