Steinahnoðri – Phedimus spurius
Harðgerð, jarðlæg sumargræn - hálfsígræn jurt. Hæð 10 - 15 sm. Laufblöðin eru gagnstæð, þykk, öfugegglaga, nýrlaga - hringlaga og tennt á efri hluta blöðkunnar. Blöðin eru gjarnan rauðmenguð á þeim plöntum sem bera rauðleit blóm. Blöðin sitja þétt á endum jarðlægra stöngla. Blómlitur er mismunandi eftir yrkjum / einstaklingum. Blómin eru stjörnulaga, bleik, hvít eða rauð. Þau eru í hálfsveip á stöngulendum. Blómgast síðsumars og fram á haust. Visnar blómskipanir standa uppréttar langt fram á næsta ár.
Steinahnoðri er sólelskur. Annars nægjusamur. Þurrkþolinn. Þrífst ekki í blautum jarðvegi. Þrífst vel í sendnum og malarbornum jarðvegi. Hentar í hleðslur, ker og sem kantplanta. Þar sem steinahnoðri er breiðumyndandi hentar hann sem þekjuplanta þar sem er sæmilega sólríkt og ekki mjög ágengt illgresi fyrir. Steinahnoðri dreifir sér all hratt þar sem aðstæður leyfa. Humlur sækja í blóm steinahnoðra. Er sagður aðeins eitraður sé hans neytt. Eldra og betur þekkt fræðiheiti þessa hnoðra er Sedum spurium.
Heimkynni: Kákasusfjöll. Hnoðraætt (Crassulaceae).
Rökkursteinbrjótur – Saxifraga cuneifolia
Harðgerð, lágvaxin, sígræn, fjölær jurt. Hæð 8 - 20 sm. Laufblöðin sitja í hvirfingum. Sprotar eru jarðlægir og bætast við nýjar blaðhvirfingar út frá þeim eldri. Myndar með tímanum þéttar breiður þar sem aðstæður leyfa. Laufblöðin eru fleyglaga, breið-egglaga eða því sem næst kringlótt. Þverstýfð í endann. Gjarnan tennt í efri hluta blöðkunnar. Blómsönglar rauðleitir og vaxa vel upp fyrir blaðbreiðuna. Bera nokkur eða all mörg, smá, hvít blóm stundum með gulum eða rauðleitum dröfnum. Blómgast í júní - júlí. Líkist smágerðu postulínsblómi (Saxifraga x urbium).
Rökkursteinbrjótur er skuggþolinn eins og nafnið gefur til kynna. Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Jarðvegurinn þarf ekki að vera djúpur. Hentar í beðkanta, hleðslur, ker, potta og sem undirgróður. Þar sem rökkursteinbrjótur er mjög lágvaxinn getur hann ekki keppt við hávaxið, ágengt illgresi.
Heimkynni: Fjalllendi Mið- og S-Evrópu. Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Urðahnoðri – Sedum lydium
Harðgerð, mjög lágvaxin, þekjandi, sígræn jurt. Laufblöð mjög smá. Oft rauðleitur sérstaklega á þurrum stöðum og yfir vetrarmánuðina. Minnir tilsýndar á mosa. Blómstönglarnir vaxa allt að 10 sm upp úr blaðbreiðunni. Blómin eru hvít eða bleik í hálfsveip. Blómgast upp úr miðju sumri og fram á haust. Fræhýðin eru áberandi rauð standa fram eftir hausti. Sólelskur en þolir þó hálfskugga. Þrífst í þurrum og rýrum jarðvegi en einnig í venjulegri garðmold. Dreifir sér út með tímanum þar sem aðstæður leyfa.
Urðahnoðri hentar í steinhæðir og hleðslur. Einnig sem undirgróður þar sem ekki er of mikill skuggi. Hentar einnig á gróðurþök, veggi, í ker og potta með öðrum áþekkum plöntum eins og hnoðrum (Sedum spp.), steinbrjótum (Saxifraga spp.) og húslaukum (Sempervivum spp.). Heimkynni: Fjalllendi V- og M-Tyrklands og Armeníu. Hnoðraætt (Crassulaeae).
Skriðtoppur – Lonicera prostrata
All harðgerður, jarðlægur runni. Hæð um eða yfir 30 sm. Þekjandi. Laufin fremur smá, nær stilklaus, oddbaugótt eða egglaga. Blómin smá, í blaðöxlunum, tvö og tvö saman, gulleit fyrri part sumars. Þroskar rauð ber á haustin. Þrífst í allri venjulegri garðmold. Þolir hálfskugga. Hentar sem undirgróður, í hleðslur og framanlega í beð. Heimkynni: V-Kína. Verður vonandi fáanlegur sumarið 2025.
Breiðumispill ‘Major’ – Cotoneaster dammeri ‘Major’
Sæmilega harðgerður, sígrænn, jarðlægur runni. Blöðin eru sporöskjulaga og stærri samanborið við önnur yrki breiðumispils. Blöðin verða gjarnan rauðleit á veturna. Blómin eru smá, hvít, stjörnulaga með rauðum fræflum og birtast miðsumars. Rauð ber þroskast á haustin. Sitja gjarnan á greinunum fram á vetur. Breiðumispill 'Major' þolir hálfskugga. Hentar sem kantplanta, sem undirgróður undir trjám/runnum sem ekki varpa miklum skugga. Fer einnig vel í hleðslum og ofan á veggjum þar sem greinarnar geta slútað niður. Millibil um 60 - 70 sm. Þrífst eingöngu í grónum görðum í sæmilega frjóum, vel framræstum jarðvegi. Skýlið fyrsta veturinn með t.d. striga.
Breiðumispill ‘Eichholz’ – Cotoneaster dammeri ‘Eichholz’
All harðgerður, sígrænn, fremur hægvaxta jarðlægur runni. Hæð: 10 - 25 sm. Breidd: 80 sm. Laufið smátt, dökkgrænt. Ljós stjörnulaga blóm birtast í júni/júlí. Þroskar rauð ber í september sem gjarnan sitja á greinunum fram á vetur. Þolir vel hálfskugga. Þrífst í allri venjulegri garðmold. Hentar sérstaklega vel sem kantplanta, sem undirgróður undir trjám/runnum sem ekki varpa of miklum skugga. Breiðusmispill 'Eichholz er einnig kjörinn í hleðslur, steinhæðir og brekkur. Millibil um 70 sm.
Hrútaber / Hrútaberjaklungur – Rubus saxatilis
Harðgerð, lágvaxin, íslensk jurt. Hæð um 10 - 20 sm. Hrútaberjaklungur er skuggþolið. Lauf þrífingruð. Rauðir haustlitir. Blóm fimmdeild, hvít á lit. Berin (steinaldin) eru rauð í klösum og má nýta í sultur (hrútaberjahlaup) og fleira. Hrútaber fjölga sér kynlaust með löngum renglum sem mynda smáplöntur sem skjóta rótum. Þrífst í allri sæmilega frjórri, vel framræstri mold. Prýðis þekjuplanta t.d. undir trjám og runnum. Hentar einnig í brekkur og skriður. Í skugga þroskast minna eða ekkert af berjum.
Dvergavör ‘Atropurpurea’ – Ajuga reptans ‘Atropurpurea’
Harðgerð, alveg jarðlæg fjölær jurt. Laufið gljáandi, dökk-purpurarautt - brúnt. Hálf-sígræn. Blómin dökkfjólublá í uppréttum klasa. Blómgast á miðju sumri. Dreifir sér út með ofanjarðar-renglum. Skuggþolin. Prýðis þekjuplanta undir trjám og inn á milli runna og fjölæringa. Þrífst í allri venjulegri garðmold svo fremi að hún sé of þurr.
Japanskvistur ‘Odensala’ / Valhallarkvistur – Spiraea japonica ‘Odensala’
Harðgerður, lágvaxinn, þekjandi runni. Lillableikir, all stórir blómsveipir birtast síðsumars. Ekki sérlega blómviljugur. Rauðir haustlitir. Rótarkerfið er talsvert skriðult. Þolir hálfskugga. Þrífst í allri venjulegri garðmold. Hentar sem þekjandi kantplanta og sem undirgróður. Millibil 70 - 80 sm. Finnskt yrki.
Ilmblágresi / Ilmgresi ‘Spessart’ – Geranium macrorrhizum ‘Spessart’
Harðgerður, fremur lágvaxinn, þekjandi fjölæringur. Ilmandi blöðin eru djúpflipótt eða sepótt, ljósgræn og þéttsett kirtilhárum, hálfsígræn. Blómgast upp úr miðju sumri. Blómin hvít en bikarinn rauður. Úrvals þekju- og kantplanta. Ilmblágresi breiðist út með þykkum jarðstönglum. Hæfilegt millibil er 40 - 60 sm. Þrífst best í frjóum, sæmilega framræstum jarðvegi. Þolir vel hálfskugga.
Lundahæra – Luzula sylvatica
All harðgerð, sígræn, fjölær, graskennd jurt. Hæð: 30 - 70 sm. Laufið gljáandi. Hært á blaðjöðrum. Blómhnoð í smáum klösum sem standa upp úr blaðbreiðunni, brún en ekki áberandi. Lundahæra er all skuggþolin. Hentar sem þekjandi undirgróður undir trjám og runnum, í beðjöðrum, við tjarnir og læki. Breiðist rólega út. Þrífst vel í rökum - meðalrökum jarðvegi. Þolin gagnvart breytilegu sýrustigi jarðvegs þó hún vaxi venjulega villt í súrum jarðvegi. Heimkynni Evrópa og SV-Asía.
Krosshnappur – Glechoma hederacea
Harðgerð, jarðlæg fjölær, sígræn, þekjandi jurt. Laufið gjarnan rauðbrúnleitt. Laufið er ætt. Blómin fjólublá miðsumars. Þolir hálfskugga. Ilmandi. Þrífst best í frjóum, niturríkum, sæmilega rökum jarðvegi. Hentar sem þekjuplanta t.d. undir trjám, í ker og potta og þess háttar. Dreifir sér með jarðstönglum. Heimkynni: Evrasía.