Rós ‘Lísa’ – Rosa rugosa ‘Lísa’

Harðgerð, í meðallagi hávaxin runnarós (1 - 1,5 m). Blómin stór, hálffyllt - fyllt, bleik og ilmandi. Þroskar rauðar nýpur á haustin. Gulir - rauðgulir haustlitir. Skríður út með rótarskotum. 'Lísa' er íslenskt yrki valið úr efniviði sem hingað barst úr Alaska-leiðangrinum árið 1985. 'Lísa' ber þess öll merki að vera ígulrós (R. rugosa) eða ígulrósablendingur. Þrífst og blómstrar mest á sólríkum stað í vel framræstum, ekki of frjóum jarðvegi sem gjarnan má vera blandaður sandi og möl. Vind- og saltþolin. Hentar í raðir og þyrpingar, til að binda jarðveg í brekkum, villigarða og sumarbústaða-lönd. Millibil 80 - 100 sm.

Ígulrós ‘Krístin’ – Rosa rugosa ‘Kristín’

Harðgerð, fremur lágvaxinn (1,5) runnarós. Blómin tvöfölld, rauðbleik, fremur stór, ilmandi og gjarnan nokkur saman í klasa. Rauðar nýpur þroskast að hausti. Rauðgulir - gulir haustlitir. Sólelsk. Skríður nokkuð út með rótarskotum. Vind- og saltþolin. Hentar í raðir, þyrpingar, brekkur og villigarða. Millibil: 80 - 100 sm. 'Kristín' er ein af rósum Jóhanns Pálssonar. Hún mun vera afkomandi R. rugosa 'Logafold' og (R. kamtschatica x ?).

Rós ‘Guðbjörg’ – Rosa ‘Guðbjörg’

Harðgerð, lágvaxin - meðahá runnarós (1,5 m). Laufið dökkgrænt, stakfjaðrað. Rauðir blaðstilkar. Rauð brum. Blómin tvöfölld, dökkrauðfjólublá með ljósari æðum. Ilma. Rauðar nýpur þroskast að hausti. Skriðullt rótarkerfi. Sólelsk. Hentar í runnaþykkni, brekkur (til að binda jarðveg), villigarða og sumarhúsalóðir. Yrkið er upprunið frá Jóhanni Pálssyni fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkur. 'Guðbjörg' er samkvæmt Jóhanni afkvæmi ígulrósarinnar 'Logafold' og R. x kamtschatica.

Ígulrós ‘Hadda’ – Rosa rugosa ‘Hadda’

Harðgerð runnarós. Vaxtarlagið útbreitt. Hefur því þekjandi eiginleika. Hæð: 1 - 1,5 m. Blómin stór, hálffyllt, rauðfjólublá og ilmandi. Er með fyrstu ígulrósum að byrja að blómstra á sumrin. Blómgast fram á haust. Rauðar, flathnöttóttar  nýpur þroskast að hausti. Blaðstönglar og axlarblöð rauðleit. Gulbrúnir haustlitir. Sólelsk. Þrífst best í aðeins sendnum/grýttum og vel framræstum jarðvegi. Blandið lífrænu efni (búfjáráburði/moltu) saman við jarðveginn við gróðursetningu. 'Hadda' hentar í breiðuplantanir til að þekja yfirborð og sem jaðarplanta í trjábeðum. Einnig í blönduð runnabeð, brekkur og þess háttar. Rótarkerfið skríður lítið sem ekkert út. 'Hadda' er úr smiðju Jóhanns Pálssonar (1931 - 2023) og er blendingur R. rugosa 'Rotes Meer' x R. kamtschatica. Kennd við eiginkonu Jóhanns, Hrafnhildi Kristínu Jónsdóttur (1935 - 2023) sem gjarnan var kölluð Hadda.

Rós ‘George Will’ – Rosa rugosa ‘George Will’

Harðgerð, meðalstór runnarós af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin stór, fagurbleik, hálffyllt og ilmandi. Ekki mikið um nýpur. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk. 'George Will' hentar í blönduð runna- og blómabeð, raðir, þyrpingar, sumarhúsalóðir og villigarða. Millibil um 80 sm. Sérlega blómviljug og snotur rós.

Ígulrós ‘Rosa Zwerg’ – Rosa rugosa ‘Rosa Zwerg / ‘Dwarf Pavement’

Harðgerð, fremur lágvaxin runnarós (100 - 130 sm). Blómin stór, tvöfölld, bleik og ilmandi. Rauðar stórar nýpur. Sólelsk. Rótarkerfið aðeins skriðullt. Vind- og saltþolin. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 sm millibili. Þýskt yrki frá 1984 úr smiðju Karl Baum.

Ígulrós ‘Logafold’ – Rosa rugosa ‘Logafold’

Rósin 'Logafold' er afrakstur rósakynbóta Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar. 'Logafold' er harðgerð og þétt runnarós. Vind- og saltþolin enda af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin eru stór, léttfyllt, fallega skálformuð, rauðfjólublá - bleik og ilmandi. Langur blómgunartími. Rauðar nýpur. Sólelsk en þolir hálfskugga. Hæð um 1,5 m. Framleidd og seld í Þöll á eigin rót. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 sm millibili. Getur einnig vaxið "villt" í sumarhúsalöndum og þess háttar. 'Logafold' er úr smiðju Jóhanns Pálssonar grasafræðings. Hún er afkomandi R. 'Charles Albanel x ?.

Ígulrós ‘Fönn’ – Rosa rugosa ‘Fönn’

Harðgerð, lágvaxin - meðalstór runnarós (1 - 1,5 m). Blómin stór, hálffyllt, snjóhvít og ilmandi. Fölbleik í knúpp. Rauðgular nýpur. Rauðgulir haustlitir. Aðeins skriðul. Sólelsk en þolir hálfskugga.. Vind- og saltþolin. 'Fönn' hentar í blönduð runnabeð, þyrpingar og raðir með 70 - 80 sm millibili. Einnig kjörin í sumarhúsalandið enda nægjusöm. Íslenskt yrki frá Jóhanni Pálssyni. Foreldar eru: R. rugosa ‘Logafold’ x R. rugosa ‘Schnee Eule’.

Ígulrós ‘Fru Dagmar Hastrup’ – Rosa rugosa ‘Fru Dagmar Hastrup’

Harðgerð, meðalstór runnarós (1 -1,5 m). Blómin stór, einföld, ljósbleik og ilmandi. Sólelsk. Vind- og saltþolin. Stórar rauðar nýpur. Aðeins skriðul. Þrífst í öllum sæmilega frjóum, vel framræstum jarðvegi. Má gjarnan vera sand- og malarborinn. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 - 100 sm millibili. Danskt yrki. Eitt besta yrkið til framleiðslu á nýpum. Nýpur má nýta í sultur, grauta og te. Þær eru mjög C-vítamínríkar.

Hurdalsrós – Rosa ‘Hurdalsrose’

Meðalstór til stórvaxinn runni, 1,5 - 2,5 m á hæð. All harðgerð. Blómin fagurbleik, meðalstór, hálffyllt. Ilma lítið sem ekkert. Rauðgular, þyrnóttar nýpur. Rauðgulir haustlitir. Fer vel stakstæð, í blönduð beð og upp við vegg, jafnvel á grind sem klifurrós. Skríður ekki út með rótarskotum. Getur sýkst af ryðsvepp.

„Hansarós“ – Rosa rugosa ‘Hansa’

Harðgerð, meðalstór runnarós af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin stór, vel fyllt, rauðfjólblá og ilmandi. Blómgast frá því í júlí og eitthvað fram á haustið. Blómviljug. Þroskar lítið sem ekkert af nýpum. Rauðgulir haustlitir. Mjög algeng hérlendis. Mest notuð í raðir og þyrpingar. Hentar vel í limgerði sem ekki eru "stífklippt". Millibil um 80 sm. Vind- og saltþolin. Skríður eitthvað út sé hún á eigin rót. Stundum kölluð "Vestmannaeyjarós". Tvímælalaust algengasta rósin í íslenskum görðum. Ekki er óalgengt að ígulrósir (R. rugosa) séu í daglegu tali kallaðar "hansarósir" þó að í raun eigi það aðeins við um þetta tiltekna yrki af ígulrós. Gamalt hollenskt yrki.

Fjallarós ‘Lina’ – Rosa pendulina ‘Lina’

Harðgerður, meðalhár, þéttur runni. Hæð og breidd um 2 m. Dreifir sér eitthvað með rótarskotum. Sprotar eru grænir eða rauðbrúnir og nánast þyrnalausir. Greinar í fyrstu uppréttar en síðan með tímanum útsveigðar.  Axlarblöð kirtilhærð á jöðrunum. Laufið fjaðrað og matt. Smáblöðin eru 5 - 11 talsins, oddbaugótt, tvísagtennt og 2 - 6 sm á lengd hvert og eitt. Smáblöðin eru dúnhærð. Blómin einföld, fremur smá, rauðbleik/fjólubleik og ilmandi. Krónublöð ljósari nær miðju. Með fyrstu rósum að byrja að blómstra á sumrin. Fyrstu blómin sjást gjarnan í júní. Blómgast annars í júlí. Ef sumarið er vætusamt og kalt blómstrar hún fram í ágúst eins og gerðist sumarið 2024. Rauðar, smáar, aflangar nýpur þroskast á haustin. Gulir - rauðgulir haustlitir. Sólelsk en þolir vel hálfskugga. All vind- og saltþolin. Þrífst í öllum sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi. Blandið moltu eða stöðnu hrossataði saman við jarðveginn þar sem gróðursetja á fjallarós. Fjallarós 'Lina' hentar sérlega vel í raðir /limgerði og þyrpingar. Einnig falleg stakstæð. Hentar í sumarhúsalóðir og villigarða þar sem hún þolir vel samkeppni við t.d. lúpínu. Þolir vel hóflega klippingu. Millibil um eða yfir 1 m. Í limgerði er 50 sm millibil hæfilegt. Þar sem fjallarós blómstrar á eldri greinar er heppilegt að klippa fjallarósalimgerði strax eftir blómgun í júlí eða ágústbyrjun.  Fái hún að vaxa meira og minna frjálst felst snyrting aðallega í því að klippa í burt gamlar greinar alveg niður við jörð. 'Lina' er norskt úrvalsyrki frá Harstad sem m.a. þrífst í Finnmörku, N-Noregi. Annars eru náttúruleg heimkynni fjallarósar í fjöllum Mið- og S-Evrópu. Rósaætt (Rosaceae).