Einir / Írlandseinir – Juniperus communis ‘Hibernica’

Sígrænt, súlulaga smátré. Hæð allt að 2 m. Hægvaxta. Barrið stingandi. Sólelskur en þolir hálfskugga. Skjólþurfi. Hentar í blönduð beð með öðrum sígrænum gróðri og í ker í skjóli. Skýlið írlandseini að minnsta kosti fyrsta veturinn eftir gróðursetningu.

Einir – Juniperus communis – Undirhlíðar-Hfj

Harðgerður, sígrænn, lágvaxinn runni (30 - 120 sm). Ýmist jarðlægur eða hálfuppréttur. Sérbýll. Kvenplöntur þroska einiber á tveimur árum. Þau má nýta í matargerð. Sólelskur. Hægvaxta. Einir hentar í ker, hleðslur, kanta og þess háttar. Einnig í blönduð beð með öðrum sígrænum runnum. Jarðlæg yrki nokkuð þekjandi. Vex villtur víða um land.

Breiðumispill / Hrísmispill ‘Skogholm’ – Cotoneaster x suecicus ‘Skogholm’

All harðgerður, sígrænn, jarðlægur, þekjandi runni. Laufið dökkgrænt, heilrennt. Verður gjarnan bronslitað yfir vetrartímann. Stundum vill laufið sviðna að vetri til en það lagast yfirleitt fljótlega aftur. Blómin smá, hvít með rauðbleikum frjóhnöppum, stjörnulaga snemmsumars. Stundum þroskast rauðgul ber á haustin. Þolir hálfskugga. Tilvalinn í hleðslur, kanta, upp á veggi, í ker og þess háttar. Greinarnar geta með tímanum slútað niður um 2 m. Millibil 60 - 80 sm. Vinsæl garðplanta hérlendis. Fjótvaxnari samanborið við skriðmispil (C. apiculatus). Þrífst í allri venjulegri, vel framræstri garðmold. 'Skogholm' er sænskt úrvalsyrki frá árinu 1941.

Þyrnirós (Lóurós) ‘Lovísa’ – Rosa pimpinellifolia ‘Lovísa’

Sérlega harðgerður, þéttur, fremur lágvaxinn runni. Hæð um 1 m eða rúmlega það. Laufið blágrænt, fínlegt, stakfjaðrað. Árssprotar rauðir, mikið þyrnóttir. Blómin meðalstór, hvít, einföld og ilmandi. Blómgast í nokkrar vikur miðsumars. Blómviljug. Dökkbrúnar - svartar nýpur þroskast á haustin. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk. Vind- og saltþolin. Skríður eitthvað út með rótarskotum. Lóurós er nægjusöm. Þrífst vel í ekki of frjóum jarðvegi og vel framræstum sem gjarnan má vera sand- og malarborinn. Lóurós er kjörin í raðir, þyrpingar, sumarhúsalandið og opin svæði. All vind- og saltþolin. Millibil 80 - 100 sm. Ólafur S. Njálsson, Nátthaga valdi þessa rós árið 1985 úr 66 sáðplöntum sem hann fékk hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur, Fossvogi á áttunda áratug síðustu aldar. Plönturnar voru á sínum tíma gróðursettar í limgerði á Seltjarnarnesi og bar 'Lovísa' af hvað varðar harðgerði og blómgun. Rósina skírði hann í höfuðið á móður sinni Lovísu Margréti Marinósdóttur. Plönturnar munu hafa vaxið upp af erlendu fræi sem merkt var R. pimpinellifolia var. altaica. Afbrigðið var. altaica hefur stundum verið nefnt hlíðarós. Lóurós algeng hérlendis sérstaklega á opnum svæðum sveitarfélaga. Lóurós er að mörgu leyti dæmigerð þyrnirós. Náttúruleg heimkynni þyrnirósar eru í stórum hluta Evrópu og þar með talið Ísland og NV-Afríku. Afbrigðið var. altaica er ættað frá Síberíu. Rósaætt (Rosaceae).

Þyrnirós ‘Katrín Viðar’ – R. pimpinellifolia ‘Katrín Viðar’

Harðgerður, þéttur, frekar lágvaxinn runni (1,5 m). Laufið blágrænt fínlegt, stakfjaðrað. Blómin stór, einföld, hvít en ljósbleik í knúpp. Ilmar. Blómstrar í nokkrar vikur aðallega í júlí í venjulegu árferði. Blómsæl. Dökkbrúnar - svartar nýpur þroskast á haustin. Græn fram á haust. Rauðgulir haustlitir í október. Sólelsk. Skríður eitthvað út með rótarskotum. Nægjusöm. Sæmilega vind- og saltþolin. Þrífst vel í sæmilega frjóum, framræstum jarðvegi sem má gjarnan vera sand- og malarborinn. Blandið gömlu taði eða moltu saman við jarðveginn fyrir gróðursetningu. Þolir ágætlega klippingu. Blómstrar á eldri greinar og því hefur klipping að vetri eða á vorin áhrif á blómgun það árið. Fjarlægið eldri greinar alveg niður við jörð. Þannig auðveldið þið rósarunnanum að endurnýja sig. Aðallega notuð í þyrpingar, raðir eða í blönduð runnabeð. Millibil allt að 70 - 100 sm. Íslenskt úrval úr Grasagarði Reykjavíkur frá árinu 1972. Kom upp af fræi frá grasagarðinum í Dresden, Þýskalandi. Fræmóðir var skráð R. spinossima var. altaica en fræðiheitið R. spinossima er einnig mikið notað á þyrnirós. Yrkið er tileinkað minningu hjónanna Jóns Sigurðssonar skólastjóra og Katrínar Viðar sem árið 1961 gáfu Reykjavíkurborg safn íslenskra jurta og varð sú gjöf upphafið af Grasagarðinum. Vinsæl hérlendis sérstaklega á opnum svæðum sveitarfélaganna. Þyrnirós vex villt víða í Evrópu þar með talið á Íslandi. Einnig finnst hún í Atlasfjöllum í N-Afríku, Tyrklandi, Kákasus og V-Asíu. Afbrigðið var. altaica er ættað frá Síberíku. Rósaætt (Rosaceae).

Meyjarós ‘Kristine’ – Rosa moyesii ‘Kristine’

Fremur harðgerður, hávavaxinn runni (3 m). Laufblöðin stakfjöðruð, dökkgræn og mött. Smáblöð tennt, 7 - 13 talsins. Sprotar og ungir þyrnar rauðleitir. Blómin blóðrauð, einföld í júlí og fram í byrjun ágúst. Enginn eða lítill ilmur. Rauðgular, flöskulaga, fremur stórar nýpur þroskast á haustin. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk en þolir hálfskugga. Engin rótarskot. Þrífst í allri sæmilega frjórri, framræstri garðmold. má vera eitthvað malarborin og grýtt. Glæsileg stakstæð eða aftarlega í blönduðum runna- og blómabeðum. Hentar einnig í sumarhúsalönd og útivistarskóga. Meyjarós 'Kristine' er norskt úrvalsyrki frá Harstad í N-Noregi. Kom hingað til lands í gegnum Rósaklúbb Garðyrkjufélags Íslands upp úr síðustu aldamótum. Náttúruleg heimkynni tegundarinnar eru í V-Kína. Rósaætt (Rosaceae).

Rós ‘Ristinummi’ (járnbrautarrósin) – Rosa ‘Ristinummi’

Harðgerður, þéttur, meðalstór runni. Laufið stakfjaðrað. Blómin stór, einföld, fölbleik, daufur ilmur. Krónublöðin eru gulleit neðst. Blómgast í júlí og ágúst. Rauðar nýpur. Rauðgulir haustlitir. Vaxtarlagið hvelft. Sólelsk. Blómgast mest í sæmilega frjóum vel framræstum, aðeins sendnum eða grýttum jarðvegi í fullri sól. Járnbrautarrósin sómir sér vel í blönduðum runnabeðum, röðum og þyrpingum með tæplega 1 m millibili. Hentar í villigarða og sumarhúsalóðir. Talin vind- og saltþolin. Skríður ekki mikið út með rótarskotum. 'Ristinummi' er að öllum líkindum blendingur ígulrósar (R. rugosa) og þyrnirósar (R. pimpinellifolia). Kennd við bæinn Ristinummi í Finnlandi þar sem Peter Joy fann hana við járnbrautarstöðina í bænum í kringum árið 1996.

Rós ‘Lísa’ – Rosa rugosa ‘Lísa’

Harðgerð, í meðallagi hávaxin runnarós (1 - 1,5 m). Blómin stór, hálffyllt - fyllt, bleik og ilmandi. Þroskar rauðar nýpur á haustin. Gulir - rauðgulir haustlitir. Skríður út með rótarskotum. 'Lísa' er íslenskt yrki valið úr efniviði sem hingað barst úr Alaska-leiðangrinum árið 1985. 'Lísa' ber þess öll merki að vera ígulrós (R. rugosa) eða ígulrósablendingur. Þrífst og blómstrar mest á sólríkum stað í vel framræstum, ekki of frjóum jarðvegi sem gjarnan má vera blandaður sandi og möl. Vind- og saltþolin. Hentar í raðir og þyrpingar, til að binda jarðveg í brekkum, villigarða og sumarbústaða-lönd. Millibil 80 - 100 sm.

Ígulrós ‘Hadda’ – Rosa rugosa ‘Hadda’

Harðgerð runnarós. Vaxtarlagið útbreitt. Hefur því þekjandi eiginleika. Hæð: 1 - 1,5 m. Blómin stór, hálffyllt, rauðfjólublá og ilmandi. Er með fyrstu ígulrósum að byrja að blómstra á sumrin. Blómgast fram á haust. Rauðar, flathnöttóttar  nýpur þroskast að hausti. Blaðstönglar og axlarblöð rauðleit. Gulbrúnir haustlitir. Sólelsk. Þrífst best í aðeins sendnum/grýttum og vel framræstum jarðvegi. Blandið lífrænu efni (búfjáráburði/moltu) saman við jarðveginn við gróðursetningu. 'Hadda' hentar í breiðuplantanir til að þekja yfirborð og sem jaðarplanta í trjábeðum. Einnig í blönduð runnabeð, brekkur og þess háttar. Rótarkerfið skríður lítið sem ekkert út. 'Hadda' er úr smiðju Jóhanns Pálssonar (1931 - 2023) og er blendingur R. rugosa 'Rotes Meer' x R. kamtschatica. Kennd við eiginkonu Jóhanns, Hrafnhildi Kristínu Jónsdóttur (1935 - 2023) sem gjarnan var kölluð Hadda.

Ígulrós ‘Rosa Zwerg’ – Rosa rugosa ‘Rosa Zwerg / ‘Dwarf Pavement’

Harðgerð, fremur lágvaxin runnarós (100 - 130 sm). Blómin stór, tvöfölld, bleik og ilmandi. Rauðar stórar nýpur. Sólelsk. Rótarkerfið aðeins skriðullt. Vind- og saltþolin. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 sm millibili. Þýskt yrki frá 1984 úr smiðju Karl Baum.

Ígulrós ‘Logafold’ – Rosa rugosa ‘Logafold’

Rósin 'Logafold' er afrakstur rósakynbóta Jóhanns Pálssonar fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar. 'Logafold' er harðgerð og þétt runnarós. Vind- og saltþolin enda af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin eru stór, léttfyllt, fallega skálformuð, rauðfjólublá - bleik og ilmandi. Langur blómgunartími. Rauðar nýpur. Sólelsk en þolir hálfskugga. Hæð um 1,5 m. Framleidd og seld í Þöll á eigin rót. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 sm millibili. Getur einnig vaxið "villt" í sumarhúsalöndum og þess háttar. 'Logafold' er úr smiðju Jóhanns Pálssonar grasafræðings. Hún er afkomandi R. 'Charles Albanel x ?.

Ígulrós ‘Fru Dagmar Hastrup’ – Rosa rugosa ‘Fru Dagmar Hastrup’

Harðgerð, meðalstór runnarós (1 -1,5 m). Blómin stór, einföld, ljósbleik og ilmandi. Sólelsk. Vind- og saltþolin. Stórar rauðar nýpur. Aðeins skriðul. Þrífst í öllum sæmilega frjóum, vel framræstum jarðvegi. Má gjarnan vera sand- og malarborinn. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 - 100 sm millibili. Danskt yrki. Eitt besta yrkið til framleiðslu á nýpum. Nýpur má nýta í sultur, grauta og te. Þær eru mjög C-vítamínríkar.