Showing all 11 results

Dröfnulyngrós ‘Grandiflorum’ – Rhododendron catawbiense ‘Grandiflorum’

Lágvaxinn - meðalstór runni (1,5 m). Laufið all stórt, sígrænt. Blómin trektlaga, fjólubleik með rauðbrúnum dröfnum í krönsum í júní. Þarf nokkurt skjól. Þolir hálfskugga. Þrífst best í grónum görðum og skógarskjóli. Gróðursetjið í blöndu af mómold, furunálum og veðruðu hrossataði. Ein algengasta lyngrósin hérlendis.

Dröfnulyngrós ‘Roseum Elegans’ – Rhododendron catawbiense ‘Roseum Elegans’

Sígrænn runni. Hæð um 1,5 m. Þarf skjól. Þolir vel hálfskugga. Þrífst best í mómold sem blönduð er gömlu hrossataði

Hjallalyngrós – Rhododendron hirsutum

Lágvaxinn (50 sm), sígrænn runni. Laufin fremur smá með áberandi hærðum jöðrum. Blómin bleik í krönsum fyrri part sumars. Vex ólíkt flestum lyngrósum í kalkríkum jarðvegi. Hjallalyngrós fer vel í hleðslum, steinhæðum og fremst í runna- og fjölæringabeðum.

Lyngrós ‘Baden Baden’ – Rhododendron ‘Baden Baden’

Lágvaxinn, sígrænn runni (50 sm). Blómin rauð í maí - júní. Þrífst best í þokkalegu skjóli. Þolir hálfskugga. Þrífst best í mómold, blönduðum furunálum og gömlu hrossataði. Skýlið að minnsta kosti fyrsta veturinn eftir gróðursetningu. Fer í best í blönduðum beðum með öðrum lyngrósum, lyngi, barrviðum og þess háttar. Almennt talin besta rauðblómstrandi lyngrósin fyrir íslenskar aðstæður.

Lyngrós ‘Cunningham’s White’ – Rhododendron ‘Cunningham’s White’

Yfirleitt fremur lágvaxinn runni (1 - 1,5 m). Laufin fremur stór, sígræn, heilrennd. Blómin stór, trektlaga í krans í lok maí - júní. Bleik í knúpp en hvít útsprungin með ljósum dröfnum. Þrífst best í skógarskjóli og grónum görðum. Gerir ekki sérstakar kröfur til sýrustigs jarðvegs. Þrífst vel í mómold. Blandið furunálum og veðruðu hrossataði í holuna við gróðursetningu. Skýlið afmarkað fyrsta veturinn eftir gróðursetningu. Berið smávegis af tilbúnum áburði árlega á vorin. Gott er að raka laufi að lyngrósum að hausti. Þolir vel hálfskugga. Ein auðveldasta lyngrósin í ræktun og tilvalin fyrir byrjendur í lyngrósaræktun. Ranabjalla getur verið vandamál.

Lyngrós ‘English Roseum’ – Rhododendron ‘English Roseum’

Sígrænn runni. Hæð: 1,5 m. Blómin lillableik í stórum, endastæðum hnapp í júní. Þrífst best í skjóli. Þolir hálfskugga. Eins og flestar aðrar lyngrósir þrífst 'English Roseum' best í fremur súrum jarðvegi. Forðist að setja kalk í jarðveginn. Við gróðursetningu borgar sig að setja saman við jarðveginn furunálar og staðið hrossatað. Íslensk mómold hentar lyngrósum vel. Jarðvegur þarf alltaf að vera rakur en alls ekki blautur. Rakið laufi að lyngrósinni að hausti. Skýlið með striga alla vega fyrsta veturinn eftir gróðursetningu. 'English Roseum' hentar í blönduð beð með öðrum sígrænum gróðri eða í raðir og þyrpingar í grónum lóðum með  um 1 m millibili. Líkist mjög lyngrósinni 'Roseum Elegans' en sumir telja þessar tvær eina og sama yrkið!

Lyngrós ‘Rabatz’ – Rhododendron ‘Rabatz’

Sígrænn runni. Hæð 1 - 1,5 m. Blómin stór, rauð, trektlaga, mörg saman á greinarendum í júní eða fram að mánaðarmótum júní/júlí. Skjólþurfi. Gróðursetjið í mómold blandaðri gömlu hrossataði og furunálum. Varist að planta lyngrósum of djúpt. Vökvið vel eftir gróðursetningu og næstu daga á eftir. Rakið laufi að lyngrósum að hausti. Mælt er með kurli í lyngrósabeð. Setjið moltu yfir lyngrósabeð að vori eða berið sem svarar einni matskeið af blönduðum garðáburði á hverja lyngrós í maí. Ekki meira en það árlega! Dreifið áburðinum vel. Skýlið alla vega fyrsta veturinn eftir gróðursetningu. Mælt er með skýli úr striga sem nær aðeins uppfyrir plöntuna, er opið að ofan og snertir ekki blöðin. Þolir hálfskugga. Lyngrósin 'Rabatz' þrífst eingöngu í góðu skjóli í vel grónum hverfum. Reynsla hérlendis er ennþá takmörkuð. Þessi lyngrósarblendingur er úr smiðju H. Hachmann, Þýskalandi 1984.

Lyngrós / Tindalyngrós ‘Karminkissen’ – Rhododendron ‘Karminkissen’

Lágvaxinn, þéttur, hægvaxta sígrænn runni. Hæð 40 - 50 sm. Breidd um 70 sm. Þúfulaga eða púðalaga vaxtarlag (Kissen = púði). Laufið dökkgrænt, ögn gljáandi, lensulaga, heilrent um 3 x 10 sm á stærð. Laufblöðin eru gráloðin á neðra borði. Blómin klukkulaga, dökkrauðbleik og sitja mörg saman á greinaendum. Blómgast í júní. Skjólþurfi. Þrífst vel í hálfskugga. Gróðursetjið 'Karminkissen' í mómold og blandið dauðum furunálum og gömlu hrassataði í jarveginn. Gróðursetjið lyngrósina í sömu dýpt og hún stendur í pottinum þegar þú fékkst hana í hendur. Vökvið vel eftir gróðursetningu og næstu daga þar á eftir. Skýlið lyngrósinni alla vega fyrsta veturinn eftir gróðursetningu. 'Karminkissen' hentar framarlega í beð með öðrum lyngrósum og sígrænum runnum. Þýskt yrki úr smiðju H. Hachmann frá árinu 2005. Foreldrar eru tindalyngrósin R. yakushimanum 'Koichiro Wada' x  R. 'Ruby Hart'. Lyngætt (Ericaceae).

Tindalyngrós ‘Colibri’ – Rhododendron yakushimanum ‘Colibri’

Lágvaxinn, sígrænn, þéttur, hægvaxta, hálfkúlulega runni. Hæð 50 - 100 sm. Blómin rauðbleik í knúpp en fagurbleik útsprungin. Blómgast í lok maí og fram í júní. Skjólþurfi. Þolir hálfskugga. Gróðursetjið í mómold blandaðri gömlu hrossataði og furunálum. Vökvið vel eftir gróðursetningu og næstu daga á eftir. Skýlið alla vega fyrsta veturinn eftir gróðursetningu. Gott er að þekja lyngrósabeð með trjákurli. Berið á um eina teskeið af blönduðum garðáburði í kringum plöntuna í maí en ekki meira það árið. Hentar framarlega í beði með öðrum lyngrósum, lyngi og öðrum sígrænum runnum. Tindalyngrósir (R. degronianum ssp. yakushimanum) eru almennt talið harðgerðari en flestar aðrar lyngrósir. Heimkynni þeirra eru á japönsku eyjunni Yakushima.

Tindalyngrós ‘Koichiro Wada’ – Rhododendron yakushimanum ‘Koichiro Wada’

Þéttur, hægvaxta, sígrænn, þéttur runni. Hæð og breidd um 60 - 70 sm. Blómin eru bleik í knúpp en hvít, bjöllulaga, mörg saman í júní. Laufið áberandi kúpt, heilrennt, öfuglensulaga, hvítloðið í fyrstu síðan dökkgræn. Laufblöð hvítloðin að neðan í fyrstu en síðan brúnloðin að neðanverðu. Skjólþurfi. Þolir hálfskugga. Gróðursetjið í mómold, blandaðri gömlu hrossataði og furunálum. Varist að planta tindalyngrós of djúpt. Gott er að setja moltu yfir lyngrósabeðin árlega eða bera á tilbúinn blandaðan áburð sem nemur um einni sléttfullri matskeið á hverja plöntu í maí. Hentar saman með öðrum lyngrósum, lyngi og sígrænum runnum á skjólsælum stað. Tegundin er ættuð frá japönsku eyjunni Yakushima. Þetta úrvalsyrki er kennt við japanskan garðyrkjumann, Koichiro Wada, sem sendi úrvalsefnivið af tindalyngrós til Rothchild frá Exbury í Cornwall, Englandi á fjórða áratug síðustu aldar. Rothchild var á þessum tíma frægasti lyngrósasérfræðingurinn.

Urðalyngrós – Rhododendron ferrugineum

Lágvaxinn, sígrænn runni (50 sm). Laufið er smátt, ryðbrúnt á neðra borði. Blómin bleik í krönsum fyrri part sumars. Þrífst í súrum jarðvegi. Þarf nokkuð skjól. Þolir hálfskugga. Gott er að blanda furunálum saman við moldina við gróðursetningu. Rakið laufum að urðalyngrósinni á haustin. Fer vel í steinhæðum og framarlega í lyngrósabeðum.