Dúnheggur – Prunus maximowiczii

All harðgert, fremur lágvaxið tré eða runni (5 - 7 m). Sprotar og blaðstilkar dúnhærðir. Laufin sporöskjulaga - egglaga og ydd í endann. Snubbótt - fleyglaga í grunninn og tvísagtennt. Gishærð. Blómin hvít, nokkur saman snemmsumars (júní) á all löngum blómstilkum með lauflíku háblaði. Aldinið lítið rautt - svart ætt, ber (steinaldin). Rauðgulir - koparbrúnir haustlitir. Stundum jafvel rauðir. Takmörkuð reynsla er af dúnhegg hérlendis enda sárasjaldgæfur. Þrífst í sæmilega frjósömum, rakaheldnum jarðvegi þar sem einhvers skjóls nýtur. Virðist annars harðgerður. Blómin eru ekki eins áberandi og á hegg (P. padus). Aldinin eru heldur ekki sérlega áberandi. Fallegastur er hann á haustin vegna haustlitanna. Hentar stakstæður eða í þyrpingar með um 2,5 - 3 m millibili. Þolir hálfskugga. Heimkynni dúnheggs eru í NA-Asíu (Kína, Kórea, Rússland og Japan). Vex þar til fjalla í leirkenndum jarðvegi. Plönturnar okkar eru vaxnar upp af fræi sem safnað var hérlendis. Rósaætt (Rosaceae).

Gullsópur ‘Roter Favorit’ – Cytisus scoparius ‘Roter Favorit’

Fremur lágvaxinn runni (1 - 1,5 m). Greinar sígrænar. Blómin rauð miðsumars. Frekar gisgreinóttur. Sól- og skjólþurfi. Kelur gjarnan. Klippið að vori eða snemma sumars kalnar greinar með klippum eða skærum. Talsvert viðkvæmari samanborið við geislasóp (Cytisus purgans).

Hunangstoppur ‘Little Honey’ – Lonicera crassifolia ‘Little Honey’

Jarðlægur, sígrænn, hægvaxta dvergrunni. Blöðin smá, kringlótt og gljáandi. Dökkgræn en gjarnan vínrauð á veturna. Blómin gul, nokkur saman í krans miðsumars. Aldinið svart ber. Sólelskur en þolir hálfskugga. Nýlegur í ræktun og reynsla því takmörkuð. Hentar í hleðslur, kanta og ker í vel framræstum jarðvegi. Heimkynni: Kína.

Ryðelri / Ryðölur – Alnus rubra

Harðgert, sumargrænt, hraðvaxta, einstofna, meðalstórt - stórvaxið tré. Getur væntanlega náð allt að 20 m hæð á góðum stöðum hérlendis. Lágvaxnara og runnkendara við erfið skilyrði. Börkur grár með ljósum þverrákum. Gjarnan ber á uppblásnum trjákvoðu-bólum á berki. Íslenska heitið og fræðiheitið rubra vísa til þess að sé skorið í börkinn verður sárið áberandi ryðrautt. Brum stilkuð. Laufblöðin eru egglaga - oddbaugótt, 7 - 15 sm á lengd, 4,5 - 7,5 sm á breidd, tvísagtennt með grunna sepa og ydd. Blaðjaðarinn verpist aðeins niður á við og er þetta helsta greiningareinkenni ryðelris frá öðrum tegundum elris. Lauf ljósari að neðan og stundum með ryðrauðum hárum á æðastrengjum. Ung lauf gjarnan rauðmenguð. Blaðstilkur allt að 2 sm langur. Haustlitur brúnn eða frýs grænt. Rauðleitir karlreklar, 10 - 15 sm langir, vaxa fram snemma vors (mars / apríl). Verða gulbrúnleitir þegar frjóhirslunar opnast. Kvenreklar eru nokkrir saman, brúnir, sporöskjulaga og 2 - 3 sm á lengd fullþroska. Minna á litla köngla. Fræið hefur tvo himnukennda vængi. Ryðelri gerir litlar kröfur til jarðvegs. Þrífst best í rakaheldnum jarðvegi. Talið henta til gróðursetningar í vatnsrásir og þess háttar svæði sem eru aðeins tímabundið undir vatni. Vex eins og annað elri í sambýli við niturbindandi Frankia bakteríur. Rótarskot engin eða lítið áberandi. Ryðelri hentar stakstætt, í raðir / þyrpingar með að minnsta kosti 3 m millibili. Hentar einnig til skógræktar. Fremur nýlegt í ræktun en lofar mjög góðu. Hugsanlega hentugt sem götutré. Ryðölurinn okkar er allur vaxinn upp af fræi sem safnað hefur verið hérlendis. Erlendis er timbrið nýtt í húsgögn, hljóðfæri og fleira. Viðurinn þykir sérlega góður til að reykja fisk og kjöt. Heimkynni: Vesturströnd N-Ameríku allt frá Alaska suður til Kaliforníu. Bjarkarætt (Betulaceae).

Flosvíðir – Salix × dasyclados

Harðgerður, stórvaxinn runni (3 - 4 m). Laufið lensulaga. Minnir á körfuvíði (Salix viminalis) en grófgerðari. Sprotar áberandi loðnir. Karlkynsklónn með fallegum silfurloðnum reklum strax í febrúar/mars með bleikum blæ. Gulir frjóhnappar birtast í mars / apríl. Þrífst best í frjóum, rökum jarðvegi t.d. við læki og tjarnir. Einnig góður í runnaþyrpingar og jafnvel skjólbelti. Fallegastur sé hann klipptur / sagaður niður reglulega.

Gráösp ‘Venus’ – Populus x canescens ‘Venus’

Meðalhátt tré. Krónan gjarnan breið. Börkur á eldri trjám hrjúfur og sprunginn. Laufið gljáandi að ofanverðu en hvítloðið að neðanverðu. Laufgast fremur seint en stendur græn fram í október. Hætt við haustkali og að losna í hauststormum. Aðeins ræktanleg á hlýjum svæðum með langan vaxtartíma. Sjaldgæf hérlendis en stór og gömul eintök finnast á Akureyri, í Hafnarfirði og Reykjavík. Þarf frjóan jarðveg. Stundum ber eitthvað á rótarskotum. Tréin okkar eru klón af trénu sem stendur við "Venusarhúsið", Austurgötu, Hfj. sem útnefnt var tré ársins árið 2006.

Vesturbæjarvíðir – Salix x smithiana

Lágvaxið - meðalhátt tré eða stórvaxinn runni. Laufið grágrænt. Sprotar gulgrænir. Börkur grár og sprunginn á eldri trjám. Kvk. Sólelskur. Þarf frjóan jarðveg og hlýjan vaxtarstað til að þrífast. Hætt við haustkali flest ár enda grænn fram í október. Stundum ber á vörtum í laufi af völdum sagvespu (Euura bridgmanii). Hentar stakstæður, í raðir og þyrpingar. Bindið upp eftir gróðursetningu ef vesturbæjarvíðirinn á að verða einstofna. Þolir vel klippingu / stífingu. Upphaflega barst vesturbæjarvíðir til landsins í byrjun síðustu aldar sem lifandi sproti í tágakörfu frá Þýskalandi sem Jón Eyvindsson kaupmaður flutti inn. Ísleifur sonur hans kom sprotanum til og gróðursetti í garð þeirra að Stýrimannstíg 9, Rvk. Víðirinn dafnaði vel og dreifðist um Vesturbæinn í Rvk og víðar enda auðvel að fjölga honum með græðlingum. Líklega er allur vesturbæjarvíðir hérlendis upprunninn af þessu tré. Vesturbæjarvíðir er talinn náttúrulegur blendingur körfuvíðis (Salix viminalis), selju (Salix caprea) og gráselju (Salix cinerea) og finnst víða í Evrópu. Okkar vesturbæjarvíðir er ræktaður af græðlingum teknum af tré sem stendur við Hábæ við Skúlaskeið, Hfj. Einnig höfum við verið með vesturbæjarvíði frá Ytri Skógum sem að öllum líkindum er sami klónn. Vesturbæjarvíðir er sjaldgæfur hérlendis nema helst í eldri hverfum Rvk (Vesturbæ og miðbæ). Yfirleitt áberandi kræklóttur sökum kals.

Rós ‘Agnes’ – Rosa ‘Agnes’

All harðgerð runnarós. Ígulrósablendingur. Laufin stakfjöðruð og áberandi krumpuð. Talsvert þyrnótt. Hæð allt að 1,5 m. Vill stundum kala. Blómstrar illa í rigningarsumrum. Blómin ljósgul, hálffyllt og ilmandi. Blómgast síðsumars. Gróðursetjið í þokkalegu skjóli á móti sól í sæmilega frjóan, vel framræstan jarðveg. Úr smiðju Dr. W. Saunders, Kanada frá árinu 1922. Rósaætt (Rosaceae).

Sitkavíðir ‘Óli’/ „Ólavíðir“ – Salix sitchensis ‘Óli’

Harðgerður stórvaxinn runni/lágvaxið tré. Brum útstæð. Laufið öfugegglaga - öfuglensulaga, 7 - 10 cm á lengd. Nánast heilrennd. Blaðjaðrar verpast aðeins niður á við. Laufin breiðust framan við miðju. Gljáandi á efra borði en silfurhærð á neðra borði (sjá mynd). Er með fremur smá axlarblöð. Gulir haustlitir í október. Minnir á viðju (Salix myrsinifolia) í útliti en heilbrigðari og almennt laus við asparglyttu og ryðsvepp. Sitkavíðir 'Óli' er vindþolinn og sólelskur. Líklega sæmilega saltþolinn en meiri reynslu vantar hvað það varðar. Þrífst vel í öllum sæmilega frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Sitkavíðir hentar í limgerði og skjólbelti 2 - 3 plöntur/m. Þolir mjög vel klippingu jafnt að vetri sem sumri. Yrkið er kennt við Óla Val Hansson (1922 - 2015) garðyrkjuráðanaut en hann kom með þennan víði til landsins úr Alaska leiðangri sínum árið 1953. Heimkynni sitkavíðis eru vestanverð N-Ameríka frá Alaska suður til N-Kaliforníu. Útbreiðslan nær austur til Montana fylkis. Víðisætt (Salicaceae).

Runnamura ‘Glenroy Pinkie’ – Dasiphora fruticosa ‘Glenroy Pinkie’

All harðgerður, lágvaxinn runni (50 sm), fínlegur, þéttur runni. Blómin fölbleik. Blómgast frá miðju sumri og fram á haust. Sólelsk. Þrífst vel í venjulegri garðmold. Hentar í hleðslur, kanta/jaðra gróðurbeða, ker o.fl.

Runnamura ‘Goldfinger’ – Dasiphora fruticosa ‘Goldfinger’

All harðgerður, fínlegur, lágvaxinn, þéttur, sumargrænn runni (50 - 80 sm). Blómin all stór miðað við runnumuru, dökkgul. Blómgast frá miðju sumri og fram á haust. Blómviljug. Sólelsk. Runnamura 'Goldfinger' hentar í raðir og þyrpingar með um 60 - 70 sm millibili eða í blönduð beð með runnum og fjölæringum. Einnig heppileg til ræktunar í kerjum og pottum.

Svartyllir ‘Black Tower’ – Sambucus nigra ‘Black Tower’

Hægvaxta, súlulaga runni/smátré. Hæð allt að 2 m. Laufið dökkvínrautt - brúnt, stakfjaðrað. Fölbleikir blómsveipir síðsumars. Þarf skjól. Þolir hálfskugga. Takmörkuð reynsla. Þrífst í frjórri garðmold. Fer best í blönduðum runna- og fjölæringabeðum eða í kerjum/pottum.