Rökkursteinbrjótur – Saxifraga cuneifolia
Harðgerð, lágvaxin, sígræn, fjölær jurt. Hæð 8 - 20 sm. Laufblöðin sitja í hvirfingum. Sprotar eru jarðlægir og bætast við nýjar blaðhvirfingar út frá þeim eldri. Myndar með tímanum þéttar breiður þar sem aðstæður leyfa. Laufblöðin eru fleyglaga, breið-egglaga eða því sem næst kringlótt. Þverstýfð í endann. Gjarnan tennt í efri hluta blöðkunnar. Blómsönglar rauðleitir og vaxa vel upp fyrir blaðbreiðuna. Bera nokkur eða all mörg, smá, hvít blóm stundum með gulum eða rauðleitum dröfnum. Blómgast í júní - júlí. Líkist smágerðu postulínsblómi (Saxifraga x urbium).
Rökkursteinbrjótur er skuggþolinn eins og nafnið gefur til kynna. Þrífst best í sæmilega frjóum, rakaheldnum jarðvegi. Jarðvegurinn þarf ekki að vera djúpur. Hentar í beðkanta, hleðslur, ker, potta og sem undirgróður. Þar sem rökkursteinbrjótur er mjög lágvaxinn getur hann ekki keppt við hávaxið, ágengt illgresi.
Heimkynni: Fjalllendi Mið- og S-Evrópu. Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
Rós ‘Agnes’ – Rosa ‘Agnes’
All harðgerð runnarós. Ígulrósablendingur. Laufin stakfjöðruð og áberandi krumpuð. Talsvert þyrnótt. Hæð allt að 1,5 m. Vill stundum kala. Blómstrar illa í rigningarsumrum. Blómin ljósgul, hálffyllt og ilmandi. Blómgast síðsumars.
Gróðursetjið í þokkalegu skjóli á móti sól í sæmilega frjóan, vel framræstan jarðveg. Úr smiðju Dr. W. Saunders, Kanada frá árinu 1922. Rósaætt (Rosaceae).
Rós ‘Aicha’ – Rosa ‘Aicha’
Sæmilega harðgerð runnarós. Hæð 1,5 - 2 m. Ekki sérlega þyrnótt. Greinar aðeins bogsveigðar með tímanum. Laufblöðin stakfjöðruð, dökk blágræn, og mött. Blómin eru stór, allt að 9 sm í þvermál, einföld - tvöfölld. Krónublöðin eru ljósgul. Fræflarnir dökkgulir. Blómbotninn áberandi rauðgulur. Sterkur og góður ilmur. Blómstrar síðsumars og fram á haust.
Eins og aðrar rósir er 'Aicha' sólelsk en þolir að vaxa í hálfskugga. Þrífst best í frjóum, vel framræstum jarðvegi á skjólgóðum stað. Blandið moltu eða stöðnu hrossataði saman við jarðveginn við gróðursetningu. Þar sem 'Aicha' er yfirleitt seld ágrædd þarf að gróðursetja hana djúpt þannig að ágræðslustaðurinn sé um 10 sm undir jarðvegsyfirborðinu. Jarðvegurinn má gjarnan vera sand- og malarborinn. Hentar í beð með öðrum rósum, lágvöxnum runnum og jurtum. Millibil um eða yfir 1 m. Einnig er hægt að gróðursetja 'Aicha' við grind upp við vegg og rækta sem klifurrós.
'Aicha' er úr smiðju Valdemar Petersen, Kolding, Danmörku frá sjöunda áratug síðustu aldar. Foreldarar eru terósablendingurinn 'Souvenir de Jack Verschuren' og þyrnirósablendingurinn 'Guldtop'. Rósaætt (Rosaceae).
Rós ‘Bonica 82’ – Rosa ‘Bonica 82’
Fremur viðkvæm skúfrós (floribunda). Laufið gljáandi. Greinar lítið þyrnóttar. Blómin ljósbleik, hálffyllt, mörg saman í klösum síðsumars og fram á haust. Daufur ilmur. Blómsæl. Hæð um 1 m. Hentar einnig sem klifurrós á grind við vegg. Verður þá hærri. Yfirleitt ber á einhverju haustkali. Klippið kalnar greinar að vori. Þarf sólríkan vaxtarstað með frjórri, vel framræstri garðmold. Setjið moltu eða staðið hrossatað í holuna við gróðursetningu. Þrífst ágætlega í grónum hverfum. Úr smiðju Marie Louise Meilland, Frakklandi frá árinu 1982.
Rós ‘Dornröschen’ – Rosa ‘Dornröschen’
Fremur viðkvæm beðrós. Hæð um 1 m eða rúmlega það. Blómin mjög stór, vel fyllt, fallega formuð, dökkbleik og ilmandi. Best er að rækta 'Dornröschen' upp við vegg á móti sól í skjóli. Vetrarskýli borgar sig. Sé byggt yfir rósina er best að klippa hana að hausti áður en skýlið er sett yfir. Rósin er klippt niður í u.þ.b. 20 sm. Sé ekki byggt yfir rósina er hún klippt niður að vori áður en hún laufgast. Rósir sem fá vetraskýli byrja jafnvel að blómstra í lok júní. Óskýldar rósir ekki fyrr en í ágúst. Ein allra fallegasta rósin sem hægt er að rækta hérlendis. Gengur almennt undir heitinu "dornrós" með almennings.
Rós ‘George Will’ – Rosa rugosa ‘George Will’
Harðgerð, meðalstór runnarós af ígulrósakyni (R. rugosa). Blómin stór, fagurbleik, hálffyllt og ilmandi. Ekki mikið um nýpur. Rauðgulir haustlitir. Sólelsk. 'George Will' hentar í blönduð runna- og blómabeð, raðir, þyrpingar, sumarhúsalóðir og villigarða. Millibil um 80 sm. Sérlega blómviljug og snotur rós.
Rós ‘Guðbjörg’ – Rosa ‘Guðbjörg’
Harðgerð, lágvaxin - meðahá runnarós (1,5 m). Laufið dökkgrænt, stakfjaðrað. Rauðir blaðstilkar. Rauð brum. Blómin tvöfölld, dökkrauðfjólublá með ljósari æðum. Ilma. Rauðar nýpur þroskast að hausti. Skriðullt rótarkerfi. Sólelsk. Hentar í runnaþykkni, brekkur (til að binda jarðveg), villigarða og sumarhúsalóðir. Yrkið er upprunið frá Jóhanni Pálssyni fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkur. 'Guðbjörg' er samkvæmt Jóhanni afkvæmi ígulrósarinnar 'Logafold' og R. x kamtschatica.
Rós ‘Hansaland’ – Rosa ‘Hansaland’
Þokkalega harðgerð, fremur lágvaxinn (60 - 100 sm) runnarós. Blómin stór, hálffyllt, nokkur saman í klasa, rauð. Daufur ilmur. Heilbrigt gljáandi lauf. Mikið þyrnótt. Seld ágrædd. Skríður því ekki út með rótarskotum. Þrífst best á sólríkum og skjólgóðum stað í garðinum í frjósömum, vel framræstum jarðvegi. Kelur stundum. Klippið kalið í burt að vori þegar sést vel hversu mikið er kalið framan af greinunum.
Rós ‘Harison’s Yellow’ – Rosa ‘Harison’s Yellow’
Lágvaxin - meðalstór runnarós. Blómin gul, hálffyllt, meðalstór og ilma. Mikið þyrnótt. Sólelsk og þarf eitthvert skjól. Yfirleitt seld ágrætt og skríður því ekki. Talin vera blendingur þyrnirósar (R. pimpinellifolia) og gullrósar (R. foetida). Gamalt yrki frá N-Ameríku. 'Harison's Yellow' hentar í blönduð beð með öðrum rósum, runnum og jurtum. Ein allra besta gula rósin hérlendis.
Rós ‘Hilda’ – Rosa ‘Hilda’
Rósin 'Hilda' er harðgerð, þéttvaxin runnarós sem verður um 1,5 m á hæð. Gisþyrnótt. Laufið stakfjaðrað og matt. Blómin eru meðalstór, tvöföld, bleik og ilmandi. Gulir frævlar. Blómgast í júlí - ágúst. Blómsæl. Rauðgular, nánast hnöttóttar nýpur þroskast í september - október. Hún hefur talsvert skriðult rótarkerfi.'Hilda' er vind- og saltþolin. Hentar í limgerði, þyrpingar, í brekkur og á opin svæði. Einnig þrífst hún í sumarhúsalóðum við litla umhirðu. Eins og aðrar rósir er hún sólelsk en þolir hálfskugga. 'Hilda' er framleidd og seld í Þöll á eigin rót. 'Hilda' er ein af rósum Jóhanns Pálssonar grasafræðings og fyrrverandi garðyrkjustjóra Reykjavíkur. 'Hilda' er blendingur milli ígulrósar 'Hadda' (R. rugosa 'Hadda') og fjallarósar (R. pendulina).
Rós ‘John Cabot’ – Rosa ‘John Cabot’
Sæmilega harðger runnarós. Hæð: Allt að 2 m. Laufin eru stökfjöðruð og gljáandi. Blómin meðalstór, skærbleik, hálffyllt og með meðalsterkum ilm. Þau sitja nokkur saman á stöngulendum. Blómstrar síðsumar og fram á haust.
Þrífst best í frjóum, vel framræstum jarðvegi. 'John Cabot' er seld ágrædd. Gróðursetjið rósina þannig að ágræðslan fari 10 sm undir jarðvegsyfirborðið. 'John Cabot' þarf sólríkan og þokkalega skjólgóðan vaxtarstað til að þrífast. Hægt er að gróðuretja 'John Cabot' við grind upp við vegg og rækta sem klifurrós.
Úr smiðju Dr. Felicitas Svejda, Kanada frá árinu 1969. Markaðssett í Kanada árið 1978. Fjölbastarður (R. x kordesii) x (R. 'Masquerade' x R. laxa). 'John Cabot' er úr svokallaðri "Explorer rósa seríu". Rósir í þessari vörulínu voru ræktaðar fram af Svejda í "Central Experimental Farm" í Ottawa, Ontario með það í huga að þola kalda vetur og stutt sumur á meginlandi Kanada. Rósir þessar voru skírðar í höfuðið á landkönnuðum sem komu við sögu í sögu Kanada. John Cabot (1450 - 1500) var ítalskur stýrimaður sem fyrstur kannaði Norðvesturleiðina svokölluðu. Rósaætt (Rosaceae).