Piparmynta – Mentha x piperita
All harðgerð, fjölær jurt. Hæð um 35 - 60 sm. Ný lauf áberandi dökk-purpurarauð. Blómin lillablá. Birtast seint og stundum ekki. Ófrjór blendingur en skríður talsvert út með jarðrenglum. Ilmandi krydd- og tejurt. Þrífst best í frjósömum og rökum jarðvegi. Getur vaxið með rótarkerfið ofan í vatni við lækjarbakka. Þolir vel hálfskugga. Piparmynta er ómissandi hluti af matjurtagarðinum. Einnig tilvalinn til ræktunar í pottum. Þarf nægt vatn til að þrífast. Lauf og blóm eru nýtt fersk og þurrkuð.
Postulínsblóm / Skuggasteinbrjótur – Saxifraga x urbium
Harðgerð, lágvaxin fjölær jurt. Hæð 15 - 30 sm. Laufblöðin sitja í jarðlægum hvirfingum sem smám saman bætist við. Blöðin leðurkennd, hálfsígræn, stilkuð, spaðalaga eða öfugegglaga og bogtennt. Blómin smá, stjörnulaga, fölbleik, mörg saman í uppréttum, gisnum klösum. Blómstilkar rauðleitir.
Postulínsblóm er skuggþolið. Hentar í hleðslur, steinhæðir og ker. Prýðis þekju- og kantplanta. Þrífst í öllum sæmilega frjóum og rakaheldnum jarðvegi. Þarf ekki djúpan jarðveg. Vinsælt og algengt í görðum hérlendis.
Yrkið 'Aureopunctata' hefur gulflekkótt laufblöð. Eigum það gjarnan til og er það ekki síður harðgert.
Postulínsblóm er talið vera garðablendingur á milli hins eiginlega skuggasteinbrjóts (Saxifraga umbrosa) og spaðasteinbrjóts (S. spathularis). Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Prestabrá – Leucanthemum maximum
Harðgerð, fjölær jurt. Hæð 70 - 90 sm. Laufblöð fremur þykk, aflöng, öfuglensulaga - langlensulaga og gróftennt. Blómkörfurnar stakar á stöngulendum, stórar með hvítar tungukrónur og gular pípukrónur. Minna á blóm baldursbrár en stærri. Blómgast í ágúst og september. Blómsæl.
Prestabrá þrífst best í frjórri og rakaheldinni garðmold. Sólelsk en þolir hálfskugga. Sæmilega vindþolin. Prestabrá hentar í beð með öðrum fjölæringum. Hæfilegt millibil við gróðursetningu er um 50 sm. Vekur athygli þegar hún blómstrar með sín stóru blóm síðsumars og fram á haust.
Heimkynni: Pýreneafjöll. Körfublómaætt (Asteraceae).
Purpuratoppur – Lonicera maximowiczii var. sachalinensis.
Harðgerður, þéttur, meðalhár runni (2 m). Laufin gagnstæð. Bronslituð fyrst á vorin síðan græn. Blómin fremur smá, tvö og tvö saman, rauðbleik. Blómgast miðsumars. Aldinið rautt ber sem þroskast í ágúst - september. Gulir haustlitir. Þolir hálfskugga. Þrífst í allri sæmilega frjórri, framræstri garðmold. Hentar í runnaþyrpingar og þess háttar. Millibil 50 - 100 sm. Sjaldgæfur hérlendis en lofar góðu. Móðurplönturnar okkar eru af græðlingum sem við fengum frá Jóhanni Pálssyni fyrrverandi garðyrkjustjóra Rvk. Runninn hans í Kálfamóa, Keldum, Grafarvogi, Rvk er ættaður úr Lystigarði Akureyrar. Heimkynni: Mansjúría þar með talið Sakalíneyja og Kórea.
Randagras – Phalaris arundinacea var picta
Harðgert skrautgras. Hæð: 1,5 m eða meir. Blöð áberandi hvítröndótt. Ögn fjólublár punturinn vex upp fyrir grasið síðsumars. Mjög skriðullt. Vex best í frjóum og rökum jarðvegi. Fer vel í þyrpingum og röðum t.d. á opnum svæðum, við tjarnir o.þ.h. Einnig kjörið í stóra potta/ker. Vökvið reglulega. Þolir hálfskugga. Heimkynnir: Evrasía og víðar.
Rauðberjalyng / Týtuber ‘Koralle’ – Vaccinium vitis-idaea ‘Koralle’
All harðgerður, lágvaxinn (15 - 20 sm), sígrænn dvergrunni. Blöðin smá, heilrennd. Fölbleikir sætukoppar birtast snemmsumars. Meðalstór, rauð, súrsæt, aðeins bitur, æt ber þroskast að hausti. Sólelskt en þolir hálfskugga. Berjaþroski verður þó mestur í fullri sól. Þrífst best í lítið eitt súrum, rakaheldnum jarðvegi. Dreifir sér með rótarskotum. Myndar breiður. Forðist að rækta með mjög ágengum tegundum. Rauðberjalyng hentar til að klæða beð. Berin eru notuð í sultur og þess háttar. Kallast "lingonberry" á ensku og "tyttebær" á dönsku. Tegundin finnst villt á einstaka stað hérlendis
Rauðgreni – Picea abies
Sígrænt, frekar hægvaxta, með tímanum hávaxið tré. Krónan frekar mjóslegin samanborið við sitkagreni (P. sitchensis). Smágreinar gjarnan drjúpandi. Nálar fremur stuttar og ekki eins stingandi og á sitkagreni. Nálar eru ferhyrndar í þversniðinu og fagurgrænar - gulgrænar á öllum hliðum. Skuggþolið. Þarf nokkuð gott skjól. Könglar aflangir, all stórir. Rauðir í fyrstu. Myndar yfirleitt ekki köngla fyrr en eftir nokkra áratugi.
Þarf sæmilega frjóan jarðveg. Vex mjög lítið og verður gult á litin í ófrjóu landi. Rauðgreni sómir sér vel stakstætt en einnig í þyrpingum fleiri saman. Þolir klippingu. Bil þarf að lágmarki að vera 3 m þegar fram í sækir. Má þó gróðursetja þéttar í upphafi og í görðum. Ekki algengt í görðum en víða í eldri skógræktar-reitum um land allt. Rauðgrenið sem við framleiðum er aðallega af fræi sem safnað hefur verið hérlendis þ.e.a.s. af íslenskum kvæmum. Rauðgreni er nýtt til timbur- og pappírsframleiðslu víða í heiminum. Prýðis jólatré. Heimkynni: Norður-, Mið- og A-Evrópa. Þallarætt (Pinaceae).
Rauðtoppur ‘Arnold’s Red’ – Lonicera tatarica ‘Arnold’s Red’
All harðgerður, meðalstór runni. Blómin dökkrauð í júní. Aldinið rautt ber. Þolir vel hálfskugga. Þrífst vel í frjóum, framræstum garðajarðvegi. Hentar í blönduð beð, raðir og þyrpingar með um 80 sm millibili. Yrkið 'Arnold's Red' er upprunið frá trjásafninu Arnold Arboretum, Boston í Bandaríkjunum frá árinu 1945.
Rauðtoppur ‘Rosea’ – Lonicera tatarica ‘Rosea’
All harðgerður, sumargrænn runni. Hæð um 1,5 til 2 m hérlendis. Laufin sitja gagnstætt. Þau eru egglaga, heilrennd og mött. Blómin eru bleik, ilmandi og birtast um mitt sumar. Aldinið er rauðgult, óætt ber sem þroskast á haustin.
Rauðtoppur 'Rosea' vex best í sæmilega frjóum rakaheldnum jarðvegi. Hentar í blönduð beð með öðrum skrautrunnum og/eða fjölæringum. Þolir vel hálfskugga. Millibil um 80 - 100 sm. Þolir vel klippingu en sé rauðtoppur 'Rosea' klipptur mikið blómstrar hann minna fyrir vikið. Náttúruleg heimkynni rauðtopps eru í M-Asíu. Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Regnhlífarblóm / Skjaldsteinbrjótur – Darmera peltata
Harðgerð, fjölær jurt. Hæð: 1,5 m. Blómgast fyrir laufgun í maí. Blómin eru ljósrauð í hvelfdum sveip á allt að 1,5 m háum blómstöngli. Blöðin eru fremur stór, gljáandi, skjaldlaga og birtast eftir blómgun í júní. Rauðir haustlitir. Þrífst best í rökum og frjóum jarðvegi t.d. við læki og tjarnir. Skuggþolið. Dreifir sér rólega út með neðanjarðarrenglum. Regnhlífarblóm er ættað frá Óregon og Kaliforníu. Fremur sjaldgæft hérlendis.