Lágkvistur – Spiraea humilis
Fremur harðgerður, lágvaxinn runni (30 - 40 sm). Laufið fremur ljósgrænt. Rauðgulir haustlitir. Stórir ljósbleikir, keilulaga blómklasar síðsumars (Seinni part júlí - ágúst). Lágkvistur skríður aðeins út með rótarskotum. Þolir hálfskugga. Lágkvistur fer vel í blönduðum beðum með runnum og fjölæringum. Heimkynni: A-Rússland. Stundum talinn undirtegund víðikvists (S. salicifolia).
Körfuvíðir ‘Katrín’ – Salix viminalis ‘Katrín’
Harðgerður, hávaxinn runni (3 - 5 m). Laufið er áberandi mjólensulaga. Græn að ofan en silkihærð á neðra borði. Gulir haustlitir. Sólelskur. Þolir vel klippingu. Til að körfuvíðir þrífist þarf jarðvegurinn að vera frjór og sæmilega rakur. Sprotar og ungar greinar eru gulgrænar eða gulbrúnar. Fer sérlega vel við tjarnir og læki. All plássfrekur. Millibil þarf að minnsta kosti að vera 150 sm. Körfuvíðir 'Katrín' er hingað kominn frá grasagarðinum í Uppsölum, Svíþjóð. Jóhann Pálsson grasafræðingur tók þar græðlinga og flutti til landsins. Líklega kom víðirinn frá Pétursborg í Rússlandi til Uppsala. Því þótti Jóhanni við hæfi að skíra þennan kvenkyns klón 'Katrínu' í höfuðuð á Katrínu miklu keisaraynju.
Klukkutoppur – Lonicera hispida
Mjög harðgerður, þéttur, meðalstór runni (1,5 m). Sprotar bursthærðir. Brum áberandi stór. Laufið gagnstætt, burstahært. Laufgast í lok apríl - maí. Blómin fölgular, all stórar drjúpandi klukkur tvær og tvær saman í maílok - júní. Aldinið aflangt, pulsulaga, rauðgult ber sem þroskast í ágúst. Óætt. Þolir hálfskugga. Þrífst í allri venjulegri garðmold. Fer vel í runnaþyrpingum, röðum og þess háttar. Millibil 70 - 80 sm. Gekk áður undir heitinu "vandartoppur". Heimkynni: Hátt til fjalla í Mið-Asía, Pakistan, Himalaja og SV-Kína.
Kjarrelri / Alpagrænelri – Alnus viridis subsp. viridis
Harðgerður, stór- og breiðvaxinn runni. Lágvaxnari í skriðum og áveðurs. Hæð 1 - 4 m. Álíka á breidd. Niturbindandi. Ljóselskt. Gerir litlar kröfur til jarðvegs enda dæmigerður frumherji. Forðist frostpolla. Hentar í raðir, þyrpingar, blönduð runnabeð og til uppgræðslu. Millibil 1,5 - 2 m. Hentar í skjólbelti og lítið klippt limgerði. Drjúpandi karlreklar birtast á vorin (maí). Kvenreklar minna á litla köngla. Kvenreklarnir sitja á greinunum allan veturinn. Blöð minni, kringlóttari og sléttari samanborið við blöð sitkaelris (A. sinuata). Einnig þéttvaxnara og með smágerðari rekla samanborið við sitkaelri. Grænt fram á haust og haustlitir lítið áberandi. Gerir engar sérstakar kröfur til jarðvegs. Kjarrelrið okkar er allt vaxið upp af íslensku fræi. Fræmæðurnar eru ættaðar frá Graubünden í Sviss. Heimkynni þessarar undirtegundar eru fjalllendi M-Evrópu ofan eiginlegra skógarmarka.
Kirtilrifs – Ribes glandulosum
Harðgerður, jarðlægur, þekjandi runni. Hæð yfirleitt aðeins 30 - 40 sm. Stundum hærra ef það nær að fikra sig upp girðingar eða upp með öðrum gróðri. Brum rauð. Laufblöð handflipótt með yfirleitt 5 flipum. Allt að 8 (10) sm á breidd, um 6,5 sm á lengd og tvísagtennt. Hárlaus á efra borði en hærð á æðastrengjum á neðra borði. Blaðstilkur álíka langur og blaðkan og kirtilhærður neðst. Laufið er yfirleitt smærra en á hélurifsi og meira gljáandi. Laufgast í lok apríl - maí. Rauðir haustlitir. Blómin smá, fölgræn eða ljósbleik í klösum. Lítt áberandi. Rauð, kirtilhærð, æt ber þroskast strax í ágúst. Ögn smærri eða álíka stór og venjuleg rifsber.
Skuggþolið. Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Blandið moltu eða gömlu taði saman við jarðveginn við gróðursetningu. Getur þakið 1 fermeter á fáum árum. Hentar sem undirgróður undir trjám og runnum. Þrífst illa í of þurrum og ófrjóum jarðvegi. Millibil allt að 1 m. Má setja þéttar ef óskað er eftir því að það loki yfirborðinu sem allra fyrst.
Heimkynni: Alaska, Kanada, norðanverð Bandaríkin ásamt Appalasíufjöllum. Garðaberjaætt (Grossulariaceae)
Kákasusþinur / Nordmannsþinur – Abies nordmanniana
All hávaxið, sígrænt, hægvaxta, breið-keilulaga tré. Barrið fremur mjúkt viðkomu, dökkgrænt og gljáandi á efra borði. Áberandi ljóst á neðra borði. Könglar meðalstórir og sitja uppréttir á greinunum. Sjást sjaldan hérlendis. Nordmannsþinur er skjólþurfi en skuggþolinn. Hentar aðeins í skógarskjól og í grónum görðum. Viðkvæmur fyrir haustkali. Nordmannsþinur er vinsælt jólatré hér og erlendis. Öll nordmannsþin-jólatré sem seld eru hérlendis eru innflutt frá Danmörku en Danir framleiða yfir 10.000.000 nordmanns-jólatrjáa á ári hverju. Nordmannsþinur er kenndur við finnska líffræðinginn Alexander von Nordmann (1803 - 1866). Heimkynni nordmannsþins eru fjalllendi suður og austur af Svartahafi í Georgíu, Tyrklandi og Rússlandi í 900 - 2.200 m.h.y.s. þar sem ársúrkoman er meiri en 1000 mm.
Kasmírreynir – Sorbus cashmiriana
Hávaxinn runni (3 - 4 m). Stundum hærri. Yfirleitt margstofna. Laufblöð stakfjöðruð, samsett úr 15 - 21 smáblöðum. Blómin fölbleik í stórum, gisnum sveip fyrri part sumars. Reyniberin hvít í klösum, fremur stór og mjúk viðkomu fullþroska. Gulir - rauðgulir haustlitir. Kasmírreynir sómir sér vel stakstæður, í þyrpingum nokkrir saman eða í bland með öðrum gróðri. Einstaka sinnum notaður í limgerði. Vaknar fremur snemma af dvala á vorin (apríl). Er því nokkuð hætt við vorkali. Annars harðgerður. Reyniáta getur þó verið vandamál. Klippið og snyrtið kasmírreyni eingöngu að sumri til (júlí - ágúst) til að forðast smit reyniátu í gegnum skurðfleti. Hæfilegt bil milli plantna um 2 m. Í limgerði um 1 m. Þrífst best í vel framræstum, sæmilega frjóum jarðvegi í sól eða hálfskugga. Heimkynni: Vestanverð Himalajafjöll þar með talið Kasmírhérað.
Japanskvistur / Dvergkvistur – Spiraea japonica ‘Little Princess’
Harðgerður, lágvaxinn, þéttur, hálfkúlulaga runni. Hæð um 50 sm og breidd um tæpur meter. Blómin bleik, mörg saman í sveip síðsumars. Rauðgulir haustlitir. Hentar sérlega vel í ker / potta, þyrpingar, raðir, kanta, í hleðslur o.þ.h. Millibil um 70 - 80 sm. Sólelskur en þolir hálfskugga. Klippið niður í um 20 - 30 sm seinni part vetrar. Blómgast á árssprotann. Vinsæll hérlendis.
Japanskvistur ‘Lilly’ – Spiraea japonica ‘Lilly’
Fremur lágvaxinn, þéttur runni. Vaxtarlagið hálfkúlulaga. Blómin rauðfjólblá í sveipum síðsumars. Rauðir haustlitir. Sólelskur en þolir hálfskugga. Best fer á því að klippa japanskvistinn niður í u.þ.b. 20 sm síðvetrar. Það hefur ekki áhrif á blómgun þar sem japanskvistur blómgast á árssprotann. Hentar í ker, potta, blönduð beð, raðir og þyrpingar. All harðgerður en ekki alveg eins harðgerður og japanskvistur 'Eiríkur Rauði'. 'Lilly' er finnskt úrvalsyrki.
Japanskvistur ‘Goldmound’ – Spiraea japonica ‘Goldmound’
All harðgerður, lágvaxinn, þéttur runni (60 - 80 sm). Vaxtarlagið hálfkúlulaga. Laufið skær gulgrænt. Rauðgulir haustlitir. Fjólubleikir blómsveipir síðsumars. Sólelskur en þolir hálfskugga. Hentar vel í potta, ker, í blönduð beð, raðir og þyrpingar. Best fer á því að klippa japanskvist niður í um 25 sm hæð seinni part vetrar. Það kemur ekki niður á blómguninni þar sem hann blómgast á árssprotann. 'Goldmound' líkist mjög 'Golden Princess'. Nýja laufið er þó meira rautt á 'Goldmound'. Hefur verið hér í ræktun í um 30 ár og reynst vel. Var t.d. plantað framan við Blómaval í Sigtúni á móti norðaustri upp úr 1990 og þreifst vel.